Vikan


Vikan - 10.07.1969, Page 11

Vikan - 10.07.1969, Page 11
það þolir vel okkar veðráttu. þessar geysilegu hitabreytingar, þegar hitastigið getur færzt til um tuttugu stig á tíu tímum. Það þarf feikna sterkt efni til að þola þetta. Þessvegna er það að svokölluð kúnststeypa, mynd- ir búnar til úr sementi, þær eru ekki varanlegar hér. Þær veðrast og springa. — Hestamennska þín í æsku, vel á minnst. Þú ert af Snæfells- nesi? -Eg er fæddur á Staðarstað þar í sýslu, 17. ágúst 1923. Fað- ir minn var þar prestur. Hann var annars ættaður frá Skógum undir Eyjafjöllum, þar sem faðir hans var prestur. Ég ólst upp á Staðarstað til fjórtán ára aldurs, en þá hætti faðir minn prestskap og fluttist vestur undir jökul, að Hellnum. Þar var ég svo á unglingsárunum, á sumrin, en á vetrum í Reykjavík við nám í leirkerasmíði. Talið snýst nú um hríð um Snæfellsnes, þennan merkilega og stórsniðuga landshluta, þar sem trölldómur er í landslagi og huldar vættir hafa gengið ljósum logum allt fram á þennan dag. Þar á meðal voru auðvitað draugar, en ekki eins illa inn- rættir og til dæmis þeir norð- lenzku, Þorgeirsboli og fleiri slíkir ,segir Ragnar. Þarna voru Axlar-Björn og Kolbeinn Jökl- araskáld, sem kvaðst á við þann úr neðra, og Ásgrímur Hellna- prestur, hvers sóknarbörn þrá- sinnis reyndu að fá dæmdan frá kjóli og kalli en þáverandi Danakonungur hafði slíka trölla- trú á, að hann gaf honum kost á að velja um brauð á íslandi. En Ásgrímur vildi aðeins Hellna- kall, því ekkert var honum fjær skapi en að gera sóknarbörnum sínum það til geðs að yfirgefa þau. Og enn eru ævintýrapersón- ur vestur þar; því til sönnunar ætti að nægja að minna á Þórð á Dagverðará, refaskýttu, list- málara og skáld. Ragnar stund- aði sjósókn með honum fjögur sumur og á þaðan margar minn- ingar. — Það var allt ævintýri sem Þórður gerði, segir Ragnar. — Hjá gömlum manni sem stundum reri með okkur, Lárusi Lárussyni, ættuðum úr Garðin- um, bróður Finnboga á Búðum og síðar í Ólafsvík, lærði ég átið á kræklingi. Þegar kuldi var og við skulfum og vorum kveifar- legir, þá sagði hann: strákar, fáið ykkur feita skel og étið þið þetta. Og kræklingurinn bragð- aðist ágætlega, við átum hann hráan um leið og við skárum úr. Framhald á bls. 28

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.