Vikan


Vikan - 10.07.1969, Page 12

Vikan - 10.07.1969, Page 12
SAGA EFTIR ISAAC BASHEVIS SINGER ELD-HANNA Já, það er til fólk, sem er djöflar í manns- mynd. Guð hjálpi oss! Mæður sjá oft ýmis- legt, þegar þær fæða, en þær segja ekki frá því sem þær sjá. Eld-Hanna, eins og hún var kölluð, var ekki mannleg vera, heldur logandi eldur frá Víti. Eg veit að maður á ekki að tala illa um látið fólk, og hún hefir kvalizt nóg fyrir syndir sínar. Var það henni að kenna að það var alltaf stormur í sál hennar? Það var hægt að sjá það í augum hennar, sem voru eins og kolamolar. Það var hrollvekjandi að horfa í þau. Hún var dökk eins og tatari, með mjóleitt andlit, innfallnar kinnar, horuð, eig- inlega aðeins skinn og bein. Einu sinni sá ég hana baða sig í ánni, rifbeinin stóðu út eins og gjarðir. Hvernig gat nokkur, sem var lík- ur Hönnu, safnað spiki? Hvað sem sagt var við hana, hversu sakleysislegt sem það var, var hún strax á verði. Hún gat farið að öskra, steyta hnefana, og snúast í hring, eins og brjáluð manneskja. Og andlitið varð náhvítt af bræði. Ef þú reyndir til að bera hönd fyrir höfuð þér, þá var eins og hún gæti gleypt þig með húð og hári. Hún átti það til að brjóta leirtauið. Á nokkra vikna fresti varð eiginmaður hennar, Tevia Chazkeles, að kaupa nýtt leirtau. Hún tortryggði alla. Henni fannst allur bærinn væri á hælum sér. Þegar hún fékk reiðiköstin, var orðbragð hennar þannig, að ekki einu sinni brjálað fólk hefði viðhaft slíkt. Blótsyrðin streymdu af vörum hennar, eins og ormétnar baunir. Hún þekkti öll for- mælingarorð hinnar helgu bókar. Hún sveifst þess ekki að kasta grjóti, ef svo bar undir. Einu sinni, um miðjan vetur, braut hún gluggapóst í húsi nágrannans. Nágranninn vissi aldrei hversvegna hún gerði það. Hann átti fjögur börn, fjórar dætur; en þær fóru að heiman um leið og þær spruttu úr grasi. Ein varð þjónustustúlka í Lublin; önnur fór til Ameríku, sú fegursta, Malkeleh dó úr skarlatssótt, og sú fjórða giftist göml- um manni. Það var allt betra en að búa hjá Hönnu. Tevia, maðurinn hennar hlýtur að hafa verið dýrlingur. Enginn nema dýrlingur hefði haldið það út að búa með öðru eins skassi í tuttgu ár. Hann bjó til sáld. Og þá, jafnvel um hávetur, byrjaði vinnudagurinn áður en birta tók að degi. Hann varð sjálfur að leggja til kerti, og laun hans voru smá. Þau voru fátæk, en þau voru ekki ein um það. Heilt vagnhlass af krít hefði ekki dugað til að skrifa upp þær ásakanir, sem hún lét dynja yfir hann, í tíma og ótíma. Ég bjó í næsta húsi við þau í nokkur ár, og einu sinni heyrði ég hana kalla á eftir honum, þegar hann fór til vinnu sinnar: — Komdu strax aftur, og láttu fæturna ganga á undan! Ég veit ekki hvað hann hafði gert af sér. Hann fékk henni sinn síðasta skilding, og elskaði hana líka. Hvernig var hægt að elska slíka norn? Guð einn veit það. En það er auðvitað 12 VIKAN 28- tbl' - logarvítissem brunnu innra meö þessari píndu sál myndu brjótast út, færa eyðileggingu yfir þorpið ... '< f « / > ,.r vA Y riifhr n

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.