Vikan - 10.07.1969, Síða 16
ANDRÉS ENDRIÐASON
jJlljmMMll lu
ROOF TOPS
Það er létt yfir hinni nýju hljómplötu
Roof Tops, sem nýlega er komin á markað-
inn. Þegar þess er gætt, að þetta er fyrsta
hljómplata hljómsveitarinnar verður ekki
annað sagt, en að nokkuð vel hafi til tekizt.
Lögin á plötunni sýna að ekki skortir þá fé-
lagana hugmyndaauðgi, og kemur þetta hvað
gleggst fram í laginu „Sjúkur draumur um
lasin blóm“, en tónsmíð sú er saman við
texta eftir Þorstein Eggertsson. Effektar
eru notaðir til að krydda músikina, ef til vill
einum of mikið, því að þess háttar fídusar
missa áhrifamátt sinn ef notaðir eru í óhófi.
Burtséð frá því er músikin á plötunni fersk
og lifandi; útsetningarnar bera vott um
skemmtilega hugmyndaauðgi og samspil er
með miklum ágætum: öll hljóðfærin koma
vel í gegn, ekkert eitt þeirra er yfirgnæfandi
utan kannski saxófónninn á stöku stað. Aug-
ljóst er, að mikið hefur verið nostrað við
16 VIKAN 28- tbl-
öll lögin á plötunni og þykir mér trúlegt,
að góð og náin samvinna hljómsveitarinnar
og upptökumannsins (Jóns Þórs Hannesson-
ar) eigi drjúgan þátt í því, hve vel hefur til
tekizt. í laginu „Söknuður", sem Ari Jónsson
(trymbillinn) syngur, eru strengir hafðir
með til áhrifsauka og gefur það góða raun.
Þetta lag útsetti Magnús Ingimarsson af
sinni alkunnu smekkvísi. Önnur lög eru:
„Það fer ekki eftir því“ eftir Otis
Redding, „Fólk á flótta" eftir Svein Guð-
jónsson, Jón Pétur og Guðna Pálsson og svo
„Sjúkur draumur um lasin blóm“.
Rétt er að geta þess, að umslagið utan um
þesas plötu er gert af óvenju miklum hag-
leik. Litmyndir eru af þeim félögum á for-
síðu en á baksíðunni eru hvorki meira né
minna en tuttugu myndir af hljómsveitinni.
Myndirnar tók Sigurgeir Sigurjónsson, en
prentun annaðist Grafík h.f. Það er hljóm-
plötudeild Fálkans, sem gefur þessa plötu út.
Mega aðstandendur hennar vel við una.
☆
EKKI AF DAKI
DOTTINN
Bandaríski söngvarinn Tommy Roe
er nú aftur kominn fram í sviðsljósið
með lagið „Dizzy“, en það hefur notið
mikilla vinsælda að undanförnu. Nokk-
ur ár eru nú liðin síðan Tommy var síð-
ast á kreiki. Árið 1963 átti liann tvö
lög á brezka vinsældalistanum, „The
Folk Singer“ og „Everybody“. Þessi lög
bárust þó ekki hingað til lands, en hins
vegar munu flestir hafa heyrt lagið
„Sheila“, sem Tommy söng á plötu 1962,
en það lag komst í næst efsta sæti brezka
vinsældalistans. Tommy gerði sér ekki
miklar vonir um að hann kæmist á blað
sem söngvari, þegar hann söng „Sheila“
inn á plötu. Ilann starfaði þá sem tækni-
maður hjá einu stærsta fyrirtæki heims,
General Eletrics. Það tók umboðsmann
hans langan tíma að telja hann á að
gefa það starf upp á bátinn og gerast
söngvari í þess stað. ITann hefur ekki
þurft að sjá eftir þeirri ákvörðun sinni,
því að vestan hans hefur liann síðan
verið mjög vinsæll og eftirsóttur
skemmtikraftur. Nýja lagið hans,
„Dizzy“ komst til dæhiis í annað sæti
á vinsældalistanum bandaríska. Tommy
hefur jafnhliða söngnum fengizt við
leiklist og komið fram í nokkrum leik-
ritum á sviði. Nú ætlar hann líka að
snúa sér að kvikmyndunum. Hann á
búgarð í Georgíuríki, og þangað fer hann
hvenær sem færi gefst, en sjálfur segist
hann una sínum hag bezt hjá búpeningn-
um, sem hann hefur komið sér upp.