Vikan


Vikan - 10.07.1969, Blaðsíða 23

Vikan - 10.07.1969, Blaðsíða 23
andlitinu til Mekka, og biður: „Allah, þú ert mitt vitni um að sprengjan, sem ég skildi eftir í kvikmyndahúsinu, var í góðum tilgangi. Baráttan við ísrael verður að halda áfram. Palestína er okkar heimili. Við höfum á réttu að standa. Ég fæ ekki skilið hvers vegna foreldrar mínir voru neyddir til að flýja til Amman, þegar heimili okkar er hér.“ Fatimah kemur frá Nablus, sem er einn þeirra staða sem ísraelsmenn hertóku í sex daga stríðin 1967. Hún vann þar sem aðstoðarstúlka á sjúkrahúsi. Fangelsisstjórinn segir um hana: „Hún er verulega indæl stúlka, þægileg í viðmóti og hefur nokk- uð sérstæðan persónuleika.“ Sprengjutilræði Fatimuh var eitt hinna fyrstu sem beint var gegn ísraelskum borgurum eftir stríðið, og hún var fyrsta arab- íska stúlkan sem var handtekin af öryggislögreglu fsraels. En margar hafa fylgt í kjölfar henn- ar. Hryðjuverkasamtök hinna ungu Arabakvenna hafa valdið ísrael mikliun áhyggjum, og ísraelska öryggislögreglan hræð- ist þær meira en skæruliðana frá Sýrlandi og Jórdaníu; stúlk- urnar sem búa á ísraelsku yfir- ráðasvæði. Öryggislögreglumaður nokkur segir: „Arabískar stúlkur og konur eru stórkostlegar póli- tískt séð, og miklu máttugri en arabískir karlmenn.“ í Za-Neveh fangelsinu eru nú átta arabískar stúlkur. Fatimah er sú eina af þeim, sem hefur þegar hlotið dóm. Hinar sitja allar og bíða örlaga sinna: Miriam Shakshir, 19 ára, dótt- ir efnaðs kaupmanns í Nablus, er ákærð fyrir að hjálpa arabískum stúdentum að smygla sprengju inn í háskólann í Jerúsalem. Tuttugu og átta stúdentar særð- ust. Samia Ali, 23 ára, er ákærð Framhald á bls. 34. Öryggislögregla Gyðingaríkisins segir arabískar stúlkur pólitískt stórkostlegar, og mikið máttugri en arabíska karlmenn. 28. tbi. VIKAN 23

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.