Vikan


Vikan - 10.07.1969, Blaðsíða 26

Vikan - 10.07.1969, Blaðsíða 26
Það var einn vetrardag, að 10—12 ára strákur stóð yfir snjó- boltahrúgu og kastaði þeim af miklum móði í vegfarendur. IJng kona, sem greinilega var ekki kona einsömul, fór ekki varhluta af skothríðinni. Þá var miðaldra manni, sem fram hjá fór í sömu svifum, nóg boðið, hann stökk á stráksa og hristi hann duglega til. — Mér er rétt sama, þótt þú kastir snjó í félaga þína, og jafnvel þótt þú skjótir hattinn af mér, en sástu ekki, að þessi kona á von á barni? Jú, stráksi hafði séð það. — Veiztu ekki, að það getur haft alvarleg áhrif á barnið, ef móðir þess verður fyrir skakka- föllum, meðan hún gengur með það? — Iss, nei, það er tóm hjátrú. Þegar mamma gekk með mig, datt hún einu sinni niður kall- aratröppurnar heima með fangið fullt af grammófónplötum, en mér varð ekkert meint af, ekkert meint af, ekkert meint af, ekk- ert meint af, ekkert meint af . . . — Pabbi minn er mikkt stserri en þinn. — Ekki um miðjuna. Faðir segir svo frá: Um daginn hnuplaði fimm ára sonur okkar 50 krónum úr buddu mömmu sinnar til að kaupa happdrættismiða af stelpu, sem bauð miða við dyrnar. Þegar konan mín uppgötvaði þetta, flengdi hún strákinn og háttaði hann ofan í rúm, og þegar ég kom heim úr vinnunni, hélt ég yfir honum langan fyrirlestur um það, hvernig færi fyrir þeim sem stela: Að litlu englarnir grétu yfir þeim og mættu ekki vera hjá þeim, að ekkert fólk vildi hafa þá nærri sér, að þeir séu settir í fangelsi og svo framveg- is og svo framvegis. Ég lét móð- an mása, drengurinn grét, og ég þóttist viss um, að hann myndi aldrei taka svo mikið sem sand- korn framar ófrjálsri hendi. En nú er ég að velta því fyrir mér, hvernig ég á að bera mig 26 VIKAN 28' tbL til við að segja honum, að við unnum bíl á miðann. — Hvort viltu heldur, Óli minn, litla systur eða lítinn bróður? — Eh — ef það er ekki of mikið fyrir þig, mamma mín, langar mig meira í rugguhest. til kaupmannsins. — Ég þarf að fá skeinispappír, gólaði hann. — Það heitir toiletpappir, drengur minn, sagði lcaupmaðurinn. — Nokkuð fleira? — Sápustykki. — A það að vera toiletsápa? — Nei, takk, til að þvo hend- urnar. Móðirin kom með litla stúlku í leikskólann og óskaði eftir að koma henni þar inn. Forstöðu- konan sagði, að litla stúlkan væri raunar svo ung, að undir venju- legum kringumstæðum yrði hún varla tekin, en það væri samt hugsanlegt að gera undantekn- ingu. — Ertu farin að tala, elsk- an mín? spurði hún. — Segðu eitthvað fyrir mig, eitthvað sem þú kannt. Þá leit sú litla á móður sína og spurði: — Heldur þú, mamma, að þessi góða kona óski eftir setningu í samhengi, eða kjósi heldur sundurlaus orð án þýð- ingar? Er hún mamma þín heima? spurði pósturinn litla dreng'nn, sem var að leika sér í garðinum. — Já, svaraði snáði, en ef þú hringir bara dyrabjöllunni, held- ur hún að það sé ég og opnar ekki. En ef þú lætur bréfalúg- una skrölta og kallar „ég þarf að pissa“, kemur hún eins og skot ...... Strákpjakkur kom þjótandi inn — Jónas minn, það eru tvö orð, sem þú notar mikið en eru ekki góð íslenzka. Annað er næs, en hitt er smart. — Já, frænka mín, hvaða orð eru það þá? Tveir drengir veðjuðu um það, hvor gæti hallað sér lengra út yf- ir svalirnar á þriðju hæð. Allt í einu vann annar. — Mamma, ma-hamma, ég meiddi mig á hnénu! — Jæja, elskan mín, er það stórt sár? — Eheins og túkall! — Nei, nú skrökvar þú. Það er ekki svo stórt. — Minnsta kosti þá eins og 1,75. — Hvers vegna ertu náttúru- lækningamaður og étur eintóma jurtafæðu? — Ég er dýravinur. — Skammastu þín þá ekki fyr- ir að éta frá þeim matinn? Adam og Eva gengu um Para- dís og skírðu dýrin. Adam nam

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.