Vikan


Vikan - 10.07.1969, Qupperneq 39

Vikan - 10.07.1969, Qupperneq 39
festa á dyrakarminn, en hann hengdi helgimynd á vegginn í staðinn. Þorpsbúar vildu færa henni mat, en kona prestsins sagðist geta gefið henni það litla sem hún þyrfti. Vetrarkuldinn lagðist yfir, rétt eftir uppskeruhátíðina, og hélzt fram á þakkarhátíð, sem haldin var til minningar um það að Gyðingar voru leystir úr ánauð- inni í Babylon. Húsin snjóuðu í kaf, og maður varð að moka sig út úr þeim með skóflu. Hanna lá allan daginn í rúminu. Hún var ekki sú sama; hún var ljúf eins og lamb. Þó skein illskan úr aug- um hennar. Sonur prestsins kveikti upp eldinn hjá henni á hverjum morgni. Hann sagði frá því í lærdómshúsinu að Hanna væri í rúminu allan daginn, vaf- in innan í fiðursængina, og segði aldrei orð. Kona prestsins stakk upp á því að hún kæmi inn í eldhúsið til sín, jafnvel að hún hjálpaði til við heimilisstörfin, en Hanna neitaði því. — Ég vil ekki láta neitt koma fyrir bæk- ur prestsins. Það var hvíslað um það í þorpinu að hinir illu andar hefðu yfirgefið hana. Um það leyti sem þakkarhá- tíðin var haldin, varð skyndilega hlýtt. ísinn bráðnaði og áin flaut yfir Brúarstræti. Þeir fátæku eiga bágt, en aldrei eins og þeg- ar flóðin koma, og allt lauslegt fer á flot. Það varð að setja fleka yfir Brúarstræti, svo hægt væri að komast yfir það. Bakarinn var nýbyrjaður að baka brauðin og undirbúa undir hátíðahöldin, sem haldin voru í minningu um það að Gyðingar losnuðu úr ánauðinni í Egyptalandi, en hveitisekkirnir blotnuðu og hveitið varð ónýtt. Svo heyrðist skyndilega óp frá húsi prestsins. Hátíðaskálinn var alelda eins og ljósker úr pappír. Það skeði um miðja nótt. Síðar sagði Hanna frá þvi að eldleg hönd hefði komið frá þakinu og tendrað eld um allt húsið á ör- skammri stund. Hún greip ábreiðu til að verja sig með, og hljóp út í garðinn, sem var ekk- ert nema leðja, skriðnakin. Gat presturinn gert nokkuð annað en að taka hana inn til sín? Konan hans hætti að sofa á nóttunni. Ég ætti ekki að gera þér þetta, sagði Hanna við prestinn. Jafn- vel áður en hátíðaskálinn brann, hafði Taube, dóttir prestsins tek- ið saman föggur sínar, til þess að vera við öllu búin, ef eld bæri að garði. Næsta dag kölluðu öldungarn- ir saman til fundar. Þar var mik- ið þrefað og þeir gátu ekki kom- izt að niðurstöðu. Einhver stakk upp á því að Hanna yrði flutt til annars bæjar. Hanna ruddist inn í skrifstofu prestsins, föt hennar voru í tætlum og sjálf var hún eins og lifandi fuglahræða. — Faðir, öskraði hún, — ég hefi búið hér alla ævi, og hér vil ég fá að deyja. Láttu þá grafa gröf og jarða mig strax. Það getur ekki kviknað í kirkjugarðinum. Hún var búin að fá málið aftur, og allir voru undrandi. Reb Zelig, pípulagningamaður- inn, var staddur á fundinum. Hann var góður maður, og hann bauðst til þess að lokum að byggja hús yfir Hönnu, byggja það úr múrsteinum, því þeir eru ekki eldfimir. Hann sagðist vilja gefa vinnu sína, ef aðrir leggðu efnið til. Þaksmiðurinn vildi gera þakið endurgjaldslaust. Hanna átti lóð- ina, þar sem brunarústirnar voru, og reykháfurinn stóð enn- þá. að tekur venjulega fleiri mánuði að koma upp húsi, en hús Hönnu var reist á skömm- um tíma, því margir lögðu hönd að verki. Piltar frá lærdómshús- inu hreinsuðu lóðina, skólabörn- in báru steina. Piltarnir úr prentskólanum hrærðu steypu. Feival, gluggasmiðurinn smíðaði gluggapóstana. Og eins og máls- hátturinn segir: Fjöldinn er aldrei fátækur. Ríkur maður, Reb Felik gaf tin í þakið. Á stuttum tíma var þetta orðið að húsi. Reyndar var þetta skúr með moldargólfi, en hún þurfti heldur ekki mikið. Hönnu var gefið járnrúm, með hálmdýnu og fiðursæng, og úr fátækra- sjóðnum fékk hún matvæli, já, hún fékk líka mataráhöld og diska. Það var eitt sem allir voru sammála um, og það var að hún fengi ekki aðgang að þakkarhá- tíðinni. Á leiðinni þangað leit einhver inn um gluggann til hennar, þar var engin hátíð, eng- in kerti, Hanna sat á bekk og nagaði gulrót. En enginn getur sagt fyrir um atburðina. í fyrstu heyrði Hanna ekkert frá Mindel dóttur sinni, sem hafði farið til Ameríku. Þeir gömlu sögðu: Handan við hafið er annar heimur. Fólkið fer til Ameríku, það gleymir foreldr- um sínum, já það gleymir jafn- vel Gyðingatrúnni, Guði. Árin liðu og ekkert heyrðist frá henni. En það sýndi sig að Mindel var góð stúlka. Hún giftist og mað- urinn hennar varð mjög ríkur. Pósthúsið okkar hafði aðeins einn bréfbera, sem var bóndi. Einn daginn kom ókunnur bréf- beri. Hann var með sítt skegg og jakkinn hans var borðalagð- ur, og merki á húfunni. Hann kom með bréf, sem þurfti að kvitta fyrir. Hver haldið þið að hafi átt þetta bréf? Það var Hanna. Hún gat ekki frekar skrifað nafnið sitt heldvu- en ég gæti dansað fjórdans. Hún krafs- aði fjögur merki undir kvittun- ina og einhver skrifaði með sem vottur. f stuttu máli, þetta var peningabréf. Zeinvel, kennarinn, kom til að lesa bréfið og helm- ingur þorpabúa hlustaði á. „Móðir mín kær, áhyggjur þínar eru á enda. Maðurinnminn er orðinn ríkur. New York er stór borg, og hér borðar maður 28. tbl. VIKAN 39

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.