Vikan


Vikan - 30.07.1970, Side 6

Vikan - 30.07.1970, Side 6
NÝTT FRÁ DU PONT Með nýja „RALLY"*bílabóninu frá Du Pont má bóna bílinn á aðeins OtFiÖKO 1/2 klst. Reynið„RALLY"*strax í dag. sfmfS178 • skrásett vörumerki Du Pont IGNIS— KÆLISKÁPAR IGNIS kæliskápar með djúplrysti ATH.: Afþýðing úrelt (Óþörf), meö innbyggðum rakagjafa, sem heldur ávallt mat og ávöxtum ferskum. FULLKOMIN einangrun! A. Stærra innanmál, B. Sama utanmál. Hæð Breidd Dýpt Samt. lítr. Frystih. Cub-fet cm cm cm Staðgr. Afb. ? út+ 6 mán. 225 — 38 L 7,9 141 49,5 60 21.220.— kr. 22.600.— 275 — 53 L 9,7 151 54,5 60 23.172.— kr. 24.612 — 330 — 80 L 11.6 155,5 60 68 33.020.— kr. 34.943 — 400 — 95 L 14,1 155.5 71 68 37.325.— kr. 39.435.— RAFTORCm VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI 26660 Þetta líkar mér ekki Kæri Póstur! Þannig er mál með vexti að ég er hrifin af strák. En hann vill ekkert með mig hafa nema þegar hann er full- ur, en það vil ég ekki. Hann vill til dæmis sjaldan koma með mér út, en þegar við förum út þá finnst mér hann þurfa að líta í allar áttir, það er eins og hann skammist sín fyrir mig, eða þetta finnst mér. Ég hef séð hann með annarri stelpu, og þá ætlaði ég að segja honum upp, en hann tók ekki mark á mér. Svo þegar hann er fullur, þá hringir hann um hánótt og þetta líkar mér ekki. Ég vil ekki segja honum upp. Hvernig er skriftin og staf- setningin? Með fyrirfram þökk. Ein í vanda. Málin standa þannig, eftir því sem bezt verður skilið á bréf- inu, að drengurinn gefur heldur lítið fyrir þig, en finnst sjálf- sagt þægilegt að geta gripið til þín þegar hann hefur ekki ann- að. Hann gerir sér efalaust ljóst að þú ert skotin í honum og hef- ur enda reynslu fyrir því að hann þarf ekki annars við til að vinna bug á mótstöðu þinni en „taka ekki mark á þér“. Ef þú lætur við þetta sitja, má búast við óbreyttu ástandi um lengri eða skemmri tíma, en það endar tvímælalaust með því að hann missir þennan litla áhuga, sem hann hefur á þér enn. Ef þú hins vegar segðir honum upp og hann gerði sér ljóst að þar væri alvara á ferðum, er hugsanlegt að hann færi að taka meira mark á þér en hann nú gerir og um- gangast þig með meiri virðingu. En þótt svo færi að uppsögnin yrði til þess að það slitnaði upp úr þessu á milli ykkar fyrir fullt og allt, þá ætti skaðinn að vera bættur — þér líkar ekki núver- andi ástand, eftir því sem þú segir, en þér er nokkurn veg- inn óhætt að bóka að það batn- ar ekki ef þú heldur áfram að vera jafn leiðitöm við drenginn og hingað til. Skriftin er þokka- leg, en stafsetningin heldur klén. Martröð Líf þessarar stúlku, sem ég skrifa um, hefur verið hrein martröð. Ekki kannski alltaf, en oftast. Hún er nú orðin tuttugu og sex ára. Hvað hefur iífið gef- ið henni sem hún getur elskað? Ekkert nema litludrenginahenn- ar. Þegar hún var nítján ára fór hún að hata og hatar enn. Hún elskar mann, og haldið þið að hann sé góður maður? Nei, hann á ekki skilið að vera elskaður. Og faðir hennar eyðilagði líf hennar með því að gera hana hrædda, frá því hún var lítii stúlka. Stundum var hún yfir sig hrædd er hún sá föður sinn æstan og fullan, þá sló hann móður hennar, sló allt og braut. Þá hljóp litla stúlkan út, hvort sem það var dagur eða nótt. Hún stóð úti í kuldanum oftast berfætt og horfði heim og beið. Ætti hún að þora inn, skyldi pabbi vera sofnaður? Þessu fylgdi stöðug martröð og hræðsla við allt. Svo varð hún fulltíða stúlka. Þá kom maðurinn sem hún elskar til sögunnar. En það fór illa, hann var líka vondur maður. Og aftur byrjaði hræðsl- an og flóttinn; hún var hrædd við hann eins og föður sinn sem lamdi móður hennar. En samt elskar hún þennan mann og hræðslan og martröðin heldur sjálfsagt áfram meðan hún lifir. Kæra Vika, viltu birta þessa martröð ef þú hefur áhuga. D.D.D. Við þetta hefur Pósturinn svo sem engu að bæta, enda ekki farið fram á það af hálfu bréf- ritara. Þetta er óbrotið neyðar- óp, sem vitnar um þá illsku sem allsstaðar virðist nálæg í mann- lífinu og verður varla aldauða fynr en með manninum sjálf- um. Það er veriS aö stríða okkur Kæri Póstur! Ég hef skrifað þér áður og fékk mjög gott svar. Nú vona ég að þú getir leyst úr vanda mínum sem fyrst. Ég er hrifin af strák, en mér finnst hann taka því sem gríni þegar verið er að stríða okkur, ég meina, hann heldur að það sé vitleysa að ég sé hrifin af honum. Hann er sjálfur að stríða mér, ég meina, kalla mig ástin og elskan án þess að meina það. En samt finnst mér hann horfa á mig og á eftir mér og krakk- arnir segja að hann sé oft að tala um mig (ég veit ekki hvort 6 VIKAN 31. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.