Vikan


Vikan - 30.07.1970, Síða 16

Vikan - 30.07.1970, Síða 16
Ný og spennandi framhaldssaga Eftir ELIZABETH BARR 1. hluti Ef ég hefði ehki hjálpað snyrtilegu, gömlu konunni, sem hrasaði og féll á gang- stéttina ... Ef ég hefði ekki farið á bak við hana og látið hana halda að ég væri einskonar húshjálp á Tarn ... og umfram allt: - ef ég hefði sagt nei, þegar hún bauð mér vinnu hjá sér... Já, þá hefði líf mitt orðið öðruvísi. Meðal annars hefði ég sloppið við að verða fyrir morðtilraunum ... Það er oft undarlegt hvernig atvikin geta gripið inn í daglegt líf. Það þurfti ekki annað til að gerbreyta lífi mínu, en að ég hjálpaði gamalli konu, sem féll á gangstéttinni. Ef ég hefði þá vitað hvað fyrir mér átti að liggja, hefði ég líklega orðið hrædd... . Seabridge er notalegur sumar- dvalarstaður við ströndina, og einn sólbjartan sumardag ók ég þangað frá Tarn House, til að kaupa ýmsar nauðsynjar. Ég var í slitnum og upplituðum galla- buxum, gömlum ilskóm og í rauðköflóttri blússu. Mamma hefði ekki verið ánægð með þennan klæðaburð, en hún og stjúpfaðir minn voru á sumar- ferðalagi í Grikklandi og ætluðu að vera þar í þrjá mánuði. Ég hafði margt að þakka. Ég var tvítug, grannvaxin með brúnt, liðað hár. Ég er líka eig- inlega alltaf sólbrún. Augu mín eru grá, en nefið og munnurinn of stór, svo ég hefði ekki verið nein fegurðardís, þótt ég hefði reynt að gera mig stásslega, eins og mamma vildi að ég væri. Ég var rétt búin að ljúka er- indum mínum, þegar það skeði. Gamla konan hafði ekki meitt sig, en hún var svo utan við sig eftir fallið, að ég kom henni inn á veitingahús, sem var þarna rétt hjá. Það kom í ljós að hún hét frú Mede, og hún hafði sérkennilega bjartan hörundslit, eins og marg- ar eldri konur hafa, og mjúkt, silfurgrátt hár. Ég sagði henni að ég héti Serena Buckley og að ég bvgei á Tarn House, en það var næsta spurning hennar sem kom öllum misskilningnum af stað. Hún spurði hver ætti Tarn House og ég svaraði: — Cromer maiór. Ég hefði auðvitað átt að bæ^a því við að hann væri stjúpfaðir minn, en hún varð fyrri til með spurningu sína, svo það að ég bætti ekki þessurri tveim orðum við, varð til að breyta lífi mínu. Hvaða vinnu hafið þér þar? spurði hún, og skyndilega fannst mér þetta æðislega skemmtilegt og langaði til að leika það hlut- verk, sem hún hafði fengið mér upp í hendurnar. Ég bjóst held- ur ekki við að sjá hana framar. - Ja, svona sitt af hverju, sagði ég. — Ég ek bíl, mér þykir gaman að vinna í garðinum, það er geysistór garður á Tarn; — ég fer alls konar erindi og geri svona það sem til fellur. Cromer majór og konan hans eru í Grikklandi núna, og verða þar í þrjá mánuði. — Jæja? Hún var hugsandi um stund, en svo sagði hún skyndilega: Þér verðið að koma heim með mér og borða hádegisverð! Núna? sagði ég heimskuleg á cvininn. Það er ómögulegt, ég er svo illa til fara. - Vitleysa! Það er enginn heima hjá mér, nema konan, sem hjálpar mér á daginn. Nicholas sonur minn kemur ekki heim í mat, hann er augnasérfræðing- ur við Meyersbridge sjúkrahús- ið, og hinn sonur minn, Liam, er leirkerasmiður og býr þar sem hann hefur vinnustofu sína. Auðvitað endaði það með því að ég lét undan. Vesalingurinn, hún var líklega einmana, hugs- aði ég, og þess utan yrði þetta skemmtileg saga að segja mömmu og Ian, þegar þau kæmu heim. Ég náði í bílinn og hjálp- aði henni upp í hann. Hún held- ur líklega að húsbændur mínir eigi bílinn, hugsaði ég og hló með sjálfri mér. Hún sagði að við þyrftum að fara yfir ána, en þar var „fínni“-hlutinn af Sea- bridge, þar var seglbátahöfn, klúbbhús og nokkur einbýlishús, en þegar hún sagði mér að nema staðar fyrir utan gríðarstórt hús, með geysi stóru smíðajárnshliði, varð ég næstum lömuð. Ég hefði svo sem mátt segja mér það sjálf, eftir þeim skartgripum, sem frú Mede bar, að ekki var líklegt að hún byggi í einu af litlu húsunum við kirkjuna, en samt hefði ég aldrei getað búizt við þessu. Ég fann til þess hvern- ig ég var til fara, jafnvel litli, rauði bíllinn minn, var sem móðgun við þetta hús. Við komum inn í stóran og svalan forsal, þar sem miðaldra kona í nylon slopp, var að gljá- fægja maghoníborð. — É'g er með gest í matinn, frú Danby, sagði frú Mede. - Já. Ég er með skilaboð til yðar, frú. Það var hringt sím- skeyti frá London, meðan þér voruð úti. Kona herra Nicholas kemur eftir tvo daga. „Savalle kemur heim“, stóð í skeytinu. Það varð undarlega hljótt í forsalnum. Frú Mede varð ná- föl, og það leit út fyrir að líða myndi yfir hana, en þegar ég rétti ósjálfrátt fram höndina, áttaði hún sig og hristi höfuðið. Það var eins og hún vildi ekki viðurkenna að hún hefði fengið alvarlegt áfall. l(i VIIvAN 31tbI

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.