Vikan - 30.07.1970, Blaðsíða 49
^ Martin Wagner, rúmlega þrítug-
ur myndskeri, scm leikur Júdas.
} „Þéir settu þá njarðarvött fullan
r.f ediki á ísópslegg og báru honum
að munni.“ I>á er komið að hámarki
píslarleiksins. Konan með skikkjuna
dregna yfir höfuð er María Guðs-
móðir, og stendur hún á milli þeirra
Jóhannesar síðar guðspjallamanns og
Maríu Magdalenu. Þessi liluti leiksins
er mesta raunin fyrir þann sem leik-
ur Krist, því á krossinum verður
hann að lianga í rúmar tuttugu mín-
útur. Hendurnar eru bundnar við
þvertréð með gagnsæjum plastbönd-
um, og þar að auki er krossinn með
fótstalli, en þeirra þæginda hefur
Kristur varla notið sjálfur á sínum
tíma.
4 Þorpið Oberammergau stendur í
Alpaumhverfi eins og það getur feg-
urst verið. Fyrir utan frægðina af
leiknum hefur aðsóknin að honum í
för með sér mikla efnahagslega bú-
bót. Reiknað er með að gróðinn af
leiknum þetta ár nemi átján milljón-
um marka.
Við þorpskirkjuna í Oberammergau,
fyrir píslarleikinn. Sá með hvíta
skeggið er Doepfner kardínáli.
é Fjögur eru þau hlutverk í leiknum,
sem athyglin beinist einkum að, og
þá fyrst og fremst að Kristi sjálfum.
Dr. Fischer leggur álierzlu á að túlka
hr.nn sem nokkuð hörkulegri persónu
en til þessa hefur verið siður.
31-tbl- VIKAN 49