Vikan - 30.07.1970, Qupperneq 46
í hugum kaþólskra
Þjóðverja skipar píslarleik-
urinn í Oberammergau
nokkuð hliðstætt rúm og
Passíusálmarnir hjá íslend-
ingum, enda f jallar hvort-
tveggja um sama efni.
Árið 1634 náði skæð drepsótt
til þorpsins Oberammergau í
þýzku Ölpunum. Skelfingu lostn-
ir gerðu þorpsbúar það heit að
færa pínu og dauða Frelsarans
á leiksvið tíunda hvert ár, svo
fremi Drottinn léti plágunni
linna. Og bænir þeirra voru
heyrðar; engir í þorpinu dóu úr
pestinni eftir að heitið var gert.
Við það hafa þorpsbúar svo stað-
ið allt til þessa dags, og á þessu
ári er pislarleikurinn færður upp
í þrítugasta og sjötta skiptið.
Alls verða sýningarnar á leikn-
um hundrað og ein, og aðsókn
hefur verið meiri en nokkru
sinni fyrr. Allir miðar á sýning-
arnar seldust löngu fyrirfram,
„En einn af hermönnunum lagði
spjóti í síðu hans, og jafnskjótt kom
út blóð og vatn.“ Þá er liðið að lok-
um píslarleiksins, en hann stendur
yfir í hálfu sjöttu klukkustund.
en þeir voru alls yfir hálf mill-
jón að tölu. Segja má að allt
þorpið taki þátt í leiknum, en
íbúar þess eru aðeins fimm þús-
und.
í þetta sinn hefur nokkra at-
hygli vakið sú gagnrýni að leik-
urinn sé mengaður Gyðinga-
hatri, og mun rétt vera að í honum
gæti þess miðaldalega skilnings
á píslarsögunni, sem raunar er
nægur fótur fyrir í guðspjöllun-
um, að Gyðingar séu skúrkarn-
ir í henni. Þessarar gagnrýni
gætti einnig þegar leikurinn var
sýndur 1960. Er bent á í því
sambandi að foringinn heitinn
hafi lýst velþóknun sinni á þessu
sjónarspili og þess krafist að
leiktextanum verði breytt, þann-
ig að öll hnýfilyrði gegn Gyðing-
um falli úr. En því hafa íbúar
Framhald á bls. 50.
Píslarleikurinn í
Oberammergau
46 VIKAN 31tbl-