Vikan


Vikan - 30.07.1970, Síða 50

Vikan - 30.07.1970, Síða 50
VERÐIÐ BRÚN - BRENNIÐ EKKI Fáanlegar COPPERTONE vörur eru: COPPERTONE Lotion, COPPERTONE Oil, COPPERTONE Oil Spray, COPPERTONE Tanning Butter, COPPERTONE Tanning Butter Spray, COPPERTONE Shade. COPPERTONE NOSKOTE, COPPERTONE Liphoa, COPPERTONE quick TAN. HEILDVERZLUNIN ÝMIR SF., símar 14191, 11193 og HARALDUR ÁRNASON, HEILDVERZLUN H.F., símar 15583, 13255. NOTIÐ COPPERTONE Píslarleikurinn Framhald af bls. 46. Oberammergau harðneitað, þar eð þeir telji að þá myndi leikurinn missa sinn rétta, upp- runalega anda. Þeir hafa hlotið stuðning Doepfners kardínála í Miinchen, sem mun vera einhver mestur kaþólskur kirkjuhöfð- ingi í Þýzkalandi. Hann hefur sagt að það séu herfilegustu öfgar að halda því fram að leikurinn innihaldi Gyðingahatur. ☆ Arfur og örlög Framhald af bls. 33 Mér leið betur, er ég var setzt á svölum hótelsins og horfði yfir fljótið. Ég ákvað að senda Dan póstkort og gekk því fljótlega til söluturnsins. Á leiðinni sá ég miðaldra karl- mann, sem söng einn sins liðs og var greini- lega ölvaður. En þegar ég heyrði orðin, sem hann' söng, hrærðist strengur í hjarta mínu. Þetta var skozkt danslag og textinn á óbjag- aðri skozku. Þetta stóðst ég ekki og gekk því að borðinu hans, en á því voru nokkur tóm glös. Hann leit upp þegar ég nálgaðist og brosti þunglyndislega til mín. — Hvað viljið þér? spurði hann og sló annarri hendinni út. Hann talaði á mjúkri hálandsskozku, sem minnti mig á víðfeðm heiðalönd og þokubakka við sj óndeildarhr ing. Ég settist við borðið og svaraði: — Þér ættuð að skammast yðar. Þér eruð dauða- drukkinn. — Já, ég er það, sagði hann drafandi röddu. —- Hvað viljið þér? Hann gaf þjóninum merki, og hann stillti fyrir framan okkur tveim koníaksglösum. Eg fann á öllu, að ég mundi neyðast til að fylgja manninum til hótels síns, úr því hann reyndist svona á sig kominn. Þessi samlandi minn var Hálendingur, en með greinilegt gyðingsútlit. Hann var hár og grannur, andlitið langleitt og smátt, nef- ið myndarlegt. Andlitið var alsett skörpum dráttum eða hrukkum og hárið þétt og grá- sprengt. Hann gat vel hafa verið um hálf- sextugt. Hann hélt áfram að brosa þunglyndislega til mín, og ég sagði snefsin: — Það er fal- legt ástand, sem þér eruð kominn í. Hvern- ig ætlið þér að komast heim? — Það hef ég ekki hugmynd um, svaraði hann og brosti breitt. — Hvað má bjóða yð- ur? — Þjónninn er búinn að koma. Sáuð þér það ekki? — Ah, sagði hann og góndi á koníaksglas- ið, dró það að sér og tæmdi í einum teig. Síðan kastaði hann tómu glasinu yfir öxl sér, svo það brotnaði í steinveggnum. Þegar ég sagði þurrlega, að ég vonaði að hann hefði peninga til að borga fyrir sig, varð hann fýlulegur á svipinn og henti lófa- fyili af mynt á borðið. — Ég er Crouner Gunn, sagði hann. Þetta var hlægilegt. .Engin manneskja heitir Crouner, því þetta er nafnið á em- bættismanni þeim, sem hefur líkskoðanir með höndum. — Það stemmir ekki, svaraði ég. — Ég er kallaður Crouner Gunn, sagði hann hranalega. -—- Og einn af forfeðrum mínum var nefndur það sama. Hann var myrtur af Keith-unum, þeim vesölu þrjót- um.... — Heyrðu nu, herra Gunn.... Crouner Gunn. Viljið þér heyra ættar- sögu mína? Framhald í næsta blaði. Marraco Framhald af bls. 28 — Setjum nú svo, að maðurinn þinn hefði séð mig, sagði ég. Hún svaraði: — O, skítt með það! — Hvað? Hefði það ekki verið hættulegt? Er hann kannski ekki nógu sterkur, þessi risi? Hann hefði ekki þurft annað en beygja sig til þess að sjá mig. Hún hló ekki lengur, en brosti þó og horfði á mig sínum stóru augum. — Hann mundi ekki hafa beygt sig, sagði hún. — Nú? Ekki það? Setjum nú svo til dæmis, að hann hefði misst hatt- inn sinn á gólfið. ITefði hann þá ekki fengið leyfi til þess að beygja sig og taka hann upp? Ja, það hefði verið dáiaglegt! Hún lagði armana á öxl mér, stundi og hvíslaði að mér: — Hann hefði að minnsta kosti ekki staðið upp aftur! Og nú hef ég lýst fýrir þér, kæri vinur, hvernig litið er á skyldur hjóna- bandsins, ást og gestrisni í þessum hluta veraldarinnar. ☆ .50 VIKAN 31-tbl'

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.