Vikan - 30.07.1970, Síða 36
★ SUMARIÐ ER KOMIÐ
★ NJÓTIÐ HVERS EINASTA DAGS.
★ 0. b. HJÁLPAR YÐUR TIL ÞESS.
0. b. NORMAL - 0. b. PLUS - 0. b. EXTRA.
0. b. ER NOTAÐ INNVORTIS.
KristiáBssen h.1.
12800-14878.
Blökkumaðurinn sem
er borgarstjóri
Framhald af bls. 11
eí' prófessorarnir hefðu komizt
að því. En við græddum svo-
lítið á hverjum kappleik, og
einhvernveginn urðum við að
vinna íyrir mat! Við gátum
ekki skrifað heim eftir vasa-
peningum. Skólaveran var
erfið, þótt ríkisstyrkurinn
nægði fyrir skólagjöldunum.
Hann setti viarlrið hátt.
Hinn ungi Carl átti langa
og eríiða skólagöngu. Móður
hans langaði til að veita hon-
um meiri menntun, eftir að
skyldunámi lauk, en hann
varð fljótlega að hætta í skóla,
vegna þess að ekki voru ráð
til að halda hann þar. Dreng-
urinn varð að vinna sitt til að
framfleyta fjölskyldunni, svo
hann tók sér vinnu hjá múr-
arafyrirtæki.
Þegar hann var átján ára,
og nægilega gamall til að
þjóna föðurlandi sínu, fór
hann til Þýzkalands, þar sem
lokaþáttur stríðsins var í full-
um gangi. Það varð upphafið.
Félagar hans í hernum
komu að þeirri lmgsun hjá
honurn, að halda áfram að afla
sér menntunar. Ilann hafði
safnað svolítilli peningaupp-
hæð og stjórnin veitti nokkra
styrki til þeirra, sem vildu
halda áfram skólanámi, eftir
stríðið. Hann hætti sem lið-
þjálfi og fór í East Tech há-
skólann og þaðan lauk hann
prófi í júní 1947.
Þá hafði hann ekki hugsað
sér néitt í þá áttina að gera
stjórnmál að ævistarfi sínu.
En tveim árum síðar komst
hann í kynni við stjórnmála-
baráttuna. I kosningunum
fylgdi hann einum frambjóð-
andanum frá einum ræðu-
stólnum til annars. Carl var
nefnilega bílstjórinn hans!
Og á bak við þetta bílstýri
tók hann örlagaríka ákvörð-
un. Hann ætlaði að snúa sér
að stjórnmálum fyrir alvöru.
Hann ætlaði ekki að gefast
upp fyrr en hann yrði borgar-
stjóri í fæðingarborg sinni.
Þá voru fáir, sem þekktu
betur vandamál borgarinnar.
Hann var sjálfur uppalinn við
þau! Hann var einn úr hinum
vaxandi minnihlutaflokki.
Hann vissi hvað sultur og at-
vinnuleysi var. Og hann hélt
sig vita hvernig bezt væri að
ráðast á þau vandamál.
En ennþá var langt í land.
Hann varð að fá betri mennt-
un, hann varð að fara aftur í
háskóla. Það gerði hann líka
og tók til við lögfræði við há-
skólann í Minnesota. Það var
þá, sem hann bætti tekjur sín-
ar með því að sýna box á bör-
um í blökkumannahverfinu,
en um helgar vann hann fyrir
sér sem þjónn í járnbrautar-
lest, til og frá Minneapolis.
Hann er vmnuþrœll
Hann hvarf aftur til Cleve-
land í lok fimmta tugarins og
setti upp lögfræðiskrifstofu
með Louis bróður sínum,
Stokes & Stokes. Árið 19G2
varð hann fyrsti þeldökki full-
trúi á löggjafarþingi Ohio
fylkis. Þar sat hann, þar til
hann var kjörinn borgarstjóri
í nóvember, árið 1967. Hann
var endurkjörinn í fyrra, eftir
mjög eftirtektarverðan feril í
starfi.
— En ennþá er margt
ógert, segir Stdkes. — Eg
þarf 8—10 ár, til að ná þeim
árangri, sem ég hefi sett mér
og ætla ekki að gefast upp
fyrr en í fulla hnefana.
Takmark hans er að skapa
borg, þar sem engin fátækra-
hverfi þekkjast. Ilann ætlar
að berjast gegn aukinni
glæpastarfsemi í Cleveland.
Hann ætlar að hreinsa til í
gömlu hverfunum og byggja
íbúðarbldkkir og skrifstofu-
byggingar og hann ætlar að
láta til skarar skríða í meng-
unarvandamálinu, sem gerir
Cleveland að einni af fimm
óhreinustu borgum í Banda-
ríkjunum. Áætlanir hans hafa
vakið mikla athygli, jafnvel
fyrir utan Bandaríkin.
Vinnudagur hans er óendan-
legur, sumpart vegna þess að
hann vill sjálfur vinna að
mestu vandamálunum, treyst-
ir ekki öðrum til þess. Og þau
mál, sem hann hefir á hjarta,
eru óendanleg.
Á skrifborði han liggur bibl-
ía í fallegu, bláu skinnbandi
og myndir af konu og börnum
hanga á veggnum á móti. Sím-
inn er grænn og silfursleginn
og hann er notaður óspart.
Blaðamenn eru stöðug plága
og hann reynir að losna við
eins marga af þeim og mögu-
legt er. Ilann reykir mikið, að
minnsta kosti 12 vindla á dag,
en ennþá hefir engum blaða-
Ijósmyndara heppnazt að taka
mynd af honum með vindil i
munninum.
— Feitur maður með feit-
an vindil í munninum, er
uppáhald skopteiknara, segir
hann. — Þeir njóta þess að
teikna og taka slíkar myndir
af stjórnmálamönnum. Eg vil
ekki komast í þann hóp. En
hann segir ekki að góðir vindl-
ar með fínu merki er stöðu-
tákn kvnbræðra hans.
Hann er mjög nákvæmur í
háttum og vali fatnaðar.
Hann er alltaf hæverskur og
mjög aðlaðandi. Hann veit að
ÞJóta
þotur
NOTIÐ hraðferðir Loftleiða heim-
an og heim.
þrjátíu þotuferðir á viku
til Evrópu og Ameríku.
NJÓTIÐ hagkvæmra greiðslukjara
Loftleiða.
NEYTIÐ góðgætisins, sem fram-
reitt er í Loftleiðaferðum.
WFTLEIDIR
86 VIKAN 31-tbl-