Vikan


Vikan - 17.09.1970, Blaðsíða 34

Vikan - 17.09.1970, Blaðsíða 34
Wiither hríhiól fást í þrem stærðum. Einnig reiShjól í öllum stærSum. ATHUGIÐ Ef þú ert aS byggja eSa þarft aS bæta og jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum viS þaS hagkvæmt aS líta viS hjá okkur, því aS sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verS. STJO RNUSPÁ^^ % Hrútsmerkið (21. marz — 20. apr(l): Þú helur á einhvern hátt dregið kjarkinn úr vini þínum svo hann hættir við ákveðnar framkvæmdir og er það miður. Þú heyrir um nýjung sem þú getur hagnýtt þér með mjög góðum árangri. Nautsmerkið (21. apríl -• 21. maí): Þú ert nokkuð djarfur i kröfum þínum á yinnustað og máttu búast við nokkrum óvinsældum af þeim sökum. Þú verður til að hjálpa kunningja þínum vegna þekkingar þinnar á ákveðnu sviði. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú kynnist nýju fólki sem hefur mjög þroskandi áhrif á þig. Sökum mistaka frá hálfu vinnufélaga þinna seinkar ákveðnu verki nokkuð. Þú hefur smitazt af einhverri söfnunarnáttúru. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú færð erfitt verkefni í hendurnar sem alls ekki mun verða útlátalaust af þinni hálfu. Það tekur þig langan tíma að losna frá því, en þú munt líka læra talsvert af því. Taktu lífinu með ró. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Það er nokkuð los á tilfinningum þínum og þú ert alls ekki viss um hvernig þú átt að haga þér. Fé- lagi þinn sýnir öfundsverða hæfileika sína og nýtur sín mjög í nánu samstarfi við þig. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Nokkuð sem þú ert löngu hættur að minnast kemur fram í dagsljósið á pý og fær þig til að breyta nokk- uð öðruvísi en þú hafðir ætlað þér. Þú munt eiga ánægjulegar samverustundir með rólegu fólki. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Lítið, afskekkt hús kemur nokkuð við sögu í vik- unni, fremur á eftirminnilegan hátt en skemmti- legan. Þú verður þátttakandi í einhverju manna- móti, sem kemur þér nokkuð undarlega fyrir sjónir. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú hefur oft horft með eftirsjá til þess tíma sem þú hefur eytt á ákveðnum stað, en þér verður þó alltaf betur og betur ljóst hversu mjög þú hefur í raun- inni grætt síðan. Eldri maður gerir þér greiða. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Maður í fjölskyldutengslum við þig gerir þér greiða sem þú nýtur þó ekki nema óbeint. Þú þarft að vinna sama verkefni fyrir persónu sem er mjög fljótfær og næsta torskilin, sem gerir þig ráðvilltan. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú færð tækifæri til að dást að hæfileikum eins kunningja þíns á ákveðnu sviði. Reyndu ekki að troða þér inn í hans hring, þér er miklu hollara að dást að honum en þykjast hafa sömu hæfileika. Vatnsberamerkið (21. janúar —' 19. febrúar): Ósjálfrátt og sígandi hefurðu dregizt út úr félaga- hópnum og eyðir frístundunum að mestu einn. Reyndu að endurvekja gamlan kunningsskap og vertu ekki of niðursokkinn í vinnu þína. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Líkur eru á að þú verðir fyrir einhverju fjárhags- legu tjóni sem ekki verður við ráðið. Þú færð tæki- færi til að þakka kunningja þínum fyrir drengilega aðstoð í erfiðri aðstöðu. Taktu þátt í ferðalagi. 34 VIKAN 38- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.