Vikan - 17.09.1970, Blaðsíða 9
smnmw
/ j
Fræg og vinsæl söngkona frönsk, Mireille
Mathieu, sem þekkt er undir
gælunafninu Parísarnæturgalinn, heimsótti
íran nýlega, dvaldi þar í tvo daga og
hélt söngskemmtanir viS mikið
hrós og lófaklapp Persanna. Ljón munu
nú útdauð í íran, og það hefur kannski
verið þess vegna að Mireille tók með sér
sex mánaða gamlan Ijónshvolp og
færði keisarahjónunum að gjöf. Fara
keisaradrottning, Resa krónprins
og Faranas prinsessa voru ákaflega hrifin af
þessu nýja húsdýri, eins og sjá má á
myndinni til vinstri. Að sjálfsögðu
var söngkonunni í staðinn boðið heim til
keisarahjónanna, og sést hún
með þeim á myndinni að neðan.
Þótt einhverjum kunni að finnast afsprengi
konungs dýranna nokkuð stórfenglegt
kjöltudýr, þá er Mireille Mathieu greinilega
hvergi smeyk. Og er hægt að hugsa sér
mátulegra húsdýr fyrir keisarafjölskyldu?
í Teheran hélt
Parísarnætur-
galinn tvær
söngskemmtan-
ir til styrktar
nýju barna-
heimili í borg-
inni. Hún
skipti um skrúða
fyrir hvern
söng, til vinstri
er hún í skó-
síðum skraut-
búningi
persneskum,
til hægri búin
eins og Parísar-
róni (Clochard).
Meðal áheyr-
enda voru móðir
Föru keisara-
drottningar og
Faranas prinsessa