Vikan


Vikan - 17.09.1970, Blaðsíða 41

Vikan - 17.09.1970, Blaðsíða 41
Day), hafði svikið loforð sitt vi<5 Manson, um að gefa út plötur með vísum hans. Charlie Man- son vissi að það voru komnir ný- ir leigjendur í villuna, en það skipti ekki máli. Þeir sem bjuggu í húsinu áttu að deyja, það hvíldi bölvun yfir húsinu. Lögreglumennirnir yfirheyrðu stúlkuna aftur og aftur og þá fóru línurnar að skýrast. Hún gat vísað á hvar morðingjarnir höfðu geymt blóðug föt sín eftir morðin og sýnt hvar byssan var falin. Hún sagði frá því að pilt- urinn, sem var þátttakandi í morðunum, hafði klifrað inn um glugga og opnað útidyrnar fyrir hinum, fingraför hans fundust á útidyrunum. Hún gat bent á stúlkuna, sem hafði elt Gibby Folger, enda fundust fingraför hennar líka á þeim dyrum. En hvernig var hægt að ráða við fimm manns? Merki voru um það, að að minnsta kosti Fry- kowski, hafði veitt mikla mót- spyrnu. Hvers vegna gátu þau ekki varið sig? Einn af vinum Sharon Tate hefur líklega kom- izt næst því að svara þessari spurningu: — Þau hljóta að hafa haldið að Sharon hefði fundið upp á einhverjum skringilegheitum, til að skemmta gestum sínum. Nú er Manson og nokkrir fylgifiskar hans daglega fyrir rétti, ásökuð um morðin á Shar- on Tate og gestum hennar, fyrir morðið á piltinum í hvíta bíln- um og morðin á hjónum LaBi- anca. Það var framið, segir Su- san Atkins, til þess að halda fólkinu við efnið, svo það færi ekki að leggjast í hugarvíl. Fimm dögum eftir morðið á Sharon Tate, var nafn hennar komið í auglýsingar með risa- bókstöfum. Það var hlaupið til að grafa upp myndir, sem hún hafði leikið í og þær gengu fyrir fullum húsum. Roman Polanski, sem kom heim til sín frá London, til að vera viðstaddur jarðarför konu sinnar, hélt blaðamannafund, þar sem hann ásakaði blaðamenn fyrir ósmekkleg skrif. Svo fékk blaðaljósmyndari frá Life að taka mynd af honum fyrir utan dyrnar á húsinu, þar sem morð- in voru framin. Til að forðast blaðaskrif gáfu dómstólarnir út skipun um það að enginn, sem við málið væri riðinn, mætti láta nokkuð, sem varðaði málið, í ljós. Þessi skip- un varð nokkuð einkennileg, þegar það fréttist að Susan At- kins hafði selt rétt til minninga sinna fyrir milljónir króna, enda til lítils fyrir þá sem ekki eiga annars kost en að láta lifið í gasklefa, að halda sér saman. Charlie Manson hlaut nð lok- um frægð. Hljómplötufyrirtæki nokkurt tók sig til og leitaði uppi segulbönd með tón-„list“ hans, til að gefa út á plötur.. . . ☆ Lögtaksmenn koma ... Framhald af bls. 17. Af hverju er ég ekki góð inni í mér? Eins og ég hef sagt ykkur áð- ur, er ég konan hans Jóns Jóns- sonar og hann Jón Jónsson er maðurinn minn. Ég hef víst líka nefnt það lítillega, að lögtaks- menn koma á laugardagsmorgn- um. Ég var rétt nývöknuð og sat á stólnum mínum við stóra borð- ið, vafði sloppnum fastar utan um náttkjólinn, en inni í nátt- kjólnum var ég. Ég ætlaði ein- mitt að fara að flýja inn í jóla- landið, þegar bjallan hringdi og hjartað í mér tók viðbragð. Þetta eru lögtaksmennirnir, hugsaði ég. Þeir koma alltaf á laugardagsmorgnum. Ég opnaði dyrnar og fyrir framan þær stóð lítill, visinn maður. Hann hafði stór eyru. Þau stóðu út frá höfðinu á stilk- um líkt og blóm. Þau minntu mig á eyrun á Dúmbó, fílnum sem gat flogið. Skyldi maðurinn reiðast, ef ég bæði hann að blaka eyrunum bara einu sinni, svona rétt til að sjá, hvort hann gæti flogið? Hann gerði það. Blakaði eyrunum, ég ég við, og svei mér, ef hann lyftist ekki eins og einn fjórða úr milli- metra frá gólfi. Svo talaði hann. Þetta var í fyrsta skipti, sem ég hafði heyrt hann tala. Hann hafði djúpa rödd en ekki skræka eins og hrægammur. „Ég er lögtaksmaður,“ sagði hann. „Rétt að komast á eftir- laun. Mig vantar herbergi.“ „En ég hef ekkert herbergi til leigu,“ sagði ég og hugsaði um stofuna og svefnherbergið, þar sem við sváfum öll fimm, Jón minn Jónsson, börnin tvö og ég og ég inni i mér. Hann blakaði aftur með eyr- unum og bláleitar varir hans brostu til mín. Það var fýla af honum. Ég hafði fundið hana einu sinni áður, á Akureyri. Fýla af þeim sem sefur í fötun- um, fer ekki í bað og reykir daunillt tóbak. Hann gekk framhjá mér og settist. „Ég kom með fötip mín með mér,“ sagði lögtaksmaðurinn. „Ég ætla að vera hér. Ég ætla að vernda þig.“ Ég hristi höfuðið og lét mig inni í mér svara, af því að ég sjálf er svo hroðasvakaaga- hryllihræðilega meir og mild. „Fyrir hverju ættuð þér að vernda mig?“ spurði ég. „Fyrir öðrum lögtaksmönn- um,“ sagði litli lögtaksmaðurinn sigrihrósandi og dró upp lögtaks- úrskurð og veifaði honum fram- an í mig. „Ég hef hérna úrskurð, sem leyfir mér og mér einum að koma sem lögtaksmaður á laug- ardagsmorgnum. Ef ég sezt að hérna hjá þér, koma engir lög- taksmenn framar. Þá þarftu ekki að stofna til kosninga og láta afnema laugardagsmorgna.“ Nú skein sólin svartar, kuld- inn var heitari, sykurinn saltari og kanellinn líktist engifer. Þá fór hrollur um mig og ég vafði sloppinum fastar að nátt- kjólnum. Augun í mér urðu fægð og gljáandi eins og sæbarið gler. Grænt og glært gler. „Þú ert vitlaus,“ sagði ég inni í mér. „Það getur enginn verið vit- lausari en þú,“ sagði litli lög- taksmaðurinn. „Ég hef fylgzt með þér lengi. Þú gleymir að draga fyrir gluggana. Mig hefur alltaf langað til að eignast dótt- ur og í þér fæ ég tvær. Það ert þú og þú sem ert inni í þér.“ Ég starði á litla lögtaksmann- inn. Hvernig gat hann vitað um mig inni í mér? Ég hafði engum sagt frá henni, ekki einu sinni Jóni mínum Jónssyni. „Ég hef horft á þig í myrkr- inu, því myrkrið hlífir betur augum gamals manns. Þú ert góð og mild og blíð og hún sem er inni í þér er óð, framhleypin og frek. Þið verðið dætur mín- ar báðar tvær og ég verð faðir ykkar á himnum og vernda ykk- ur alltaf gegn lögtaksmönnum og laugardagsmorgnum. Blóðið þrumaði í höfðinu á mér. Það óx og það stækkaði og ætlaði að sprengja mig sundur og saman eins - og kjarnorku- sprengja sprengdi Hírósíma og skildi hana eftir blæðandi flak. „Nei!“ sagði ég. „Það eru tak- mörk fyrir því, hvað lögtaks- menn geta leyft sér. Þú flytur ekki hingað inn.“ Ég starði dáleidd á það, hvernig hann blakaði eyrunum. Þessum stóru, stóru eyrum, sem stóðu á stilkum út frá höfðinu og gerðu hann líkan fílnum Dúmbó. Hann lyftist eins og hálfan millimetra af stólnum við stóra borðið. Skyldi hann vita, að hann get- ur flogið? Ég ætlaði aldrei að segja honum það. Aldrei! „Þú ræður vitanlega,“ sagði hann og dró stórt skjal upp úr vasa sínum. „Ég er hér með lög- taksúrskurð fyrir þér og henni sem er inni í þér. Ef ég fæ ekki herbergið, ætla ég að taka þig og hana sem er inni í þér upp í skuldina. Ef ég kem hingað og verð faðir þinn, get ég verndað þig og séð um að enginn taki þig frá mér.“ Hann andvarpaði og stundi og hristi hausinn. „Ef þú neitar, tek ég þig með, og þú kemur aldrei aftur.“ Bláeyg, litla dóttir mín, stóð í gættinni og veinaði. Hún hljóp til mín. „Láttu hann ekki taka þig, mamma,“ veinaði hún. „Þú mátt aldrei, aldrei, aldrei fara frá mér.“ Hvað gat ég gert? Hvað gat ég inni í mér gert? Bláeyg fór hún aftur að sofa og maðurinn með útstæðu eyrun flutti inn í svefn- herbergið. Hann vildi fá skáp- ana. Hann setti okkur öll í stof- una. Mig, Jón minn Jónsson, börnin tvö og mig inni í mér. Hann þoldi engan hávaða. Hann bannaði okkur að hlusta á útvarpið, að horfa á sjónvarpið. Hann lét taka símann úr sam- bandi, því að hann hringdi. Hann þoldi ekki börnin. Hann þoldi ekki hreint loft, ekki ljós. Gluggatjöldin voru alltaf dreg- in fyrir og allir gluggar lokaðir. Einu sinni ARRA aftur og aftur... SMJÖRLÍKISGERÐ AKUREYRAR HF. UMBOÐSMENN: JOHN LINDSAY. Sími 26400. KARL OG BIRGIR. Sími 40620 38. tbi. VIKAN 41

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.