Vikan


Vikan - 17.09.1970, Blaðsíða 48

Vikan - 17.09.1970, Blaðsíða 48
MIOA PREIMTUN HILMIR HF SKIPHOLTI 33 - SÍMI 35320 mannslífum var í minnsta lagi. Dag einn kom til okkar flokk- stjóri rússneskra nauðungar- vinnumanna, sem höfðu um hríð búið hjá okkur Norðmönnunum og notið af okkar hálfu aðhlynn- ingar sem þeir höfðu ekki átt að venjast annars staðar. Rúss- inn vildi sýna okkur einhvern þakklætisvott og afhenti okkur stóran bút af silkiklæði. Hvernig hafði hann eignazt þetta? spurð- um við. Nú, hann hafði einfald- lega drepið eigandann, sem var Þjóðverji. Dapurleg heimkoma Um síðir náðum við í fólks- flutningavagn og sluppum eftir mikið þvarg gegnum varðlínur Sovétmanna til brezka hernáms- svæðisins. Við fórum til Ham- borgar, sem brezki flugherinn hafði svo að segja jafnað við jörðu. Meðan við vorum þar stilltu Bandaríkjamenn þar út geysistórum myndum úr ein- angrunarfangabúðum nasista. Þær höfðu sterk áhrif á Þjóð- verjana, en ekki þau sömu á þá alla. Sumir grétu í allra augsýn. Aðrir urðu öskuvondir og vís- uðu þessu öllu á bug sem lyga- áróðri bandamanna. Við fórum heim gegnum Dan- mörku, þar sem við fengum okk- ar fyrstu almennilegu máltíð- í mörg ár. Enginn tók á móti okk- ur við komuna til Noregs. Það voru meðlimirnir í andspyrnu- hreyfingunni heima fyrir sem voru hetjur dagsins — að hafa setið í stríðsfangabúðum var lít- ið betra en föðurlandssvik, eða svo var helzt að skilja á mörg- um. Aðeins fáum mánuðum eftir að Tancred Ibsen losnaði úr klóm Þjóðverja var hann aftur farinn að vinna af fullum krafti. — Ég taldi að fólk væri orðið svo satt á neyð og eymd að ég ákvað að gera gamanmynd, sem ég nefndi „Et spökelse forelsker seg“ (Draugur verður ástfang- inn). Hún náði takmörkuðum vinsældum. Blöðin bentu á að 1946 væri ekki rétta árið fyrir slíka mynd, og ég gat ekki sagt annað en að þar hefðu þau nokk- uð til síns máls. Fleiri myndir Frá því stríðinu lauk hefur Tancred Ibsen gert nokkrar nýj- ar kvikmyndir. 1948 kom „Den hemmelighetsfulle leiligheten", og 1963 „Vildanden". Það ár varð höfundur sjötugur. 1951 kom „Storfolk og sma- folk“. 1960 var frumsýnd „Vánn- er“, gerð eftir samnefndri skáld- sögu Arnulfs Överlands. Hún var sú af myndum Ibsens sem gagn- rýnendurnir tóku hvað bezt, þótt einhverjar aðrar hafi kannski dregið að fleiri áhorfendur. Hún var sýnd á kvikmyndahútíð í Berlín. Við það tækifæri flutti þáverandi borgarstjóri þar, Willy Brandt, ávarp, og Berlín- arbúarnir stóðu í biðröð til að- ná í miða. Sú sýning var með öðru pólitískur viðburður, því að hún átti sér stað í Austur-Ber- lín. Þjóðverjunum líkaði mynd- in vel og þýzkt kvikrayndafé- lag vildi ráða Ibsen til frekara starfs þar í landi. En hann vildi heldur snúa heim til Noregs og ljúka við „Vildanden“. Ein kvikmynd Ibsens, sú sem sumir segja þá beztu er hann hafi nokkurn tíma gert, hefur aldrei verið sýnd opinberlega. Norsk Film A.S. framleiddi hana 1950 eftir skáldsögu eftir Gunn- ar Larsen, sem samin hafði ver- ið með lénsmannsmorðin í Ádal á fjórða áratug aldarinnar í huga. Kvikmyndin var látin heita „To mistenkelige person- er“ (Tvær grunsamlegar persón- ur), en gagnstætt bókinni var hún álitin persónulega meiðandi og bönnuð af hæstarétti Noregs. í kvikmyndinni var hinn dæmdi þó sýknaður. Þær fjölmörgu kvikmyndir sem Tancred Ibsen hefur lagt nafn sitt við eru mjög mismun- andi hvað snertir form og efni. Þar á meðal eru heimildarkvik- myndir, eins og sú um olympísku vetrarleikana í Osló, sálfræðileg, dramatísk leikverk og gaman- leikir. Þær eru það drjúgur hluti af öllu kvikmyndasafni Norð- manna að höfundur þeirra verð- ur að teljast með merkustu mönnum í sögu kvikmyndagerð- ar Noregs. Hann er líka sá eini sem orðið hefur fyrstu gráðu riddari af orðu Ólafs helga, út á kvikmyndastörf. Tancred Ibsen er ennþá eng- an veginn setztur í helgan stein, þótt hann eigi skammt í áttrætt. Hann gerir stöðugt nýjar áætl- anir og handrit. Það er aðeins eitt, sem hann hefur aldrei gef- ið sér tíma til í sínu viðburða- ríka lífi: að líta um öxl — á sitt eigið líf. Kannski það verði eitt þeirra verka sem hann á eftir. Því að æviferill hans býður svo sannarlega upp á efni í eina góða kvikmynd ef ekki fleiri. EFTIR HIPUS — Auðvitað hjálpa ég til við garð- yrkiuna, ég fer inn og bið guð um regn! Mjög ber á því, aö Jóhann Hafstein þrái atliygli og frægð i hverjum þeim leik, sem er honum skemmtileg- ur og Jiugstæður. í því efni býr hann að rótgrónum barnsvana. Ungum sveini norður á Húsavík þótti hon- um liarla gaman að knatt- spyrnu. Hann lagði svo rílva stund á þá íþrótt, að furðu gegndi. Jóhann telst atvinnu- stjórnmálamaður, sem er nautn og yndi að keppa um vegtyllur og mannvirðingar og Jeggur sig fram i þeirri viðleitni á sama liátt og í liði Völsunga í átthögunum við Skjálfanda forðum. Óvildar- menn lians ætla, að liannJtafi fyrirhafnarlaust hreppt þing- mennsku, banlvastjórastöðu og ráðherradóm, en honum veittist allt þetta af því að hann ágirnist öll metorð, sem standa til boða. Raunar má Jvalla farsæld Jians heppni, en enginn vinnur í spilum nema gefa lcost á sér til þátttöku, og árangur Jó- lianns Hafsteins slafar af því, að liann setur sér liátt mark og lcýs lilut sinn mikinn. Keppinautar stjaka honum og ógjarnan til liliðar, þó að liann stilli slcap sitt og temji sér snotra lcurteisi. Jóhanni Hafstein er lílct að sitja fast í sæti fyrst liann er Jvominn undir stýri á skraut- vagni Sjálfstæðisflolcksins. Honum mun geðfellt að alca dýrum og gljáum farlvosti eftir þjóðbraut. Öndóttur og Framhald af bls. 25. landsfeðrum Jeyfist aðeins í einrúmi. Þeir, sem á sJílcu Jmeykslast í fari lians, vita liins vegar elcki, hvað tillærð sýndarmennska er ólioll næmum og spenntum taug- um. liáleitur kreppir liann sjálf- sagl mjúkar og snyrtar hend- ur um stýrið og liyggst leggja upp í fræga langferð. Hitt er annað mál, livort liann á- kveður liraðann og stefnuna úti á veginum. Lúpus. 48 VIKAN ss. tbi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.