Vikan


Vikan - 05.11.1970, Blaðsíða 32

Vikan - 05.11.1970, Blaðsíða 32
B Ú s L w O Ð HVÍLDARSTÓLL ac I B Ú S L w O Ð HÚSGAGNAVERZLUN VIÐ NÓATÚN — SfMI 18520 RAFHA eldavél, gerð 2650, með föstum hellum, 30 ára reynsla. - ÓDÝRASTA RAFMAGNSELDAVÉLIN á markaðinum. - Heim- keyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ ÖÐINSTORG - SiMI 10322 MIG DREYMDI „Ekki nógu góSur handa þér“ Kæri draumráðandi! Mig dreymdi nú fyrir skömmu að ég væri með strák sem er 21 árs, en sjálf er ég aðeins 18 ára. Ég kom inn til pabba og spurði hann hvenær hann og mamma hefðu gift sig, og sagði hann að hún hefði verið 19 ára en hann 20. Þá sagði ég honum að ég ætl- aði að fara að gifta mig og vildi pabbi fá að vita hver hann væri. Ég sagði að hann væri í herberg- inu hjá mér og er ég hafði kall- að á hann, lýsti pabbi því yfir að hann væri ekki nógu fínn handa mér. Kær kveðja. Dísa Karlsdóttir. P.S. Hvernig er skriftin? Þú munt lenda í einhverri hættu, sem pabbi þinn mun árangurs- laust reyna að vara þig við. Xaktu því ráðum hans í einu og öllu (án þess þó að glata sjálf- stæði þínu), og þá mun þér farn- ast betur. Skriftin er vel læsileg, en mjög óþroskuð og málvillur oft bagalegar. Maður segir til dæm- ist ekki „ég dreymdi", heldur „mig dreymdi“. Opin botlangaskurður og heilög Jóhanna Kæri þáttur! Ég ætla að bíðja þig að ráða fyrir mig tvo drauma sem rnig dreymdi í nótt. Mér fannst ég vera í Keflavík á gangi, þegar ég fékk skyndi- lega mikinn verk í magann, þar sem botnlangaskurðurinn er. Eg flýtti mér heim, og þá sá ég að skurðurinn var opinn, og blæddi úr. Ég þaut af stað niður á sjúkrahús en þegar þangað kom sá ég að það stóð í Ijósum log- um, og fyrir utan stóð hjúkrun- arkona og sagði mér að fara á sjúkrahúsið á Akranesi. Ég tók mér bíl þangað en þegar ég kom þar, sagði hjúkrunarkonan þar mér að allt væri yfirfullt og setti svo plástur á sárið. Hinn draumurinn er svona: Mig dreymdi að ég færi með loftskipi, ásamt mörgum öðrum. Við fórum upp í öræfi og kom- um þar að umgirtri borg eða þorpi. Þar fyrir utan stóð heilög Jóhanna og eitthvað fleira fólk sem ég man ekki eftir. Allt í einu kemur til mín kona með dreng, tveggja til fjögurra ára og var hann með kolsvart hár. Hún biður mig að taka hann í fóstur og réttir mér 100 dollara. Meira væri ekki til, en ég ætti að nota þetta til að kaupa föt á hann. Ég gaf henni heimilisfang mitt, tek strákinn og fer með hann í þorp úti á landi, þar sem foreldrar mínir búa. Þar voru dætur mínar tvær, tveggja ára og 9 mánaða gamlar. Ég man ekki mikið meira, en þó man ég það að foreldrar mín- ir hristu hausinn þegar þau sáu drenginn og ég hafði sagt þeim frá málavöxtum. Með fyrirfram þakklæti. Kamelj ómf rúin. Opið sár er venjulega fyrir út- gjöldum, og að sjá blóð renna merkir slysfarir. Því viljum við ráðleggja þér að fara varlega í einu og öllu sem þú tekur þér fyrir hendur, og eins skaltu brýna það sama fyrir öllum sem þú þekkir og umgengst. Síðari draumurinn er þér einn- ig fyrir erfiðleikum, en það er mjög gott að dreyma nafnið „Jó- hanna“, og því togast hið góða og illa mjög á í þeim draumi. Því viljum við spá að þú verðir vöruð við erfiðleikum sem þú ert að ana út í —- og í tíma. Varðandi „pé-essið“ þá ætt- irðu að spyrja sjálfa þig hvort þér finnist „Jóhanna“ svo ægi- Iega Ijótt nafn? Framtíð þín virðist hins veg- ar nokkuð óljós. Hárlitun Kæri draumráðandi! Mig dreymdi skrítinn draum um daginn, og langar til að fá hann ráðinn. Mér fannst ég og vinkona mín vera á stórri úti- samkomu, sem reyndar átti að vera bindindismót. Allir verð- irnir voru fullir, svo það varð að fá menn úr lúðrasveitinni til að taka að sér gæzlu, en það er kannske rétt að taka fram að þeir einu sem voru fullir voru verðirnir. Svo kom þarna mað- ur með lítinn strák og glas í hendinni, og segir: — Sjáið þið hárið á honum, finnst ykkar það ekki fallegt? — Þá segir vinkona mín: — Á nú að fara að pranga inn á mann einhverjum háralit? — Nei, segir þá einhver strák- ur við hliðina á okkur, — það á að neyða okkur til að lita á okk- ur hárið. f því kemur maðurinn og tveir strákar með honum, og segja: — Jæia, komið þið með hárið. Eg vildi það alls ekki og neitaði en vinkona mín ætlaði að láta und- an þeim. Þá hljóp ég inn um ein- hverjar dyr og niður marga stiga, en þá kallaði vinkona mín í mig og sagði mér að koma. Eg 32 VIKAN «. tbi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.