Vikan


Vikan - 05.11.1970, Blaðsíða 50

Vikan - 05.11.1970, Blaðsíða 50
allt var svo einlægt í kringum mig að ég réði varla við mig. Það lá meira að segja við að ég færi að gráta á hljómleikum þar með Arthur Lee, því mér fannst þetta allt svo fallegt og stórkost- legt. Þá hélt ég að ég væri að verða vitlaus, því þremur árum áður hafði ég verið að væla yfir Sonný Boy Williamson; nú gat ég ekki lengur sætt mig við gamla og góða bluesinn. Og þremur árum áður en ég hafði verið svo upphrifinn yfir Sonny Boy, hafði ég grátið af barns- legri gleði á meðan ég söng í kirkjukórnum heima hjá mér í Kidderminster. Allt þetta, öll mín fyrri reynsla, finnst mér vera komin saman og sameinuð á dásamleg- an hátt, á LED ZEPPELIN III. Nú hef ég grátið þrisvar af ein- skærri gleði og elsku og nú finnst mér sem ég ætli að fara að gráta í fjórða sinn. Ég hef lát- ið svo um mælt, að ég hafi aldrei reiknað með að ég yrði ánægður í Led Zeppelin, en nú er ég það svo sannarlega því að LZ III er ég og hinir þrír. — Hvernig varð þér við þeg- ar Jimmy (Page) bað þig að vera með sér í hljómsveit? — Hann gerði það nú eigin- lega ekki, heldur var ég hættur í „Band of Joy 3“, og farinn að syngja með Alexis Korner, þegar þeir sögðu við mig: — Farðu og heimsæktu Jimmy Page. Vertu þar í viku og vittu hvernig þér líkar. Ég gerði það og einn daginn þegar Jimmy var ekki heima, fór ég að spila plötur og tók út dálítinn stafla. Þegar Jimmy kom heim hló hann hátt og lengi, því þetta voru einmitt sömu plöturnar og hann hafði ætlað að spila fyrir mig þegar hann kæmi. Eftir það var eng- inn vafi á því að við ætluðum að vinna saman og síðan höfum við gert það ----- með allsæmi- legum árangri, held ég að mér sé óhætt að segja. Það er ekki rétt að Jimmy eða ég ráði algjöriega því sem er gert í hljómsveitinni, við vinnum allir saman. Það vorum til dæm- is við tveir sem útsettum „Babe, I‘m gonna leave you“. Nei, ég veit að á plötunni sjálfri stend- ur aðeins að J. Page hafi gert það, því um það leyti var ég á samningi við annað fyrirtæki og því mátti ekki koma fram að ég hefði gert það líka. Um sama leyti vissi ég að Jeff Beck var að hugsa um að fá mig með sér, og hefði ég ekki hitt Jimmy hefði ég sennilega sleg- izt í hópinn með Jeff. Þá hefðu málin sennilega orðið eitthvað öðruvísi en þau eru nú. —- Hverjar voru framtíðar- horfur Led Zeppelin til að byrja meí; ætluðuff þiff alltaf aff byrja á Bandaríkjunum? — Nei, alls ekki. Þegar við byrjuðum var alveg eins og við værum að stofna hljómsveit. Við vorum mest að spekúlera í hverja við gætum fengið með okkur. Við þurftum til dæmis trommuleikara sem var nógu fastur og ákveðinn og sá eini sem ég gat látið mér detta í hug var sá sem ég hafði spilað með í mörg ár, sem sé John Bonham. Nú væri vonlaust fyrir okkur að ætla að fá annan trommuleikara, því John er sá eini sem getur fylgt okkur eftir og frískað upp á það sem við erum að gera. — Þekkti Jimmy John áffur en þiff fenguff hann meff ykkur? — Nei, það vissi enginn hver John var. Hann hafði bara ver- ið með mér í „Band of Joy“ þar tii eg fór yfir í Alexis Korner, en þá gekk hann í lið með Tim Rose. Mér fannst ekkert koma til greina en að fá John með okkur, svo ég leitaði hann uppi og sagði: — Heyrðu, þú verður að ganga í Yardbirds! en þá vor- um við ekki enn búnir að finna nafn á hljómsveitina. John horfði á mig og svaraði: — Hvað, er ég ekki ágætlega settur hér? Ég varð að reyna að sveigja hann til, og til þess hafði ég ekkert nema nafn sem hafði dá- ið út fyrir löngu síðan, the Yardbirds. Loksins tókst mér að fá hann til að koma, og um svipað leyti komst John Paul Jones að því að hann vildi fara að spila i hljómsveit en ekki bara í stúdíó- um. Ég hafði aldrei séð hann fyrr en á fyrstu æfingunni og þetta var svo gaman að við gát- umekki hætt. Það fyrsta sem við æfðum var gamalt lag sem Gar- nett Mimms hafði gert vinsælt, „As Long As I Have You“. Það hefur tekið okkur langan tíma að læra að þekkja inn á hvern annan, en það er náttúr- lega frumskilyrði þess að við getum gert einhverja góða hluti saman. — Nú urffuð þiff fyrst þekktir í Bandaríkjunum, hvernig stóff á því? Þiff eruff jú allir brezkir. — Það vildi nú bara eiginlega þannig til. Við vorum búnir að reyna að brjóta okkur leið hér í Englandi nokkrum sinnum undir nafninu Led Zeppelin, en við vorum alltaf bókaðir undir nafninu „the New Yardbirds", og fólkið sem kom hafði hlust- að á Yardbirds fjórum árum áð- ur og varð þess vegna fyrir von- brigðum með okkur, því við vorum svo ólíkir Yardbirds; við, með lög eins og „Communicati- on Breakdown". Við eigum Bandaríkjamönnum í rauninni allt að þakka, því þeir vildu bóka okkur undir réttu nafni. Þar þekktu allir Jimmy og við þurftum ekki að treysta á gamalt og útjaskað nafn. — Nú gekk ykkur mjög vel á Bath-hátíffinni. Hverju þakkar þú þaff? (LZ fóru beint þangað eftir að þeir höfðu verið hér á íslandi). — Sennilega því að við höfð- um svo lítið spilað í Bretlandi áður, engir sjónvarps- eða út- varpsþættir, bara tvær plötur. Fólk hefur sennilega hugsað með sér: — Ja, ég hef aldrei heyrt í þeim nema á plötu, svo það or bezt að fylgjast vel með þeim núna. — Þaff hlýtur að hafa veriff undarleg tilfinning fyrir þig aff vera bókaffur stærra númer en hljómsveitir sem þú hefur alltaf haft dálæti á, eins og til dæmis Byrds og Jefferson Airplane. — Já, en ég fann ekki til neinnar sektar, því ástæðan fyr- ir því að við vorum settir efstir á blað, var sú, að ég held, að í kringum okkur var heilmikill leyndardómur, þar sem við höfð- um ekki spilað hér áður. En mér finnst við góðir. Frísk- ir og ferskir. Við spilum stund- um sama prógrammið kvöld eft- ir kvöld, en það er aldrei eins. Stundum byrjar Bonzo (John Bonham) eitthvað að „jamma“ og svo komum við inn í á eftir, þegar við erum tilbúnir. Svo förum við í gegnum alls konar frasa áður en við byrjum á sjálfu laginu. — Nú heyrir maffur sífelldar sögur um aff Led Zeppelin séu aff splundrast, en þú minntist á þaff áffan aff 3. LP-plata ykkar væri þér mjög aff skapi. Þýffir það aff hljómsveitin hættir ekki í bráff? — Það er aldrei hægt að segja . neitt ákveðið um hvað hver hlutur dugar lengi, en eins og er þá er allt mjög hagstætt. Við setjumst niður og opnum okkur fyrir hver öðrum og tölum og vinnum hugmyndir okkar sam- an. Þetta eru hugmyndir sem enginn okkar hefur fengið áður, við erum allir hluti af heild og allir eru áhægðir. Og þetta er tómt þvaður að við séum að hætta. Ánægjuleg- ast af öllu því sem Led Zeppelin hefur leitt af sér og gert, er að margt hefur breytzt og batnað frá því að fyrsta LP-platan okk- ar kom út. Það er alltaf eitthvað öðruvísi en síðast. Led Zeppelin verður til um óákveðinn tíma. — Og hvaff langar þig mest af öllu aff gera, á tónlistarsviffinu, í framtíðinni? — Það er margt sem mig lang- ar til að gera, hlutir sem ég hef aldrei gert áður. Mig langar til að geta spilað á fleiri hljóðfæri, því það er svo takmarkað að geta aðeins hamrað á gítar og blásið í munnhörpu. En öll sú tónlist sem mig hefur langað til að fást við hefur þegar verið prófuð af Led Zeppelin og við lítum allir á það frá mismun- andi sjónarhornum. Það þýðir að við erum að gera allt það sem okkur langar til að gera og þegar svo er, hef ég eng- ar áhyggjur eða frekari áætlan- ir. * UM MENGUN ... Framhald af bls. 11. verksmiðiunni gegnum hraunið út í vatnið. En á það eru engar sönnur færðar enn. — Hversu hættuleg gæti sú meng- un verið? — Jarðvegur er mjög gljúpur við Mývatn svo úrgangsefnin geta hæg- lega síast út í vatnið bæði frá verk- smiðjunni og frá sveitabæjunum, t.d. olía. En olíumengun er vitan- lega stórhættuleg lífi í vatninu. Þarf ekki annað af að bera en bilun á olíuleiðslu, t.d. í dælupramma. A Islandi er mengunarvandamál- ið að sjálfsögðu ennþá smáræði hjá því, sem víða annarsstaðar er. Þegar ég var í Kaupmannahöfn fyrir skömmu var loftið mengað ýldufýlu, þegar vindur stóð utan af Eyrar- sundi. Mengunin í sundinu er ekki einungis af völdum Dana og Svía, heldur og annarra þjóða við Eystra- salt, en straumurinn liggur þaðan út úr sundinu. Mengunin í Eystra- saltinu er orðin mjög mikil, með þeim afleiðingum að fiskafli hefur minnkað og fiskurinn orðið verri, og jafnvel óætur á sumum svæðum. — ,,Það húmar og hljóðlega rennur í hægviðri straumfögur Rín" stendur í gamalli þýðingu. Nú kallar enginn Rín straumfagra lengur, heldur er henni fremur líkt við skolpleiðslu. Mikil mengun í Rín byrjar þegar í Sviss og eykst síðar mjög í Þýzka- landi í hinum miklu iðnaðarhéruð- um. I Hollandi er fljótið eiginlega orðið sannkallaður saurvellingur. Vonandi kemur aldreí til þess að t.d. Elliðaárnar hér syðra og Glerá nyrðra mengist á svipaðan hátt. — Væri ekki full nauðsyn á að sett væri sérstök löggjöf til hindrun- ar mengun af völdum stóriðnaðar hér á landi meðan sá iðnaður er ennþá á byrjunarstigi? Það ætti að liggja í augum uopi að við lærðum af beiskri reynslu annarra þjóða í þessum efnum og vöruðumst þeirra víti. — Ég veit ekki hve viðtæk heil- brigðislöggjöfin er á þessu sviði. En breytingarnar eru svo örar á okkar tímum að ekki er ólíkleqt að bar sem annarsstaðar sé þörf sífelldrar endurskoðunar. dþ. — Ég var búinn að biðja yður að vera kyrr frammi, ungfrú Helga! 50 VIKAN «»• tw.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.