Vikan


Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 49

Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 49
Svör viS hvar, hvenær, hver, hvernig: „•gsö 4I|lu 4||e 60 |es uilu 'ddn 'ddn" :juunuj| e 4SJ.9L) uuunLuifsnissed ijsjAj -uoss6jag öjaqgng jjjja jo „euuv'' ue6es -PI?>IS l!Jde zi~8 ?Jf njo i/6l Je ->|sed Lunun!>|ijepueg i i^ij-njujoj -||e>| i J9 isejey ueg u|6jog Vestur-þýzkir lögreglumenn: láglaunaS úrkast I sambandi við hinar tíðu mót- mælaaðgerðir síðustu ára hafa lög- reglumenn víða um lönd fengið ákúrur fyrir barbaríska framkomu og misþyrmingar á fólki, og því miður ekki að ástæðulausu. í maí- óeirðunum í París 1968 hegðaði lögreglan þar sér eins og argasti skríll og notaði sér til dæmis upp- lausnarástandið til að handtaka unglingsstúlkur undir ýmislegu yfirskini og nauðga þeim inni í lögreglubílunum. Hinn kunni bandaríski rithöfundur Gore Vidal (höfundur Myru Breckinridge) hef- ur fullyrt, að ástæðan til fólsku- legrar framkomu lögreglumanna gegn mótmælaaðgerðum stúdenta væri sú að þeir væru yfirleitt full- ir með komplexa og hatur gagnvart menntamönnum; gegn afbrota- lýðnum, segir Vidal, eru þeir hvergi nærri eins harðir af sér, enda eru það þegar allt kemur til alls sömu samfélagshóparnir, sem þorrinn af bæði lögreglumönnum og afbrotamönnum kemur úr. Vestur-þýzkir lögrealumenn hafa ekki bótt öllu meiri lionr- menni en til dæmis franskir stétt- arbræður þeirra, og hefur það orð- ið tilefni mikilla umræðna f þýzk- um blöðum. Ein af ástæðunum, sem nefnd hefur verið til þess, hve lögreglumenn séu úr lágum gæðaflokki, eru launakiör þeirra, en í Hessen er þeim til dæmis verr borgað en lægstlaunuðu að'toðar- mönnum í verksmiðjum. Fyrst svo er, segja menn, þá fara varla aðrir í lögguna en þeir sem enga aðra vir.nu fá. Og er þá sanngiarnt að gera ráð fyrir að lögreglan sé eingöngu skipuð prúðum úrvals- drengjum? Vestur-Þjóðverjar eru áreiðan- lega langt í frá eina þióðin, sem mætti taka lögreglumál sín til gagngerrar og samvizkusamlegrar athugunar. myndasafn vikunnar Við þökkum kærlega fjölmarg- ar upphringingar og bréf, sem þessi litli þáttur hefur fengið. Okkur hafa borizt nánar og að því er virðist óyggjandi upplýsingar um fyrstu myndina, sem við birt- um. Enn hefur þó enginn vitað, hvaða maður stendur á hestvagn- inum. Þar sem skammt er liðið, síðan það blað kom út, látum við bíða betri tíma að skýra frá því, sem lesendur hafa sagt okkur um þessa ágætu mynd. — Að þessu sinni rákumst við á skemmtilega mynd af hljómsveit Áge Lorans, sem lék í mörg ár í Sjálfstæðishús- inu og þótti með vinsælustu hljóm- sveitum landsins. Tízkan breytist ört hvað hljómsveitir og dægurlög snertir. Senn kemur að þvi, að myndirnar af bitlahljómsveitun- um, sem hanga á veggjum í her- bergjum táninganna, verða aðeins gömul minning — á sama hátt og þessi skemmtilega mynd. vísa vikunnar Alltaf hjörtum okkar næst yrði ferskeytt vísa, þótt við næmum hinzt og hæst himin Ijóðadísa. Guðmundur Ingi Kristjánsson. Prinsessa - smástirni Ira zu Furstenberg, þrítug, film- smástirni með blátt blóð, var ný- lega að djamma niðri á Spáni ásamt Iffsförunaut sínum um margra ára skeið, ítölskum iðn- rekanda að nafni Paolo Marinotti. Hann er fimmtugur að aldri og tvískilinn, en heldur sér vel. Við spænsku fréttamennina sagði hann: Skrifið ekki að hér sé prinsessan í fylgd með herra Marinotti. Það er ég, sem er fylginautur prinsess- unnar. 3. tbi. VIKAN 49

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.