Vikan


Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 8

Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 8
Stóreflis floti af bólgnum og brimhvítum skýjaklökkum fór hamförum um himingeiminn, og einn þeirra virtist hafa borizt upp á þurrt land og stöðvazt þar. Þetta varð aðeins skilið á einn veg: Ég hafði komið auga á jökulinn, sem gnæfir hátt yfir Snæ- fellsnes yzt, á vesturströnd íslands. „Pat!“ kallaði ég niður um lúgugatið. „Landsýn!“ Konan mín kom upp á þilfarið, en hún var eini skipverjinn, auk mín, á þessari 40 feta skútu okkar, sem nefndist Delight (Ánægja). „Engan æsing,“ sagði hún. „Mundu að ferðin er varla byrjuð ennþá.“ Hún hafði rétt að mæla, því ferð okkar yfir norðanvert Atlants- hafið, frá St. Johns á Nýfundnalandi, sextán daga barátta við kalsahregg og svala sumarvinda, var ekkert annað en forleikur. En fram undan áttum við í vændum hringferð umhverfis fsland, þar sem stormurinn fer upp í 75 hnúta, kompásinn lýgur, straum- ar taka af manni ráðin og kortin sýna ekkert annað en klettótta strönd. Því þá að sigla umhverfis ísland? í fyrsta lagi höfðum við ár- um saman siglt um allar sævarleiðir við Nýja England, Nýja Skotland, Nýfundnaland og Grænland, og bundið ást við auðnar- höf og hrjúfa fegurð norðurslóða. f öðru lagi vissum við að örfá smáskip höfðu leyst þessa þraut af hendi, og langaði til að freista inngöngu í þann úrvalshóp. Á ferð um Noregshaf og Danmerkursund myndum við sjá sitt af hverju sérkennilegu, ýmislegt óbreytt frá liðnum öldum. Hér er allt að kalla eins og það var aftur á víkingaöld — sjórinn, hamrarnir, stormurinn — meira að segja sjálf tunga þjóðarinnar hefur staðizt öll utan að komandi áhrif, bæði sakir landfræði- legrar einangrunar og eigin festu og einkenna. „Finnst þér þú vera orðinn víkingur?" spurði Pat, er við nálg- uðumst Snæfellsnes óðfluga. Ég kannaðist við að svo væri, því þegar við eygðum fjallstindinn, 4744 feta háan, höfðum við sömu landsýn og hinir fornu fslendingar leituðu, er þeir héldu heim frá Grænlandi og Vínlandi fyrir nálega þúsund árum. Mávar, teistur, kríur, æðarfugl og klettajáfinn sjálfur, lund- inn, birtust nú og fór sífjölgandi allt í kringum okkur. „Sko, alltaf er fuglinn samur við sig,“ sagði Pat. Þetta eru vinir sjó- mannsins, einmitt þær tegundir sem hafa viðurværi sitt úr sæ- UMHVERFIS ÍSLAND Á SKÚTU Bandarísku hjónin Pat og Wright Britton langri skútu, sem nefndist Delight. Wright Þetta er fjörlega rituð grein og fróðlegt að og þjóð. En mestur fengur er þó að sjálfri hrepptu hið versta veður aftur og aftur og Wright Britton og kona hans, Pat, um borð í skútunni Delight, en á henni sigldu þau umhverfis ísland. Hún er við stýrið, en hann hugar að fram- seglinu. djúpinu, en hætta sér þó sjaldnast langt frá landi. Við höfðum séð máv nærri sjö stundum áður og vissum því að ekki myndi langt til lands. Við þekktum einnig hina reglulegu sjófugla, svo sem fýla og ýmsar tegundir stormfugla, er eyða ævi sinni að langmestu leyti á hafi úti, og koma rétt snöggvast á land til að verpa. Að beiðni Bandaríska náttúrufræðisafnsins í New York, höfðum við reynt að þekkja og telja alla fugla sem við höfðum mætt á leiðinni. Það var bráðskemmtileg dægradvöl og stytti okkur marga langa og leiðinlega stund við stýrið. KOMAN TIL REYKJAVÍKUR Við fórum eftir upplýsingum úr íslendingasögunum og stefnd- um til Snæfellsness, enda þótt það sé 70 mílum fyrir norðan Reykjavík, sem er stærsta borg íslands og höfuðstaður. Við viss- um nefnilega, að út af Reykjanesskaga, sem er nálægt Reykja- vik, liggja hin alræmdu Fuglasker, en þau eru klasi af eyjum, dröngum og skerjum, er teygja sig 40 mílur suðvestur af nesinu. Eftir að við höfðum lagt þennan forna fjánda sjómanna að 8 VIKAN 3- tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.