Vikan


Vikan - 21.01.1971, Síða 25

Vikan - 21.01.1971, Síða 25
unnar voru af ýmsu tagi: úr íslenzk-mongólska vináttufélag- inu, æskulýðsfélegum sumra stjórnmálaflokkanna, liðhlaup- ar úr lögreglunni, úngskáld, popplistamenn og atvinnuleys- ingjar utan af landi. Þá kom brátt í ljós að bróðurpartur nemenda úr Hamrahlíðarskól- anum var viðriðinn byltinguna, og var að sjá að þeir að þeir hefðu vandræðalítið fengið frí til þátttöku í henni, svo og fé- lagsmenn stúdentafélagsins Komandi. Síðdegis bættist mestur hluti blaðamannastétt- arinnar, sem nú var að sjálf- sögðu atvinnulaus, í lið lögregl- unnar. Var sagt að yfirmaður hennar, Brennisóleyjan, hefði tekið að sér strákana, sem nú höfðu misst sína helztu staðfestu í lífinu, þrátt fyrir mótmæli undirforingja sinna, sem þegar þóttust hafa fullmiklu og bal- stýrugu liði á að skipa. Að sjálfsögðu var enginn hörgull á kviksögum sem gengu um borgina, meðal annars um örlög forseta íslands. í fyrstu kom upp sá kvittur, að hann mundi byltingunni ekki með öllu fráhverfur, en síðdegis á þriðjudaginn tilkjmnti hin nýja stjórn, að honum hefði verið vikið frá völdum til bráða- birgða. Þótti líklegt að forset- inn, löghlýðinn maður og drengur góður, hefði talið, stjórnarskipti þessi ólögmæt og því ekki viljað leggja nafn sitt við þau, þótt allmjög hefði ver- ið að honum lagt. Var haft fyr- ir satt, að hann vseri í stofu- fangelsi á Bessastöðum. • Hafði byltingarmönnum ekki þótt ná nokkurri átt að flytja hann í Síðumúla, enda vinsældir hans og virðing meðal landslýðsins slík, að einsdæmi var um framámenn þjóðfélagsins. Á miðvikudagsmorgun, ann- an dag byltingarinnar, tók hin nýja stjórn að senda frá sér bjargráð og fororðníngar. Hinn nýji forsætisráðherra flutti ávarp í hádegisútvarpið og sagði, að þjóðin yrði að vera við því búnu að axla þungar byrð- ar til að tryggja hag sinn til frambúðar, en nú yrði breyt- ing á frá því sem áður var, er sérréttindalýður eða bitlinga- tíkur hefðu fengið að mata krók- inn jafnframt versnandi kjörum launastéttanna. Meinin í þjóð- arlíkamanum eru mörg og ill- kynjuð, sagði forsætisróðherra, jíau hafa lengi fengið að grafa um sig og því má sjúklingurinn vita að engin hrossalækning dugir. Okkur vantar ekki nýja stjórn, heldur nýtt stjórnkerfi, nýtt hagkerfi, nýtt þjóðfélag! Og það gneistaði vígalega úr augum forsætisráðherrans und- an þungum, hveitigulum fell- i ngabrúnunum. Síðan komu fyrstu biargráð- in. Innflutningur skyldi skorinn niður um helming minnst, og tekið fyrir allan innflulning á öðrum iðnvarningi en þeim, sem óhugsandi væri að lands- menn gætu framleitt sjálfir. Meðal annars yrði ekki framar flutt inn svo mikið sem pjatla af tilbúnum fatnaði. Þá yrði einnig stöðvaður innflutningur á vörum eins og húsgögnmn, tertubotnum og matvælum öðr- um en korni í lausu máli. Olíufélögin yrðu sameinað í eitt fyrirtæki og þjóðnýtt. Innflutningur á bílum yrði takmarkaður að því leyti, að héðan af skyldi aðeins fluttur inn tugur tegunda eða svo í stað mörghundruð áður. Það hlyti að draga stórum úr erfiðleikum og kostnaði með útvegun vara- hluta. Gerðar yrðu án tafar ráðstaf- anir til að stórauka fiskiðnað- inn í landinu, þannig að aðal- héðan af ekki flutt úr landi framleiðsla landsmanna yrði mestanpart sem óunnið hrá- efni. Hingað til, sagði forsætis- ráðherra, höfum við atvinnu- lega verið á svipuðu stigi og bananalýðveldi Mið-Ameríku, aðeins flutt út hráefni og auk- heldur ekki nema eina tegund af því. Og hráefni er þannig varið að verð þess á heims- markaðnum er óstöðugt, hækk- ar og lækkar gífurlega án nokk- urs fyrirvara. Meðan efnahagur okkar byggist á þannig útflutn- ingi. er þýðingarlaust að láta sér detta í hug að hann komist nokkru sinni á fastan grund- völl. Hin nýja stiórn vill því koma upp í landinu iðnaði á breiðum grundvelli, ekki ein- ungis til innanlandsþarfa, held- ur og til útflutnings. Þegar í stað verður leyfð bruggun og sala á áfengum bjór í landinu, og verður sú starf- semi lögð undir ríkið. Hinsveg- ar verður innflutningur á áfengi takmarkaður og umboð þau, sem allavega braskarar hafa haft á innflutningi vissra brennivínstegunda, af þeim tekin bótalaust. Stjórn Endurreisnarbylting- arinnar hefur ákveðið að láta fara fram gagngerða eigna- könnun, og leiði hún í ljós að óhæfilega stór skerfur af teki- um þjóðarhússins undanfarin ár hafi ratað í vasa einstakra aðila, gerir ríkið þann gróða upptækan. Skattalögreglunni verða gefnar frjálsari hendur en áður, sagði forsætisráðherra. Opinber spilling hefur til þessa komið í veg fyrir, að hún gæti sinnt störfum sínum að nokkru gagni. en nú verður hætt að kippa í spottann, hver sem á í hlut. Skattsvik, ef uppvís verða, varða héreftir missi allra borg- aralegra réttinda frá tiu árum og upp í ævilangt, eftir eðli og alvöru brotsins. Hylmingar með skattsvikurum verða einnig refsiverðar. Ríki og kirkja verða aðskilin án tafar. Benti forsætisráð- herra á, að jafnvel í örgustu fasistaríkjum Suður-Ameriku væri löngu niður lagður sá ó- lýðræðisleg/i siður, að eitt ákveðið kirkjufélag nyti beirra forréttinda að ríkið styrkt.i það og styddi. Héðan í frá, sagði ráðherra, ríkir á þessu landi algert trúfrelsi í fyrsta sinn frá því að Þorgeir Liós- vetningagoði gerðist trúníðing- ur og föðurlandssvikari fyrir yfirfrakka og fimmeyring og hímdi og mókti síðan smástund undir gæruskinni til að blöffa pöpulinn. Fyrir utan beint lýðræðis- gildi þessarar ráðstöfimar, sagði ráðherra, kemur hún til með að spara ríkinu morð fjár árlega. Ég get einnig þegar tekið það fram, þótt það heyri undir menntamál en ekki efnahags- mál, að í þessu sambandi verð- ur allri trúarbragðakennslu í skólum landsins gerbreytt, há- skólinn þar með talinn. Verður héðan í frá steinhætt þeim ein- hliða áróðri fyrir lútherskri kristni, sem þar hefur verið rekinn til þessa, en þess í stað tekin upp alhliða og hlutlaus fræðsla um trúarbrögð almennt. Undir endurbætur í skóla- málum heyrir einnig, sagði ráð- herra ennfremur, að lagadeild háskólans verður lögð niður um næstu tíu ár. Stétt lögfræðinga er nú þegar, bæði vegna mann- fjölda og umsvifa, orðin stór- hættuleg heilsu þjóðarlíkamans, þótt ekki kæmi annað til, svo að öllum má vera fyrir beztu að henni bætist ekki liðskostur næstu árin. Ráðherrann tilkynnti enn- fremur að til að koma í veg fyrir íbúðabrask yrðu allar byggingaframkvæmdir í land- inu héreftir lagðar undir ríkið eða byggingasamvinnufélög. W 3. tbi. VIKAN 25

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.