Vikan


Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 21

Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 21
:> l»essi maður virðist njóta lífsins í fögru umhverfi. En að baki býr harmleikur inn, hann getur aldrei farið burt. Þetta fólk hefur verið sjúkt alla ævi. Þrjátiu ár, — fjöru- tíu ár, kannske lengur. Einn maður situr þarna og syng- ur; útlit hans er ógnvekjandi og maður verður fegin, þeg- ar sagt er að hann sé líka blindur. Þessi miskunnarlausi sjúkdómur er ekki banvænn. Þeg- ar holdsveikt fólk deyr, er það venjulega af einhverjum öðrum sjúkdómi: lungnabólgu, nýrnahólgu eða berklum. Svo eru það hinir ungu. Þar er á gífurlegur munur. Sumir líta mjög liraustlega út. Á skiptistofunni hitti ég tólf ára gamla telpu. Hún er með æxli á fæti, það er eins og ilin sé klofin. En hún hef- ur von um bata, það befur verið ráðin bót á útbreiðslu sjúkdómsins. Á bilaverkstæðinu hitti ég ungan og lagleg- an mann. Hann liefur verið veikur í nítján ár, en bólgu- Imúðarnir á andliti hans eru að hverfa, og svo er hann líka orðinn smitfrir. Ung kona kemur dansandi inn til læknisins. Hún er liiminlifandi og segir honum að hún sé búin að fá starf í Honolulu. Hún var útskrifuð fyrir tveim mánuðum eftir 14 ára sjúkrahúsvist. Þrjú börn eru í skóla sjúkrahússins. Með liaustinu fá þau að fara í barnaskóla með öðrum börnum. Snúa aftur af frjálsum vilja. Margir eru vongóðir. Margir verða fljótlega smitfriir. En samt eru þeir holdsveikir. Miðaldra maður vinnur ])arna við sjúkrahúsið. Hann sneri aftur af frjálsum vilja. Hann fann ekki öryggi í liinum stóra heimi, fannst trygg- ara að vera á sama stað. — Ég fékk ágætis vinnu við byggingar. En þegar það fréttist að ég liefði verið holdsveikur, þá var mér strax sagt upp. Svo ég held að það sé bezt hjá mér að vera kyrr hér! Flest af þessu fólki, sem hefur útskrifazt frá þessu sjúkrahúsi, er sama sinnis, það hefur meira öryggi á sjúkrahúsinu eða í nýlendunni. Flestir halda að þeir verði fyrir sömu vandræðum og þessi maður. 98,5% af mannkyninu er ómóttækilegt fyrir holdsveiki. Framhald á bls. 43 3 tw. YIKÁN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.