Vikan


Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 5

Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 5
Lena, sem er fjögurra ára, eignaðist lítinn bróður. For- eldrar hennar, sem vildu gera sitt bezta fyrir hana, frá sál- fræðilegu sjónarmiði, höfðu undirbúið hana vel undir þessa lífsreynslu, að minnsta kosti að eigin dómi. Þau höfðu sagt henni að von væri á litlum bróður eða lítilli systur. Hún hafði séð magann á mömmu sinni stækka, fengið að finna þegar litla barnið sparkaði og taka þátt í öllum undirbúningi, hjálpa til að brjóta saman barnafötin og svo framvegis. Foreldrar Lenu héldu að þau kæmu í veg fyrir að hún yrði afbrýðisöm, þegar barnið kæmi. Þau höfðu heyrt margar furðu- legar sögur um slíkt. Svo rann upp sá merkisdag- ur að mamma kom heim frá fæðingardeildinni. Lena fékk að fara með pabba sínum til að sækja litla bróður. Henni fannst þetta voða skemmtilegt. Þegar þau komu inn á deild- ina, varð hún yfir sig hrifin að sjá mömmu sína, en svo varð hún hugsandi, þegar hún sá þennan rauða og skrítna bögg- ul í faðmi hennar og að þetta ætti að búa hjá þeim. Hún er samt róleg og upphefur engin mótmæli. Svo þegar þau koma heim, er litli bróðir lagður í fína vöggu, sem stendur inni hjá pabba og mömmu, en það er búið að flytja hennar eigið rúm í annað herbergi. En samt var hún hrifin, þegar hún sá að hún var búin að fá nýtt og stærra rúm. En þegar hún leggst til svefns um kvöldið, alein, finnst henni þetta ekki skemmtilegt lengur. Hún verður sárhrygg og fer að gráta. Mamma er dá- lítið þreytt, svona fyrsta dag- inn og pabbi er eitthvað tauga- veiklaður. Þetta varð í raun- inni afskaplega leiðinlegt kvöld. Dagarnir líða og for- eldrarnir taka eftir því að Lena er ekki eins glaðvær og hún var áður. Hún er orðin gjörbreytt. Hún vill ekki einu sinni fara út að leika sér, eins og hún hafði alltaf verið svo hrifin af áður. Hún hangir í pilsum móður sinnar allan dag- inn, suðar og suðar, vill að hún leiki sér við hana og sé stöð- ugt að sinna einhverjum rell- um. Móðir Lenu hefur hvorki tíma né orku til að láta allt eftir henni. Hún verður að hugsa um litla barnið og heim- ilisstörfin og þess í milli er hún ÞEGAR LITLI BRÓÐIR KOM FRÁ FÆÐINGA DEILDINNI í þessari grein segir barnasálfræðingurinn Lillian Gottfarb frá vandræðum, sem geta komið fyrir, ef börn verða afbrýðisöm gagnvart litlum systkinum ... viö og börnin okkar þreytt. Henni finnst þetta ástand óbærilegt. Lena er líka farin að sofa illa. Hún á erfitt með að sofna og sífellt að biðja um mjólk eða safa, hún vill að mamma hennar kyssi hana og ýmislegt annað finnur hún sér til. Það er sama hve oft foreldrarnir reyna að fara inn til hennar og róa hana, hún getur ekki sofn- að. Áður hafði Lena haft góða matarlyst. Hún fór fljótlega að borða sjálf og hafði gaman af því. En nú er eins og matar- lystin sé horfin. Hún situr við borðið, hengir höfuðið og potar í matinn og stundum vill hún láta mata sig. Þegar mamma hennar gefur litla bróður brjóst, er Lena sérlega óróleg og finnur upp á alls konar kenjum. Mamma hennar getur ekki svo vel lagt barnið frá sér til að hlaupa eftir Lenu og hún veit alls ekki hvernig hún á að snúa sér í þessu. Barnasálfræðingurinn segir: Þessi afbrýðisemi Lenu er mjög eðlilegt ástand. Flestir foreldrar þekkja til þess og geta verið við því búnir. Það gerðu foreldrar Lenu líka, þegar þau létu hana taka þátt í því sem í vændum var. En það var ekki nóg. Margir foreldrar verða von- sviknir og halda sig ekki hafa farið rétt að. Það er bæði gott og nauðsynlegt að foreldrar búi lítið barn undir komu smábarnsins. Annars hefði þetta getað orðið enn verra, en það kemur ekki í veg fyrir afbrýðisemi, þrátt fyrir undir- búninginn. Lillian Gottfarb segir: — Maður verður að reyna að setja sig í spor barns- ins. Þrátt fyrir það að barnið hefur vitað um komu hvítvoð- ungsins, getur það ekki sett sig inn í þær lífsvenjubreytingar, sem það kann að hafa í för með sér fyrir það sjálft. Það liggur í augum uppi að óviti tekur því stirðlega, þegar þetta nýja barn tekur svo mik- ið af tíma móðurinnar, þeim tíma, sem áður var helgaður því siálfu. Nú snýst ekki allt um Lenu, í þessu tilfelli, og það verður að reyna að skilja hvernig Lenu líður. Það allra versta er auðvitað að sjá þetta nýja barn í faðmi móður sinn- ar, sem henni einni var ætlað- ur áður. Það hlýtur að stinga litla hjartað. Maður gæti gert þann sam- Framhald á bls. 43 3. tbi. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.