Vikan


Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 47

Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 47
sýnir ungan sveitapilt, ljósan yfirlitum. Svo er sagt í broti af Hall- varðarsögu á norsku, að leitað hafi verið að líki Hallvarðar á firðinum með vígsluvatns- greinum (stökklum). Sögðu menn, að þessir stökkulkvistir hefðu blómstrað lengi á eftir. Á Hallvarðsmessu í maí stend- ur vígsluviðurinn í fullum blóma meðfram hverju lækj- ardragi og uppsprettulind í Austur-Noregi. Hann minnir á ljóshærða drenginn sem hag- aði sér eftir orðum Drottins og var sökkt í sæ með myllustein um háls, vegna þess að hann gerðist málsvari smælingja gegn órétti. Jóh. Bj. þýddi. GLEYMDU EF ÞO GETUR Framhald af bls. 31. Ellen Rickardson gerði allt sem hún gattil að reyna að leyna óþol- inmæði sinni. Hún átti margt eftir ógert, áður en Ingvar kæmi í heim sókn með unnustuna sína. Að Greta skyldi ekki geta sagt sér það sjáIf. En hún hafði aldrei ver- ið mikil húsmóðir, blessunin. — María spyr, hvort hún geti fengið lykilinn að sultuskápnum. Það er út af rúllutertunum . . . — Ég kem strax. — Fyrirgefðu mér, Ellen. Ég er að tef|a þig. Ég skal fara strax. Nei, þú þarft ekki að hafa fyrir að fylgja mér til dyra. Ætli ég rati ekki. Ég vona að þetta gangi allt vel hjá þér í dag. Og ég bið að heilsa honum Börje þínum. Greta Stening hraðaði sér út, og Ellen varp öndinni léttar. — Hérna eru lyklarnir, Anna, sagði hún hraðmælt. Hún horfði gaumgæfilega á eft- ir vinnukonunni, um leið og hún gekk út. Það virtist ekki vera neitt athugavert við svarta kjólinn henn- ar og hvítu svuntuna. Hún félI mjög vel inn í umhverfið. Það var gott. Henni var mjög annt um, að Mikaelu litist vel á heimili verð- andi eiginmanns síns. Ellen gekk að háa glugganum og horfði hugsandi á svip út í garðinn. Hún kom ekki auga á neitt, sem hafði farið aflaga og þarfnaðist lagfæringar. Allt var eins og það átti að vera. Hún hafði hitt Mikaelu einu sinni áður. Börje hafði verið stadd- ur í Stokkhólmi þá, og hún hafði tekið ein á móti Ingvari og unn- ustu hans. Þau voru þá nýkomin frá Tranös, þar sem stúlkan hafði verið sér til hvíldar og hressingar eftir snert af lungnabólgu, sem hún hafði fengið. Ingvar hafði verið staddur þar um tíma til að fylgjast með nýrri byggingu. Það var spánnýtt gistihús, sem hann hafði teiknað. Og svo hafði hann kynnzt Mikaelu. Vesalings stúlkan, hún stóð víst alein í veröldinni . . . Það var víst ekki svo langt síðan móðir hennar lézt og svo dó móð- urbróðir hennar núna. Annars gat hún ekki satt að segja ímyndað sér, að nokkur syrgði þann harð- stjóra. Gamli Per Uno Melander hafði verið sannkallaður drumbur. En því varð ekki neitað, að hann skyldi eftir sig nóg af eignum og peningum handa erfingja sínum. Já, Mikaela var rík stúlka, og auk þess var hún undrafögur. Ingvar hafði ekki valið sér konu- efni af verri endanum. Hún hefði ekki einu sinni sjálf getað valið betur handa sínum elskaða ^inka- syni. Bara að stúlkan yrði nú heilsuhraust. Maður varð Kka að hugsa um komandi kynslóðir. Veikbyggð og taugaveikluð kona gat ekki fætt af sér sterk börn. Börje hafði ætlað að gæta þess að koma ekki svo snemma, að hann væri kominn á undan ungu hjónaefnunum. En Áke og Lajla voru líka boðin, og þau gátu kom- ið á hverri stundu. Það var líka bezt, að Mikaela fengi að hitta fjölskylduna strax, og bróðir Börje og kona hans voru elskulegar manneskjur, ekki vantaði það. Ellen hrukkaði ennið lítilshátt- ar. Þeir voru reyndar ólíkir bræð- urnir, og hún var því fegin,, að hún skyldi giftast BÖrje. Hann tók starf sitt mjög alvarlega og taldi ekki eftir sér hinar tíðu og erfiðu verzlunarferðir til Stokkhólms. En Áke . . . Og samt virtist Lajla vera svo ánægð og hamingjusöm. Ellen gat ekki skilið það. Nújæja, en það var auðvitað þeirra einkamál. Hún sneri sér frá glugganum, gekk fram og leit á stóru brúð- kaupsmyndina í splunkunýja rammanum. Barnalegt af Gretu að ímynda sér, að hún hefði fjarlægt hana, vegna hins hörmulega dauð- daga Sigfrids. En Greta hafði alltaf verið svo slæm á taugum. En að einu leyti hafði hún rétt fyrir sér: i'au höfðu ekki mikið breytzt, síð- an myndin var tekin, þótt svona mörq ár væru liðin síðan. Ellen brosti með sjálfri sér. Það yrði skemmtilegt að sýna AAikaelu bessa mynd og sjá hvort hún þekkti verðandi tengdaforeldra sína .... Tengdaföður sinn hafði hún reyndar ekki hitt enn . . . Ingvar Rickardson sá Mikaelu í speglinum og um leið blóðroðnaði hún. Þetta var unnustinn hennar. Aldrei f sínum djörfustu draumum hafði hún getað ímyndað sér mann á borð við hann. Og hann elskaði hana. Það var sannleikur. En þeg- ar hún var andvaka á hljóðum nóttum, þá gat hún varla trúað, að henni hefði hlotnazt slík ham- ingja og það svona skyndilega. Hún trúði því varla, að hún væri komin burt frá Stokkhólmi og hefði getað kvatt það líf, sem beið hennar þar og hún hafði and- styggð á. Hún var nú unnusta Ingvars og elskaði hanu. Hún vildi gera allt, sem í hennar valdi stóð, til þess að hamingja þeirra yrði varanleg og þau fengju alltaf að vera saman. Hitastraumur fór um hana og andartak varð hún rök um augun. Hún sneri sér snöggt við og tók upp einn af höttunum, sem hún var að máta. Einn hafði hún raun- ar valið, mjúkan stráhatt með stór- um börðum. En þessi litli, kúpti Framhald á bls. 50. FRÁ RAFHA NÝ ELDAVÉL GERÐ E6614. MEÐ 4 HELLUM, ÞAR AF 1 MEÐ STIGLAUSRI STLLINGU OG 2 HRAÐSUÐUHELLUR, STÓRUM STEIKAR- OG BÖKUNAROFN. Yfir- og undirhiti fyrir steikingu og bökun stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar element (grill), stór hitaskúffa, Ijós í ofni. Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ ÓÐINSTORG - SÍMI 10322 3. tbi. VIKAN 47

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.