Vikan


Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 17

Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 17
En nú hafði hann tekið næsta skref. Það var reyndar löngu fyrr en hann hafði þor- að að vona og það var gleði- efni hans þetta kvöldið. Fyrir viku síðan hafði maður að nafni Josuah Barrow, ættingi húsbónda hans frá Plymouth, komið í heimsókn. Hann var skipstjóri á skútu, var með góðlegt, veðurbarið andlit, glymjandi rödd, sem greinilega heyrðist vel í gegnum storma og sjógang og hressandi hlát- ur. Hann kom sem stormsveipur inn í dauflegt hús frænda síns óg Kit varð hrifinn af honum á samri stundu. Barrow skiþ- stjóri fékk líka áhuga á þess- um dökkhærða, laglega pilti, og það leið ekki á löngu þar til að hann bauð Kit skipsrúm hjá sér í næstu ferð, því að „piltur með hans krafta og greind, á ekki að þurfa að sitja við skrifpúlt dag eftir dag og skrifa tölur fyrir nízkan, sálmasyngjandi mangara“. Kit starði undrandi á mann- inn, en freistandi sýnir fipuðu hann. Hann sá fyrir sér blátt hafið, hörkuspennu og ævin- týri, en um fram allt að sleppa af enskri grund, þar sem allt sem honum hafði þótt vænt um var sundurtroðið. Nýr heimur opnaðist honum á ör- skammri stund, en svo sagði rödd skyldunnar til sín og hann hristi höfuðið. Ég — ég get ekki farið, Barrow skipstjóri, stamaði hann. - - Guð einn veit að mig langar til þess, en móðir mín er ekkja og er háð mér. — Já, þú sagðir mér það, drengur minn, og ég hef hugs- að um þá hlið málsins. Ég á hús í Plymouth, sem hefur staðið autt síðan móðir mín dó, og ég væri þakklátur ef móðir þín vildi fara þangað og annast eigur mínar, og þá eig- um við líka báðir heimili að hverfa til, þegar ferðinni er lokið. Kit varð furðu lostinn og bar fram þakklæti sitt, en Barrow skipstjóri tók fram í fyrir honum. — Ég vil ekki heyra neitt þakklæti, drengur minn, — ég hefði ekki stungið upp á þessu, nema vegna þess að ég vissi að þú gætir orðið mér til mikils gagns, en það verður ekki leti- líf, þú getur bókað að það verða bæði hættur og erfið- leikar, og þú mátt ekki reikna með að ég veiti þér nokkur sérréttindi, en til sjós muntu finna það frelsi, sem skortir hér heima. Kit tók tilboði hans, að því Framhald á næstu síðu. 3. tbi. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.