Vikan


Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 12

Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 12
Smásögur eftir Nóbelskáldkonur HALLVARÐUR HELGI Eftir Sigrid Undset Norska skáldkonan Sigrid Undset fæddist árið 1882. Sextán ára gömul gerðist hún skrifstofustúlka í Osló og vann þar í tíu ár. Hún gaf út fyrstu bók sína ár- ið 1907, skáldsöguna „Frú Martha Qulie“, sem þýdd hefur verið á íslenzku. — Síðan kom hver bókin á fætur annarri. Árið 1909 fékk Sigrid Undset styrk og dvaldist í Rómaborg um skeið. Árangur þeirrar dvalar var skáldsagan „Jenny“, sem talin er einna merkust af æsku- verkum skáldkonunnar. Árið 1912 giftist Sigrid Undset listmálaranum A. L. Svarstad, en þau skildu árið 1925. Sama ár snerist hún til kaþólskrar trúar. Merkustu verk Undset eru sagnfræðilegar skáldsögur, einkum sagnabálkurinn um „Kristínu Lavrans- dóttur“, en fyrir hann hlaut hún Nóbelsverðlaun- in árið 1928. — Þegar Þjóðverjar hertóku Noreg, varð Undset að flýja föð- urland sitt. Hún fór til Svíþjóðar, þaðan til Eng- lands, en hélt síðan til Ameríku og dvaldist þar öll stríðsárin. Sigrid Und- set lézt árið 1949. Sagan segir að þrettán árum eftir fall Ólafs helga hafi lík af ungum manni fundizt í Drafnarfirði. Það flaut á sjón- um, og hafði þó kvarnarsteinn verið bundinn við það til að halda því niðri. Ekki er víst að jarteikn þetta að steinninn skyldi fljóta, hafi verið það sem sveit- ungum hins látna fannst furðu- legast. Fyrirburðum og óskýr- anlegum atvikum hafði fólkið vanizt þegar á tímum heiðins dóms. Hitt var nýlunda að Hallvarður hinn ungi frá Húsa- bæ hafði fórnað lífi sínu til að verja þjófkennda kerlingu gegn órétti. í djúpum heiðinnar lífsskoð- unar lá örlagatrúin. Víst voru guðirnir vondir, þeir gátu veitt tryggum áhangendum hylli sína, og iðulega nutu ákafir blótmenn hamingju, valda, virðingar og auðs, ætt sinni til upphefðar. En gömlu mennirn- ir höfðu orðið þess vísari að guðirnir gátu verið duttlunga- fullir, þeir voru hverir öðrum nndsnúnir, ellegar máttur þeirra átti sínar takmarkanir. Samhliða trúnni á guði og vætti dafnaði einnig trú á for- lösin, er jafnvel sjálfir guð- irnir voru líka undirgefnir. Og fovlög hvers manns voru hon- ”m fvrirfram ákveðin allt frá fæðingu. Hugrekki hans og máttur fékk því að engu breytt. En í manninum var siíkur efniviður. að hann lét ekki forlögin buga sig. Ef ^ann st.ríddi gegn þeim, þrátt fvrir reiði hinna máttugu guða, hafði hann áunnið sér hið eina sem lífið í rauninni gat fært honum: sæmd og orðstir. Það var þessi lífsskoðun sem skóp og stælti höfðingjalund- ina. Sá sem frá blautu barns- beini hafði vanizt á að telia sig standa ofar almenningi, og hafði frá bernsku verið um- kringdur þrælum og þjónustu- fólki er lifði til þess eins að þjóna lífi hans, hlaut að telja líf sitt mikið dýrmæti. Hann þekkti spennuna, unaðinn við hvert áhættuspil, jafnvel þótt hann tapaði spilinu. En sá sem var fæddur til að láta troða á sér, núa sér og nudda innan um önnur smá- menni við klúr hversdagsslit- verk, hann gat ekkert fundið í forlagatrúnni er stæla mætti viljann og hefja hugann. Þeg- ar það eru forlög manns að fæðast til þess að vera ævin- lega undir annarra vald gef- inn, þegar ógæfan dynur á honum líkt og frost á aumlega akurrein eða veikindi á vesælt naut og ættfólkið er öldungar einir sem þrældómur ævinnar h”fur þjakað, og unglingar er sultur og seyra hefur dregið döngun úr, — þá er erfitt að finna huggun í þeirri trú, að enginn megi sínum sköpum renna. Hallvarður helgi ólst upp í bændaþjóðfélagi þar sem líf og heiður hvers manns var verð- lagt eftir því sem hann hafði ætterni og metorð til. Það ákvarðaði ..rétt“ hans, hverra bóta frændlið hans gat kraf- izt, ef hann var drepinn, og hvers hann mátti sjálfur krefj- ast ef einhver gerði honum miska eða því sem hans var. En meginþorri þjóðarinnar voru smábændur, leieuliðar hinna ríku óðalseigenda, vinnu- þý, fiskimenn, verkafólk, auk bræla og leysingja. Ekki er þess getið í sögn- inni um Hallvarð helga hver hún var, þessi kona sem hann hugðist hiálpa. En eigi getur það hugsazt að hún hafi til dæmis verið heiðarleg bónda- kona. Konu sem átti frænd- garð er fengi varið hana, var ógætilegt að ásaka fyrir Ernnað eins og þjófnað — og sakar- áberarnir í sögninni um Hall- varð virðast ekki einu sinni hafa haft teljandi sannanir á takteinum. Þjófnaður var í augum þeirrar tiðar fólks svo auðvirðilegur verknaður og kvikinzkur, að sá maður var ekki til er kenndi í brjósti um þjóf. Frjálsborinni konu er gerðist sek um stuld, var að jafnaði eftir Gulaþingslögum refsað með útlegð, — annars gat slíkt undir vissum ástæð- um varðað lífláti. En væri þýf- ið minna virði en einum tug landaura, mæltu lög svo fyrir að raka skyldi höfuð syndar- ans og smyrja það tjöru, því næst varð hann að hlaupa veg- arlengd er nam „níu örskot- um“, en meðan á því stóð létu viðstaddir dynja á honum grjóthríð og moldar og höfðu yfir álit sitt á vesa- lingnum. Þá var hann laus þeirra mála, en réttlaus í þjóð- félaginu þaðan í frá. Kæmi það hins vegar fyrir að ambátt stæli, var við fyrsta brot skorið af henni annað eyr- að, við mið næsta skyldi sníða burtu hitt eyrað en nefið við hið þriðja. „Þá heitir hún stúfa og hnúfa og getur stolið sem hana lystir,“ er komizt að orði í lögunum af gráglettni. Þann- ig litu sveitungar Hallvarðs á þiófnað og það hefur Hallvarð- ur vafalaust einnig gert á vissan hátt. Án efa hefur hann líka talið mikinn mun á sér, bóndasyninum á Húsabæ og vinnufólkinu og leysingjason- unum í kofunum niðri við ströndina. Þeim voru ætluð ólík starfssvið í heimi hér. í veraldarvafstrinu veltast ýms- ar myntir af ólíkum stærðum og virði, allar gjaldgengar þó. Eitt er þeim sameiginlegt, á þær er slegin mynd kóngsins 12 VIBAN 3 tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.