Vikan - 04.02.1971, Blaðsíða 15
Heitir og kaldir
eggjaréttir eru alltaf
Ijúffengir og hæfa
hvort heldur er
með brauSmáltíSum
eSa sem aSalréttur.
Ostaeggjakaka
Firagðbætið eggjakökuna með
ca. 5 msk. af rifnum osti og steik-
ið.
Sveppaeggjakaka
Steikið sveppi í smjöri og hellið
eggjakökumassa yfir eða búið til
jafning og fyllið eggjakökuna með
Itonum.
Bóndaeggjakaka
Steikið hráa kartöfluteninga og
blandið fíntsöxuðum lauk saman
við, steinselju, skinku, eða pylsu.
Setjið yfir eggjakökumassann og
steikið.
Aspaseggjakaka
Hellið eggjakökumassa yfir asp-
as hitaðan í smjöri eða fyllið eggja-
kökuna með aspasjafningi.
Skinkueggjakaka
Hellið eggjakökumassa yfir fínt-
saxaða léttsteikta skinku og krydd-
ið með múskati eða kerfil. Hellið
eggjakökumassanum yfir og steik-
ið.
Páskasalat
I stóra skál er sett [ hrúgur
harðsoðin egg, skorin í tvennt,
reykt pylsa, skorin í strimla, maís,
hálfar agúrkusneiðar og tómat-
bátar. Rétt áður en salatið er borið
fram er franskri sósu hellt yfir og
má gjarna krydda hana með hvít-
lauk. Salatskálina er einnig gott að
nudda að innan með hvítlauk.
HarðsoSin egg með
sósu
Setjið salatblöð, sem skorin eru
í strimla á flatt fat. Skerið þvert á
endann á harðsoðnum eggjum svo
þau geti staðið sjálf. Þekið síðan
annað hvort egg með mayonesse,
sem bragðað er til með þeyttum
rjóma og rifinni eða þurrkaðri pip-
arrót. Hin eggin eru þakin með
tómatkrafti, bragðbættum með
hvítlaukssalti, papriku og hvítum
pipar.
5. tbi. VIKAN 15