Vikan


Vikan - 11.02.1971, Qupperneq 19

Vikan - 11.02.1971, Qupperneq 19
og hann hafði lofað Brandon skipstjóra, hafði ekki nein áhrif á hana, svo hann flýtti sér að breyta umræðuefni. Og þeg- ar hann spurði hana hvaða minningar hún hefði sjálf frá Englandi, svaraði hún því til að hún hefði aðeins búið í Ply- mouth. — Móðir mín sá um heimili Josiah Barrows skipstjóra, sem Kit sigldi með, sagði hún til skýringar, — og þegar Barrow skipstjóri dó, erfði Kit allar eigur hans. En bróðir minn var ákveðinn í að setjast að á Ja- maica, svo hann seldi húsið og tók- okkur mömmu með sér til Port Royal. Þau höfðu nú tekið sér sæti á bekknum við tréð og Sir Joce- lyn veifaði sér með fjaðra- skreyttum hattinum. Hann spurði: — Var bróðir yðar þá farinn að stunda þessi sjórán? — Nei, alls ekki, sagði hún og hristi höfuðið. — Hann var skipstjóri á verzlunarskipi, en rétt eftír að við komum hingað var skipi hans sökkt, og það var rétt svo að Kit og félagar hans komust lífs af. Það voru Spán- verjarnir sem þar voru að verki. Hann sór þá að þeir skyldu fá að borga tap hans margfalt aftur, og það loforð hefir hann dyggilega haldið. í dag er hann einn af ríkustu mönnum hér í Port Royal og Spánverjarnir óttast hann og hata hann líka af öllu hjarta. Þegar Nick Haltrop og Alex Blair, vinir og skipsfélagar Brandons skipstjóra komu til Fallowmeed, síðar um daginn, voru þau Damaris og Sir Joce- lyn orðin beztu vinir. Honum fannst hún ákaflega aðlaðandi, og þótt hún réði yfir kvenleg- um töfrum, þá var hún svo ákveðin, að hann var viss um að hún notfærði sér þá aðeins til að ná fram ákveðnum vilja sínum. Hún var ekki eingöngu fögur og aðlaðandi, hún var líka greinilega mesti forkur, því það kom í ljós að þegar bróðir hennar var á hinum löngu sjó- ferðum sínum, stjórnaði hún heimili hans af myndugleik. Sir Jocelyn hugsaði með • sér að hún væri mjög athyglisverð stúlka í einu og öllu. Honum var strax ljóst að Nick Halthrop hafði mikið álit á henni. Það var líka greinilegt að ungi maðurinn var mjög ástfanginn af henni, en hann gat ekki greint hvort hún end- urgalt tilfinningar hans. Sir Jocelyn hafði það á tilfinning- unni að hún tæki þetta allt sem leik. Líklega var bróðir henn- ar sá eini sem hún var hrifin af ennþá, hugsaði hann. Hann hugsaði með sér hvað Brandon áliti um þetta og hafði auga með honum meðan á mál- tíðinni stóð. Það var ekki gott að geta sér til hvað þessi ró- legi, ákveðni maður hugsaði, en Wade fannst hann sjá ó- ánægju í bláum augunum, þeg- ar þeim var beint að Damaris og Nicholas. Hann var ekki hissa á því, ungfrú Brandon gat ábyggilega fengið betra gjaforð. Hugrenningar Wades voru truflaðar við það að ung- frú Brandon sagði gestum sín- um að þeir mættu ekki segja frá nærveru Sir Jocelyns á Fallowmeed. — Hann er hér í ákaflega viðkvæmum erindagjörðum og ég hefi lofað að hjálpa honum, en óvarlegt orð getur kollvarp- að áformum okkar. Nick sagðist vera reiðubúinn að hlýða skipunum hennar, bæði í þessu og öðru, en Blair iæknir, sem kom fram við hana eins og eldri frændi, sagði með sinni þurru kímni, sem átti ekki sérlega vel við þunglyndislegan svip hans: — Ef þetta er eitthvert við- kvæmt erindi og þú ætlar að hiálpa, stúlka mín, þá verð ég að segja að Sir Jocelyn hefir mína dýpstu samúð. — Þér skuluð ekki hlusta á hann, Sir Jocelyn, fussaði hún. — Þér eigið eftir að sjá hve heppinn þér voruð að hitta Kit. Hún hrukkaði ennið. — En vitið þið nokkuð, ég veit ekki ennþá hvernig fundum ykkar bar saman. Sir Jocelyn létti við að sam- talið barst inn á aðrar brautir, og fór að segia frá með miklum ákafa hvernig Brandon skip- stióri hafði bjargað honum úr klóm sióræningjanna, en hon- um til mikillar furðu, varð Framhald á bls. 46 6. tw. VIKAN 19

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.