Vikan - 11.02.1971, Síða 26
Það fer ekki milli mála að Sigríður Þorvaldsdóttir
er ein sú efnilegasta af ungu leikkonunum okkar. Hún
hefur starfað við Þjóðleikhúsið síðan 1964, en áður
hafði hún um fimm ára skeið dvalið í Bandaríkjunum,
fyrst við leiklistarnám og síðan starfað sem leikkona.
Þau eru orðin mörg hlutverkin, sem hún hefur farið
með á sviði Þjóðleikhússins, en líklega er hún leikhús-
gestum minnisstæðust sem Snæfríður íslandssól í síð-
ustu uppfærslu Islandsklukkunnar. Og á þessu leikári
hefur hún á hendi tvö viðamikil leikhlutverk sarritímis,
Margréti í Fást og Agnesi í Eg vil, ég vil. Hefur frammi-
staða hennar í báðum þessum hlutverkum vakið verð-
skuldaða athygli og nú hefur Karl Vibach, þýski leik-
stjórinn sem stjórnaði uppfærslunni á Fást, boðið Sigríði
til Lijbeck til að leika Agnesi þar, en sviðsetning á Ég
vil stendur fyrir dyrum í borgarleikhúsinu þar og verð-
ur frumsýningin nítjánda apríl næstkomandi. Vibach sá
leikinn í Þjóðleikhúsinu og varð yfir sig hrifinn af
leik og söng Sigríðar.
Vikan hitti Sigríði fyrir skömmu að máli uppi í Mos-
fellssveit, þar sem hún og eiginmaður hennar, Lárus
Sveinsson trompetleikari, hafa komið sér upp stóru og
tcllegu húsi. Við spurðum hana að sjálfsögðu fyrst hvað
hún hyggði til Þýskalandsferðarinnar, en þess munu fá
dæmi að íslenskri leikkonu hafi hlotnast slíkur heiður.
— Ég er auðvitað ákaflega hrifin af þessu, sagði Sig-
ríður. — Þetta er mjög spennandi og skemmtilegt. Ég
á að læra hlutverkið á þýsku hér heima, en fer út
um miðjan marz. Sýningarnar í Lúbeck standa út leik-
árið, eða fram í endaðan júní.
Við notuðum tækifærið til að spyrja nokkurra spurn-
inga varðandi ævi- og leikferil Sigríðar. Hún er fædd
VIKAN heimsækir
Sigríöi
Þorvaldsdóttur,
leikkonu
Texti: Dagur Þorleifsson
Myndir: Egill SigurSsson
„Þetta krefst mik-
illar einbeitingar.
Annars gengur það
ekki.“
26 VIKAN 6. tbi.
„Eg reyni að láta mér
og uppalin í Reykjavík, dóttir Þorvalds Steingrímssonar
fiðluleikara og konu hans Ingibjargar Halldórsdóttur.
Móðurætt hennar er úr Gerðum í Garði, og afi hennar
í föðurætt var Steingrímur Matthíasson læknir á Akur-
eyri, Jochumssonar skálds. Leiklist hefur ekki verið eina
viðfangsefni Sigríðar um dagana; hún fór í Iðnskólann
og er síðan hárgreiðslumeistari að mennt. Og að sjálf-
sögðu er hún alin upp við tónlist frá blautu barnsbeini.
— Ég spilaði sjálf á píanó, lærði svona eins og krakk-
ar gera. Það hefur oft komið sér vel, það hefur verið
gaman að spila með pabba, og svo höfum við Lárus
spilað svolítið saman. Við gerðum það til dæmis 'einu
„Miss Universe-
keppnin haföi
þá góðu hlið að ég
fékk styrk, sem
gerði mér fært að
stunda leik-
listarnám í Los
Angeles næstu
árin.“