Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 31
Og eins og segir í greinninni um
Þrjú á palli, hefur Helgi R. Einars-
son slegizt í lið með Kristínu Ólafs.
Halldór Fannar hefur aðstoðað
hana undanfarna mánuði, en hann
er við háskólanám og hefur lítinn
tíma. Munu þau Kristín og Helgi
syngja bæði og vera skemmtileg og
eftir því sem kunnugir segja okkur
þá hljóma þau mjög vel saman,
enda fellur rödd Helga sennilega
prýðilega við rödd Kristínar. Upp-
haflega var ætlunin að Ríkharður
Pálsson, bassaleikari, væri með þeim
líka, en af því varð þó ekki. Það
virðist vera að færast fjör í „folk“
þessa dagana.
Arlo ti Woddy
Gnthrie:
Sess I hjarta
alheimsins
Hér segir iítillega af þessum
frægu feðgum, sem eiga sér enga
hliðstæðu í veröldinni
Arlo Guthrie er ungur maður
sem er að, reyna að flýia Oldurhús
Alísu. Það var að vísu það lag og
sú mynd sem gerði hann að þeirri
stjörnu sem hann er, og þrátt fyrir
að hann segist vera ánægður með
myndina er það mjög greinilegt
að hún fjaIlar um ákveðinn kafla
í lífi hans sem nú er liðinn.
,Það skiptir ekki máli hvort
myndin er góð eða slaam/' segir
hann, ,,hún er um tímabil í ævi
minni sem nú er búið. Hún er um
mánuðina eftir að ég hætti í skóla
og fór að verða ég sjálfur. Nú er
ég giftur, orðinn faðir og er hreint
f skýjunum yfir því. Viðhorf mfn
eru allt önnur nú.
Jú, ég myndi vilja leika í ann-
arri kvikmynd, en hún yrði þá að
vera ákaflega ólík „Oldurhúsi Al-
fsu". Ég er eiginlega búinn að fá
nóg af þessu veitingahúsakjaftaeði.
Það var meira að segja gefinn út
bæklingur: „How to set up your
own Alice's Restaurant", gefinn
út af „Alice's Restaurant Incorp-
orated"! Er nokkur furða þó maður
sé leiður á þessu?"
Þegar Arlo fyrst fór að syngja
„Öldurhús Alísu" var laginu tekið
sem einskonar þjóðsöng byltingar-
þenkjandi æsku. En nú virðist se_m
lagið sé orðið hluti af kerfinu sem
það átti að gagnrýna. Það sama
hefur skeð áður: „We Shall Over-
come".
En það hefur Ifka sett Arlo i
vanda .Hann hafði haft frá föður
sínum (Woody Guthrie) og Will
Rogers þann eiginleika að koma
fólki til að hlæja að sjálfu sér. En
það hefur farið fyrir Arlo eins og
mörgum öðrum, hann hefur séð og
fundið orð sín verða að „klissju"
um leið og hann sleppir þeim. Um
leið og Arlo Guthrie hefur sagt
eitthvað hefur það flogið um all-
an heim og er álitið sniðugt. Hann
vill enn láta fólk hlæja að sér, en
han vill líka fá fólk til að hugsa.
„Kannski get ég það með því að
segja ekki neitt!" segir hann.
Arlo lærði list sína af föður sín-
um, snillingnum Woody Guthrie,
og eins og allir sem komust f
kynni við Woody varð hann fyrir
miklum áhrifum frá honum. Bob
Dylan ferðaðist fleiri hundruð kíló-
metra einu sinni til að sjá Woody
áður en hann dó, en það var árið
1967 sem hann lézt úr „Hunting-
ton's kóleru".
Woody ferðaðist frá Oklahóma.
um öll ríkin 48 (á meginlandinu
þ.e.), og um öll heimshöfin. Hvar
sem hann fór söng hann og lifði í
tónlist. Enginn veit hversu mörg
lög urðu til f huga Woody, en
safnari nokkur segist hafa talið
yfir 1000. Það myndu þó aðeins
vera þau sem Woody lét sig hafa
að skrifa niður.
Það var ekki tónlistin sem
Woodv skapaði, er vann honum
það álit — nær ofurmannlesgt —
er hann nýtur nú. Það er orðin
sem hann setti með tónlist sinni.
Yfirleitt tók hann gömul og aróin
þjóðlög og stílfærði þau, rétt eins
og margir þjóðlaga- og vísna-
söngvarar gera í dag, en orðun-
um breytti hann algjörlega og
samdi yfirleitt eigin texta. Og það
voru orð hans, tilfinningar, sem
náðu til fólksins á þeim tíma sem
hann var hvað ákafastur.
Arthur Penn, leikstiórinn sem
stjórnaði „Alices's Restaurant" og
„Bonnie & Clyde", sagði: „Þeg-
ar við vorum að reyna að finna
einhvern stíl og eitthvert mótív í
Bonnie & Clyde, þá hefði okkur
nægt að hlusta á meðferð Woody
á „Pretty Boy Floyd". Okkur tókst
að vísu að finna rétta mótívið, en
Woody var með þetta allt í einu
lagi." „Pretty Boy Floyd" fjallar
annars um útlaga sem varð eins-
konar Hrói Höttur:
„Oh, through this world I wander
and through this world I roam.
I've never seen an outlaw
drive a farmer from his home.
. . . some will rob you with a
six-gun
scme with a fountain pen . . ."
Bob Dylan viðurkennir fúslega
að hann hafi orðið fyrir áhrifum
frá Woody og Arlo hefur gaman
af því að segja söguna af því er
ungur og barnalegur Robert Zimm-
ermann, sem síðar kallaði sig Bob
Dylan, réðst inn í herbergið sitt í
Massachusetts og heimtaði að fá
að sjá Woody.
Fleiri snillingar segjast skulda
Woody mikið, og má nefna á með-
al þeirra Joan Baez, Ramblin' Jack
Elliot, Odettu, Richie Havens,
Pete Seeger, Phil Ochs, Will Greer
og marga fleiri.
Sá sess sem Woody Guthrie hef-
ur í hjörtum fólks víða um heim
verður ekki mældur með neinni
stiku. Það hefði sært Woody. Lög
sín skildi hann eftir handa okkkur
og það er sjálfsagt það eina sem
hann óskaði sér. Að við mættum
eiga lög hans og bók, „Bound For
Glory" — sem hann vissulega var,
eða eins og Phil Ochs sagði eitt
sinn í kvæði um Woody: „Now
he's bound for a glory all his
own."
Amen.
Feðgarnir Arlo og VVoody Guthrie: Spámenn tveggja kynslóða.
e. tbi. VIKAN 31