Vikan


Vikan - 11.02.1971, Qupperneq 49

Vikan - 11.02.1971, Qupperneq 49
Svör við hvenær, hver, hvar: •gjojjSJn^H i jn | |sj. 60 |epeddeuH J |ujba -egéjssppo Jn jnuja>| ujes 'e|g|3A -xe| uun>| J3 ejegjelpjen ’suueuj -dne>| ipuejSAjjÁ^ 'jeuossugr Jess -uubh e6es|Ase js „||dsjeuols e6g| -ujopgnö g|H" >Z6l S!J? ja JB -g66Áqspue|S| !|seuqe bjb 0011 Karlmenn og hégómi f heljarmiki11i veizlu hélt lafði Nancy Astor því eitt sinn fram, að karlmenn væru hégómag|arnari en konur. Er kröftug mótmæli voru borin fram gegn þessari staðhæf ingu, sagðist hún vera reiðubúin til að sanna mál sitt. Hún beindi brátt samræðunum að karlmanna- fatatízkunni og sagði síðan skyndi lega svo hátt að allir heyrðu: ,,Það er synd og skömm, að hinir skynsömustu og lærðustu menn skuli leggia svo litla áherzlu I á að ganga vel til fara. Sem dæmi um þetta vil ég vekja athygli á því, að vitrasti og sannm.enntað- asti maðurinn við borðið ber hroðalega illa hnýtt bindi." Það var eins og karlmönnunum hefði hverjum fyrir sig verið gefið merki. Þeir teygðu allir höndina upp að bindinu til að laga það. myndasafn vikunnar Þættinum hefur borizt safn af gömlum póstkortum, og þar er meðal annars að finna þessa gömlu mynd af Safnhúsinu í Reykjavík. Ekki er neitt ártal prentað á kort- ið, en hins vegar er það sent ákveðinni persónu árið 1911. Myndin getur hins vegar að sjálf- sögðu verið nokkru eldri en það. Safnhúsið er með fallegustu og virðulegustu húsum í Reykjavík. En ósköp virðist það einmanalegt á þessari mynd, þegar Þjóðleik- húsið vantar. Við höfum svo oft séð þau hús tvö saman á myndum, að okkur finnst þau sem ein heild, þótt gjörólík séu. Við þökkum kaerlega þessi gömlu póstkort, og munum ef til vi11 birta fleiri þeirra síðar. Um leið viljum við ítreka tilmæli 1 iI lesenda um að senda okkur gaml- ar myndir, sem þeir kunna að eiga í fórum sínum, og eins upplýsing- ar um myndir, sem við höfum þegar birt. Blaðafulltrúi Palmes Blaðafulltrúi Olofs Palme, for- sætisráðherra Svíþjóðar, er ung kona. Hún heitir Berit Rollén og er 34 ára gömul, gift kona og tveggja barna móðir. Hún hefur lokið háskólaprófi í félagsfræði, hagfræði og stjórnvísindum og fengizt nokkuð við blaðamennsku, meðal annars verið fulltrúi blaðs- ins Veckans Affarer um skeið. Ákvörðun Palmes um að velja konu í svo háa og mikilsverða stöðu stafaði ekki fyrst og fremst af verðleikum Berit Rollén á sínum tíma. Orsökin var aðallega sú, að landsfaðirinn og fyrirrennari Palm- es, Tage Erlander, hafði verið gagnrýndur harðlega fyrir. garjial- dags viðhorf til kvenna, en hann hafði fáar konur sér til fulltingis í stjórnartíð sinni. Palme reyndist heppinn í vali sínu. Berit er nú í hópi beztu ráðu- nauta hans og nánustu starfs- manna. Hún er gjarnan nefnd sem dæmi um nútímakonuna, eins og hún eigi að vera: vel menntuð, áræðin og upplitsdjörf og gegnir ábyrgðarmikilli stöðu. En smáfríð er hún ekki; freknótt, munnstór, með þykk spangagleraugu og gengur jafnan í buxnadragt. r ' > vísa vikunnar Sólin klár á hveli heiða hvarma gljár við baugunum, á sér hár hún er að greiða upp úr bárulaugunum. Sigurður BreiðfjörS.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.