Vikan


Vikan - 18.03.1971, Blaðsíða 32

Vikan - 18.03.1971, Blaðsíða 32
Húsmæðiiiiil Munið veizlubrauðið okkar í fermingarveizluna Pantið tímanlega í síma 18680 og 16513 Braiiðtooir Njálsgötu 112 SJP TRYGGING er hagkvæm fyrir alla Nokkur hætta fylgir öllum störfum og því er hverjum nauðsynlegt að vera VEL tryggður. Það nýjasta i tryggingaþjónustu Samvinnutrygginga er SJÚKRA- OG SLYSATRYGGING. Hlutverk hennar er að bæta tekjumissi af völdum sjúkdóma og slysa. Hún greiðir, á þann hátt veikindadaga f allt að þrjú ár, örorkubætur vegna slysa og sjúkdóma og dánarbætur af völdum slysa. Með viðbótar líftryggingu er hver og einn VEL tryggður. Leitið nánari uppiýsinga um þessa nýju trygginga- þjónustu okkar. SAMVirVINUTRYGGIIXGAR ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38500 STJORNVSPA HRÚT8- MERKID Zl. MARZ Z0. APRÍL. t>ér eruð í erfiðri að- stöðu, en þar munuð þér reyna, hvað vinir yðar eru yður trúir. Að því er varðar fjármál, skuluð þér vera varkár. Ef þér hafið stjórn á skapi yðar mun lífið leika alls staðar við yður. NAUTS- MERKIÐ 21. APRÍL 21. MAÍ Þér munuð starfa mikið og vel þessa viku, enda uppskera eins og til var sáð. Reynið að taka ákveðna afstöðu i máli nokkru, sem þér hafið lengi verið á báðum áttum með. TVÍBURA MBRKIÐ 22. MAl — 21. JTÚNÍ Gætið yðar á freisting- unum, sérstaklega i ástamálunum. Vikan byrjar mjög vel og verður fleytifull af gleði og óvæntum skemmtilegum atvikum. Þér skuluð ekki láta aðra hafa of mikil áhrif á yður, heldur vera Sjálfstæður. KRABBA- MERKID 22. JÚNÍ — 23. JÚLÍ Sá taugaslappleiki og óstyrkur, sem hefur þjakað yður um langa hríð, mun læknast í þessari viku mjög óvænt, og þér getið gengið til vinnu yðar af fullum krafti. Munið að heppni er oft með í djörfum áformum. LJONS- MERKIÐ 24. JÚLÍ — 24. ÁGÚSl Þér þarfnist uppörvunar og hana fáið þér hjá jafnöldum yðar, en gamla fólkið mun dæma yður hart og yfirleitt megið þér búast við harðri gagnrýni hvaðan- æva. Þér skuluð hætta að skopast að ákveðinni persónu. MEYJAR- MERKIÐ 24. ÁGÚST — 23. SEPT. ð Þrátt fyrir andstöðu úr mörgum áttum, getur svo farið að þér náið stöðu þeirri, sem mun breyta iifnaðarháttum yðar algjörlega. Treyst- ið á sjálfan yður og hæfileika yðar. Þá get. ið þér búizt við að hugmynd yðar komist i framkvæmd. VOGAR- MERKIÐ 23. OKT. 24. SEPT. Enda þótt þér séuð prúður og sáttfús mað- ur í ríkum mæli, mun- uð þér lenda í rifrildi og vandræðum í þessari viku. Að öðru leyti er útlitið gott og yfir síð- ustu dögum vikunnar rikir rómantískur ljómi. DREKA- MERKIÐ 24. OKT. 22. NÓV. Yður skal ráðlagt að sýna umfram allt þolin- mæði, því að langur tími mun líða, unz breytingar er að vænta í lífi yðar. Ástamálin verða erfið þessa viku. Þér skuluð ekki vera of gagnrýninn á bresti annarra. BOGMANNS MERKIÐ 23. NÓV. 21. DES. Enda þótt ofurlítið at- vik hafi sett yður úr jafnvægi nú um skeið, skuluð þér ekki óttast afleiðingar þess. Þér skuluð ekki láta freist- ast af ioklcandi tilboð- um, því að stjörnurnar teija lítið mark takandi á þeim. STEIN- GEITAR- MERKIÐ 22. DES. — 20. JAN. Þér skuluð gæta varúð- ar gagnvart persónum, sem eru að smjaðra fyrir yður. Ofurlítið ástarævintýri mun lífga upp á hinn gráa hvers- dagsleika í þessari viku. Ef þér réttið persónu nokkurri hjáiparhönd eignizt þér vin upp á lífstíð. VATNSBERA- PISKA- RW MERKIÐ MERKIÐ Æk pjL 21.JAN— (Jmj) EEB.- J3LE 19. FEB. | 20. MAItZ WWW Reynið að leiðrétta mis- Það mun borga sig að skilning, sem verið hef- breyta svolítið út af ur lengi milli yðar og hinum daglega vana í náins vinar. Þetta er þessari viku, því að það lítilvæg misklíð, en rlður á að grípa gæsina hefur samt valdið ykk- meðan hún gefst. Ef til ur báðum miklum viU kynnizt þér nýju og óþægindum. í þessari skemmtilegu fólki, sem viku fáið þér ofurlitla mun verða yður mikil úppbót á laun yðar. stoð. 32 VIKAN ll.TBL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.