Vikan


Vikan - 18.03.1971, Blaðsíða 34

Vikan - 18.03.1971, Blaðsíða 34
FYRSTA FLOKKS FRÁ FÖNIX Neðstu þrepin slitna örar- en lausnin er á efsta þrepinu! HAFIÐ ÞÉR TEKIÐ EFTIR ÞVÍ — að leppið á neðstu stigaþrepunum slitnar örar en á hinum. Sandur, stein- korn, glersalli og önnur gróf óhreinindi, se/n berast inn af götunni, þurrkast af skónum á neðstu þrepun- um, setjast djúpt í teppið, renna til, þegar gengið er á því, sarga sundur hárin við botninn og slíta þannig teppinu ótrúlega fljótt. Og grófu óhreinindin berast líka inn á gólfteppin í sjálfri íbúðinni, inn um opna glugga og á skónum, því ekki er alltaf gengið um teppalagðan. stiga. En æðrist ekki - lítið bara upp hinn tæknilega þróunarstiga - þar blasir lausnin við - Á EFSTA ÞREPINU: NILFISK - heimsins bezta ryksuga! NILFISK VERNDAR GÓLFTEPPIN — því ekki skortir sogaflið, og afbragðs teppasogstykkið rennur mjúk- lega yfir teppin, kemst undir lágu húsgögnin (mölur!) og DJÚPHREINSAR fullkomlega. NILFISK slítur ekki teppunum, hvorki bankar né burstar, en hreinsar mjúklega með nægu, stillanlegu sogafli. FJÖLVIRKARI — FUÓTVIRKARI — VANDVIRKARI — ÞÆGILEGRI — HREINLEGRI — TRAUSTARI • fleiri og betri fylgistykki • fjöldi aukastykkja: bónkústur, fatabursti, málningarsprauta, hitablás- ari, húsdýraburstar, blástursranar o.m.fl. # meira sogafl • stöðugt sogafl • stillanlegt sogafl • hljóður gangur • hentug áhaldahilla • létt og lipur slanga • gúmmístuðari • gúmmíhjólavagn, sem eltir vel, en taka má undan, t.d. í stigum • hreinlegri tæming úr málmfötunni eða stóru, ó- dýru Nilfisk pappírs-rykpokunum • áratuga reynsla • dæmalaus ending • ábyrgð • traust vara- hluta- og viðgerðaþjónusta • gott verð og greiðsluskilmálar. SÍMI 2 44 20 — SUÐURGÖTU 10 Damaris varð mjög glöð og bað þjóninn að vísa þeim inn. Hún gekk á móti aðalsmönn- unum tveim, með útrétta hönd- ina í áttina til hins yngri, sem hún hafði alveg sérstakt dálæti á. Martin Farraniourt kynnti bróður sinn og jarlinn hneigði sig hæversklega fyrir henni. Hún hneigði sig líka og þegar hún leit upp mætti hún haf- bláum augunum, sem virtu hana fyrir sér með miklum áhuga, eins og hann væri að meta hana frá hvirfli til ilja. Hún kastaði höfðinu aftur á bak og mætti augnaráði hans. Þegar þau stóðu þarna and- spænis hvort öðru, þá var greinilegt hve lík þau voru. Regina saup hveljur og Jocelyn sá að hann hafði átt kollgátuna. Damaris hafði ekki hugboð um þá spennu sem ríkti í kring- um hana. Hún gleymdi ekki húsmóðurskyldum sínum og sinnti þeim með sinni eðlilegu háttvísi. Chelsham heilsaði Reginu og Jocelyn og óskaði þeim til hamingju með trúlof- unina og síðan fóru þau öll að tala um almælt tíðindi. Martin tók lítinn þátt í samræðunum, en Chelsham ýtti undir Damar- is að tala og sá, sér til ánægju, að málið virtist liggja ljóst fyr- ir! Skyndilega þögnuðu samræð- urnar við það að í fjarska heyrðust fallbyssudrunur. Þá stökk Damaris upp með ljóm- andi augum. — Kit, sagði hún lágt. Og áður en hitt fólkið hafði áttað sig, var hún rokin upp í sitt eigið herbergi, þar sem hún hafði útsýni yfir höfnina. Jocelyn sagði snöggt: — Þetta hlýtur að vera Brandon. Regina stóð upp og fylgdi eftir Damar- is. Martin leit til bróður síns og það var ótti í augnasvipnum, en Chelsham leit niður á hönd sína þar sem hringurinn með par- dusinum ljómaði. Þegar Regina kom upp, stóð Damaris á svölunum með sjón- auka fyrir augunum og svo sneri hún sér að vinkonu sinni, rjóð og glöð. — Hann hefir unn- ið sigur, sagði hún. — Hann hefir náð silfurskipinu! Hvern- ig datt mér líka í hug að efast um það? Ó, Regina, hann er engum líkur! Hún stakk sjónaukanum í hendur Reginu og benti henni út á sjóinn. Regina kom loksins auga á skipin. Þau runnu hægt inn á höfnina, „Loyalist" á und- an og „Jane“ á eftir og að balci þeirra hin stóra spænska skon- norta. Öll báru skipin vott um mikil átök, en jafnvel Regina gat séð að þetta var ennþá einn sigur Lucifers skipstjóra. Hún fékk Damaris aftur sjón- aukann, sem grandskoðaði allt sem hún kom auga á, en fann sig að lokum knúða til að fara niður aftur. að var greinilegt að þjónaliðið þurfti ekki neinar fyrirskipanir, eftir að það hafði heyrt fallbyssudrunurnar. Bryt- inn var nýbúinn að bera vin inn í stofuna, þar sem herra- mennirnir biðu. Damaris bað hann að skenkja í glösin og sneri sér svo að gestunum, rjóð og ljómandi í framan. — Nýr og hetjulegur sigur, sagði hún. — Bróðir minn kem- ur heim með spænska freigátu hlaðna dýrgripum frá Mexico og Perú. Slæmt fyrir Spánverja en sigur og björg i bú fyrir England. Hún sneri sér því næst að Chelsham jarli og hafi hann áður verið hi-ifinn af fegurð hennar og framkomu, þá sá hann núna fullvaxna konu, sem var gjörbreytt, ljómaði af ham- ingju og henni hafði sýnilega létt mikið. — Herra minn, bað líður ekki á löngu þar til ég get kynnt bróður minn fyrir yður, þá skuluð þér fá að sjá hve mikið hans hátign hefir hinum svokölluðu sjóræningjum að þakka. Chelsham hneigði sig og það 34 VIKAN 11. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.