Vikan


Vikan - 18.03.1971, Blaðsíða 19

Vikan - 18.03.1971, Blaðsíða 19
HUGSIÐ VEL UM EIGINMANNINN 2. GREIN Mönnum hættir við að fitna með aldrinum. En áður en þér farið að gera einhverjar ráðstafanir, verðið þér að ganga úr skugga um raun- verulegt ástand heilsu hans. EN GLEÐJIÐ HANN SJÖUNDA DAGINN skynsamlegt að ganga of langt. Það er hægt að ná góðum ár- angri með litlum breytingum á maíseðli mannsins þíns, t. d. að nota jurtafeiti eða jurta- olíu við steikingu. Það er mjög líklegt að maðurinn taki ekki einu sinni eftir því. Það er líka athyglisvert að margar grænmetis- og ávaxta- tegundir eru nokkuð hitaein- ingaríkar og þess vegna er ekki einhlítt að borða eins mikið af ávöxtum og mann lystir. Til dæmis er bezt að fara varlega í að borða of mikið af næpum, rauðrófum og öðrum rótarávöxtum. Meðal- stór banani inniheldur 100 hita- einingar, eitt glas af appelsínu- safa jafngildir einu glasi af öli! Magurt kjöt og fuglakjöt getur maðurinn borðað eftir vild. Það sama er að segja um ofnbakaðan, glóðarsteiktan fisk. Margar ostategundir eru líka hitaeiningasnauðar og salat er hættulaust. En það er um að gera að forðast mjölmat og majonessósur. En þú verður nú að vera mannleg á sumum sviðum. — Eileen Fowler, þekktur sér- fræðingur í næringarefna- fræði, mælir með því að setja manninn á megrunarfæði sex daga vikunnar, en gera sunnu- daginn að hátíðisdegi hvað matinn snertir. Þá á eiginmað- urinn að fá að njóta þess mat- ar, sem hann hefur dálæti á, jafnvel þótt það sé rjómarönd með karamellusósu. — Það fyrirkomulag hefur tekizt, segir hún. — Og mundu að það verður að takast ef þú vilt að maðurinn þinn lifi jafn lengi og þú. Er ekki líka hugsunin um það að fá að eld- ast saman og halda heilsu þess virði að reyna allar leiðir? ☆ 11. TBL. VIKAN 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.