Vikan


Vikan - 18.03.1971, Blaðsíða 21

Vikan - 18.03.1971, Blaðsíða 21
hverfinu (Old Town) en varð að spila eintómt twist. Allt vai twist — meira að segja „Harni á afmæli í dag. ... “ — Það næsta sem ég komst til að kynnast blues-snillingum, var í gegnum Mike Bloomfield. Hann átti kaffihús í Chicago um þetta leyti og var þar stund- um með fólk eins og Big Joe Williams og aðra sem höfðu verið frægir en síðan gleymd- ir. Þetta hús sitt kallaði hann „Fickle Pickle“, og ég fór þang- að einstaka sinnum og skemmti mér. Allt annað í Chicago þá var hundleiðinlegt. Allir voru að stæla Elvis Presley og Bobby Vee og heima í Texas voru all- ir að stæla Ray Charles og James Brown. — Þá fór ég aftur heim til Beaumont og stofnaði hljóm- sveit, sem var til í nokkra mánuði. Edgar bróðir hafði stofnað jazzhljómsveit sem var í Atlanta og þeir áttu ekki einu sinni að éta. Þeir höfðu komizt í kynni við einhvern umboðs- mann þar, en hann vildi ekki taka þá að sér nema þeir spil- uðu eitthvað annað. — Ég slóst í hópinn og við spiluðum næri hvað sem var. Rokk, soul, blues og meira að segía lög frá Beatles og Rolling Slones, sem voru þá að byria. Ég hlustaði alltaf á blues og gerði allt sem ég gat til að koma blues inn í prógrammið hjá okkur. — Og svo fyrir um það bil þremur árum síðan gerði ég mér grein fyrir því að það var til nóg af fólki sem vildi hlustn á blues. Heima í Texas voru engir hvítir menn í blues. En ég stofnaði mína eigin blues- hljómsveit og fékk með mér bassaleikara og trommara. o« í um það bil ár vorum við í Texas. Svo hittum við Steve Paul, sem er nafn í New Yoork. og þegar hann hafði farið með okkur þangað fórum við að spila inn á plötur fyrir CBS. — Við byrjuðum sem tríó, en Edgar bróðir gekk í lið með okkur fyrir hálfu öðru ári síð- an. Hann spilar á píanó, saxó- fón, svolítið á trommur og svo syngur hann. Hann hafði þá verið í Houston og gerði ekki neitt, og þar sem við höfðum verið þrír saman í heilt ár, datt mér í hug að fá Edgar með okk- ur. Það hefur reynzt vel. Hann er svolítið klassískur í sér, svo hver veit nema við förum eitt- hvað út í það þegar fram í sækir. -fr \y , V' V: " iil »1111 m 11. TBL. VIKAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.