Vikan - 18.03.1971, Blaðsíða 31
Hús og húsbúnaður
STÍLFEGURÐ OG
NOTAGILDI
Húsgögn, sem hægt er
að breyta með einu
liandtaki og þjóna þannig
fleiri en einum tilgangi, eru
liagkvæm, sérstaklega þar
sem húsrými er lítið. Rauði
sófinn neðst á síðunni hér
til vinstri hentar til að
mynda sérstaldega vel fyrir
þá, sem búa í einni stofu og
liafa ekkert svefnherbergi.
Með því að taka sessurnar
og raða þeim á gólfið er á
augabragði komið hið þægi-
legasta rúm. Ú.tdregnir
svefnsófar liafa lengi verið
yinsælir, en þessi aðferð er
ekki síðri. Enn nýstárlegri
eru stólarnir á stóru mynd-
inni hér til vinstri, en þeir
eru sundurdregnir og liægl
að hafa þá á þrjá mismun-
andi vegu, eins og myndin
sýnir. Bæði húsgögnin eru
frönsk og höfundarnir hafa
haft i heiðri þær megin-
reglur að hafa þau form-
fögur og stílhrein, en jafn-
framt gætt þess, að þau búi
vfir fjölhreytilegu notagildi.
SKRIFPÚLT
Það var til siðs hér í
gamla daga að skrifa
standandi við púlt en elcki
sitjandi við skrifborð eins
og nú tíðkast. Til eru þeir
menn sem enn kjósa helzt
að skrifa við ])últ, til dæm-
is Ilalldór Laxness. Einnig
mun Ilemmingway alltaf
hafa unnið á þennan hátt.
Gamaldags húsgögn og
munir eru nú mjög í tizku,
eins og kunnugt er, og einn-
ig skrifpúltið liefur gengið
i endúrnýjun lífdaganna. —
Hér til liægri sjáum við
spánnýtt, þýzkt skrifpúlt,
einfalt i sniðum og fyrir-
ferðarlítið. Menn verða
kannski ekki Nóbelsskáld
af því einu að skrifa stand-
andi, en svona skrifpúlt er
frumlegt og skemmtilegt
húsgagn.