Vikan


Vikan - 29.04.1971, Qupperneq 4

Vikan - 29.04.1971, Qupperneq 4
Merkíd sem allír þekkja Úrval fallegra íita ný sending ný mynstur KLÆÐNING HF LAUGAVEGI 164 SÍMAR 21444-19288 4 VIKAN 17. TBL. P0STURINN llluga Kærkomni Póstur! Ég ætla að biðja þig að aðstoða mig. Veizt þú, hvar Michael York á heima? Viltu vera svo góður að birta heimilisfang hans fyrir mi'g. Einnig ætla ég að spyrja þig álits: Finnst þér asnalegt, að stelpa heiti llluga? Er það ekki gamalt og gott, norrænt nafn? Ég verð fermd í vor og mig langar til að bæta llluga-nafn- inu í nafnið mitt. Pabbi segir þetta vitleysu, enginn kvenmað- ur hafi heitið þessu nafni. Get ég ekki tekið mér upp þetta nafn? Svaraðu mér fljótt og vel, því að mér er þetta mikið hjart- ans mál. Vonandi lendir þetta bréf ekki í ruslakörfunni, heldur verður birt í blaðinu hjá ykkur. Sveinbjörg Hallgrímsdóttir. P.S. Hvernig er skriftin og hvað lestu úr henni? Við höfum ekki heimilisfangið, sem þú biður um í upphafi bréfs þrns. Og þá er komið að þvi stóra máli, hvort þú eigir að láta hressa svolítið upp á nafn- gift þína um leið og þú ferm- ist. Það er laukrétt hjá þér, að Hluga er gamalt og gott nafn, sem kemur fyrir í fornsögunum, þótt það sé sjaldgæft nú á dög- um. Okkur finnst ekkert athuga- vert við nafnið. Það hljómar bærilega og er alveg laust við alla væmni. Ef þér er þetta mik- ið hjartansmál, þá skaltu ekki hika við að berjast fyrir þvi, þar til sigur hefur unnizt. — Skrift- in er dálítið óregluleg, en ber vott um skapfestu, sjálfstæði og sterkan vilja. Plötur Bítlanna Kæri Póstur! Ég ætla að byrja á því að þakka Vikunni allt gamalt og gott, en snúa mér síðan beint að efninu: A George Harrison barn? Vin- kona mín segir, að hann eigi þriggja ára gamlan son, en ég segi, að hann eigi ekkert barn. Svo ætla ég að biðja þig að birta lista yfir allar plötur Bítl- anna. Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna. M.S. P.S. Hvernig er skriftin og staf- setningin? Lengi framan af að minnsta kosti var George Harrison sá af þeim frægu Bitlum, sem ekkert afkvæmi átti. Hins vegar áttu þau hjónin forláta hund. Hafi hann hins vegar eignazt barn fyrir þremur árum, þá hefur það alveg farið framhjá okkur og áreiðanlega lítið verið sagt frá því í heimspressunni. — En hér kemur listi yfir LP-plötur Bítlanna. Listinn er úr bókinni um þá Sögu Bitlanna og nær að- eins fram til ársins 1967. En þú þekkir vonandi þær plötur, sem síðan hafa bætzt við: Please, please me (april 1963) With the Beatles (nóv. 1963) A Hard Days Night (ágúst 1964) Beatles for Sale (nóv. 1964) Help (ágúst 1965) Rubber Soul (desember 1965) Revolver (ágúst 1966) Sergeant Peppers Lonely Hearts Club Band (apríl 1967) Magical Mystery Tour (desember 1967). Ég hef það á sálinni Kæri Póstur! Ég hef aldrei skrifað þér áður en vonast eftir að þú svarir mér. Ég er sextán ára og er hrifin af strák, sem er tuttugu ára, ég hef aldrei verið með honum en þekki hann svolítið, ég sé hann oft og hann horfir svo mikið á mig en svo ef ég horfi á móti, þá verður hann eitthvað svo skrýtinn og ég hef á sálinni að hann sé eitthvað reiður við mig en ég hef ekkert gert honum. Góði Póstur, hvað á ég að gera? Ein sem er alveg ( rusli. Láta mætti sér detta í hug að honum þætti þú fullung fyrir sig, en það ætti að lagast, ef þú hefðir biðlund í fáeina mán- uði. Fyrst hann horfir mikið á þig, ætti hann að hafa áhuga. Vertu því bara órög og hættu ekki að horfa á hann, og sættu lagi til að tala við hann. Of feiminn Elsku Póstur! Ég hef aldrei áður skrifað þér, en finnst blaðið gott, og efni þess. Nú langar mig að biðja

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.