Vikan


Vikan - 29.04.1971, Page 12

Vikan - 29.04.1971, Page 12
ÞEGAR RIGNIR Á PREST1NN . . . drýpur oft á hringjar- ann líka. En í þessari sögu er ekki gott að sjá hvor er prestur og hvor hringjari. Þannig er það þá að ganga á skýjum, hugsaði Cliff Kynton, þegar hann kom út af skrif- stofu leikhússtjórans. Nú var allt klappað og klárt. Samningurinn undirskrifaður, öryggisleysið úr sögunni. Cliff var nú ljóst að hann var orðin stjarna. Að minnsta kosti var hann búinn að fá tækifær- ið. Það voru tvær vikur síðan leikhússtjórinn hafði hringt til hans og boðið honum aðalhlut-" verk í nýjum söngleik. — Við þurfum á nýjum . mönnum að halda, sagði hann. — Fólk er orðið hundleitt á að sjá alltaf þessi sömu andlit. líg hef tryggt mér næstum óþekkta leikkonu í kvenhlutverkið, og þið mun- uð klæða hvort annað vel. Cliff varð að klípa sig í hand- legginn til að vera viss um að hann hefði heyrt rétt, og hann hafði ekki þorað að trúa þessu, fyrr en hann sá nafnið sitt við hliðina á nafni leikhússtjór- ans, undir samningnum. En fréttin hafði nú á ein- hvern hátt lekið út. Það stoð á fremstu síðu i blaði leikara- samtakanna ,,Sviðsljósinu“, sem Cliff hafði stungið undir arminn. „Cliff Kynton fær aðalhlut- verk í nýjum söngleik“. Það hlutu allir að sjá það. Allir vinirnir í leikhúsbransanum gætu nú séð það, svart á hvítu, að hann væri nú orðinn hátt skrifaður og mundu eflaust öf- unda hann. — Ég er mjög ánægður með þetta, Cliff, sagði leikhússtjór- inn áður en hann kvaddi. — þú 12 VIKAN 17. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.