Vikan - 29.04.1971, Blaðsíða 19
Dýnan er úr plasti, skvamp-
ar og gleður og er kölluð
vatnsrúmið. Upphafsmaður
hennar segir að hún komi í
stað hrosshárs, froðuplasts og
fjaðra og síðan hún kom á
markaðinn í Ameríku fyrir
tæpu ári, er það greinilegt að
hún verður mjög vinsæl.
Nokkrir af h'inum fimmtán
þúsundum, sem keypt hafa
vatnsdýnuna, hafa verið spurð-
ir um álit þeirra og fara hér á
eftir nokkur svör: George
Push frá Kaliforníu segir að
það sé dásamlegt að vagga sér
í svefn í vatnsrúmi.
í auglýsingatextum segir:
„Það er tvennt sem vatnsrúm-
ið hefur til síns ágætis, annað
er rólegur svefn“, eða: „Lifið
og elskið í þessu mjúka hæg-
indi“, og „Ánægjualda umvef-
ur yður“. Umsagnir kaupenda
bera með sér að þessar auglýs-
ingar eru ekki tómt skrum.
Blaðamaður frá Los Angeles
segir: — Ég er ánægður með
vatnsrúmið mitt, það vaggar
úr mér þreytuna. Linda Butler
frá Concord í Kaliforníu segir:
— Allir sem koma í heimsókn
til riiín vilja skoða vatnsrúm-
ið og ekki nóg með það,
gestirnir vilja líka px-ófa það.
Það endar venjulega með því
að við flytjum okkur inn í
svefnherbergið, borðum þar og
drekkum.
Læknirinn Irving London
komst að þeirri niðurstöðu að
jafnvel konur með rúllur í
hárinu gætu látið sér líða vel
í vatnsrúmi.
Sá sem á heiðurinn af þess-
ari nýjung er ameríski teikn-
arinn Charles Prior og hann
sendi fyrsta rúmið frá sér ár-
ið 1967. Hann segir: „Eg fékk
þessa hugmynd þegar ég las
Kamasutra, þvi að þar stend-
ur að það sé indælt að elskast
í vatni. Spurningin var aðeins
hvernig hægt væri að koma
því við í fjölbýlishúsum. Þá
fékk ég þessa hugmynd. Mér
fannst það hneykslanlegt að
menn hugsa meira um þæg-
indi í bílunum sínum en í
rúminu. Þar sem maður eyðir
einum þriðja ævinnar í rúm-
inu, er ekki seinna vænna að
sinna þeim málum. Við fæð-
Framhald á bls. 43.
Vatnsdýnan „jumbo'', sem Linda Butler keypti og samkvæmi hennar enduðu oft með dansi á dýnunni.