Vikan


Vikan - 29.04.1971, Blaðsíða 50

Vikan - 29.04.1971, Blaðsíða 50
/ nœstu VIKAN heimsækir Sverri Haraldsson, listmálara og Steinunni Marteinsdóttur, leirkerasmið. I næstu viku bregðum við okkur upp í Mos- fellssveit, sem er að verða eins konar útborg Reykjavikur. Við heimsækjum þar hjónin Sverri Haraldsson, listmálara, og Steinunni Marteinsdóttur, leirkerasmið, en þau sitja nú býlið að Hulduhólum með rausn og myndar- brag, þótt með ólíkum hætti sé en áður var. Þau breyttu hlöðu og fjósi fyrrverandi ábú- enda í ibúð og vinnuhúsnæði og hafa kom- ið sér þar einstaklega skemmtilega fyrir. Osátt við skólann í þættinum „Við og börnin okkar" verður næst fjallað um það vandamál, þegar barnið byrjar að fara í skólann og verður ósátt við skólann og allt sem honum tilheyrir. Hvernig leysist morðgátan? í næsta blaði lýkur hinni spennandi saka- málasögu, sem Vikan hefur flutt að undan- förnu, „Á meðan bílstjórarnir voru á balli". Gátan er enn óráðin, en í næsta blaði leys- ist hún sem sagt og auðvitað á mjög óvænt- an hátt. Búa bak við lás og slá Það er ekki eintóm sæla að vera fræaur. Nú er svo komið að Sophia Loren og maður hennar, Carlo Ponti, hafa látið setja rimla fyrir alla glugga og hurðir á heimili sínu af ótta við að barni þeirra verði rænt. Það seg- ir nánar frá þessu í næsta blaði. Hvernig Lennon kynntist Yoko Þá er komið að síðasta hlutanum af viðtalinu fræga við John Lennon. Þar segir hann meðal annars frá því, hvernig hann kynntist Yogo upp- runalega og strið- inu milli hinna Bítlanna og hennar. HITTUMST AFTUR - í NÆSTU VIKU eftir drykklanga stund. — Það var blóð á kápunni hennar. Ég held að það hafi verið úr hund- inum, en.. . . — Sá sem morðið framdi hefur ómögulega getað vitað að ungfrú Bennet kæmi ein- mitt á þessari stundu, sagði Bill. — Það getur hafa verið tilviljun. Brannigan leit á hann yfir glasið. — Hafið þér minnzt á það við Wilkinson? Hvað seg- ir hann? — É'g minntist á það við hann, sagði Bill, — en hann lagði ekkert upp úr því. Sjálf- ur er ég helzt á því að morð- inginn hafi gert ráð fyrir að hún kæmi, ekki vitað það með vissu en haft heppnina með sér. En það hefði ekki átt að skipta miklu máli, þar eð hann vissi að þér kæmuð klukkan níu og fynduð John, svort sem Pat væri í húsinu eða ekki. Skoð- un mín er þessi, Brannigan: Einhver vissi af töskunum i húsi Johns; einhver vissi að Pat þurfti innihalds þeirra við og yrði því ef til vill í hús- inu um níuleytið. Einhver heimsótti John, sem hann opn- aði fyrir og var skotinn rétt á eftir. Svo skrúfaði morðinginn hitastil-linn upp til að líkið stirðnaði seinna, svo að erfið- ara yrði að ganga úr skugga um, hvenær John hefði dáið. Svo stillti morðinginn útvarp- ið, skildi dyrnar eftir ólæstar og hvarf. Síðasti liðurinn í áætluninni var að hringja til yðar og biðja yður að líta inn klukkan níu. Jafnvel þótt þér hefðuð ekki hitt Pat, hefði ver- ið auðvelt að sanna að hún hafði verið á staðnum. Kannski, sagði Branni- gan efablandinn. - Hann stóð upp. — En við megum ekki gleyma hugsanlegum ástæðum til morðsins, Ransome læknir. . . . Mér þykir það leitt, ung- frú Bennet. Hann vildi ekki trúa að ég hefði myrt John Ransome, en leit þó til mín með áhyggju- svip áður en hann fór. Það var auðvitað rétt hiá honum að þetta með útvarpið skipti litlu máli til eða frá. Það hafði aðeins þýðingu í sam- bandi við að slá föstu hvenær John hafði dáið, en það breytti ekki því að ég var á staðnum, var með blóð á kápuerminni og að skammbyssan var mín. Og við Biil höfðum tilefni til morðs. Framháld í nœsta blaði. 50 VIKAN 17. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.