Vikan - 02.12.1971, Qupperneq 6
FORMICA
laminate
Fyrir þá sem hafa efni á aS
velja þaS bezta.
G. Þorsteinsson & Jóhanson bf.
Ármúla 1 - Reykjavík
NÝTT FRÁ PIERRE ROBERT
AFTER SHAVE DEMI SEC
AFTER SHAVE SEC
NÚ ER VANDINN AÐ VELJA,
ÞVÍ NÚ FÆST PIERRE ROBERT
„AFTER SHAVE" í ÞREM FRÍSKANDI
ILMTEGUNDUM
GLEÐILEG JÖL
ISLENZK-
c^m&rlólzcL f
Pósthólf 129 - Reykjavík - SuSurlandsbraut 10 - Sími 85080
PÓSTURINN
Heims um ból / 7
fréttirnar
Fyrir nokkrum árum heyrði ég
plötu einhvers staðar, þar sem
einhverjir sungu „Heims um
ból" á ensku og var eitthvað
lesið ofan í sönginn. Þegar þetta
var þótti mér þetta ekkert sér-
staklega skemmtilegt; varð jafn-
vel hneykslaður yfir því að vera
að eyðileggja þennan fallega
jólasálm með einhverju þvaðri.
En svo hef ég alltaf verið að
hugsa um þetta öðru hverju og
nú er ég kominn á þá skoðun,
að þetta hafi verið mjög gott
og vil endilega eignast þessa
plötu. Gallinn er bara sá, að ég
man ekkert hvar ég heyrði plöt-
una og því síður hverjir sungu
og enginn sem ég hef spurt
kannast nokkuð við þetta.
Því leita ég til þín, Póstur góð-
ur, þar sem ég veit að þú hefur
leyst hin ótrúlegustu vandamál
fyrir fólk. Veizt þú hverjir —
eða hver — syngja á þessari
plötu?
Kær kveðja og fyrirfram þakkir
fyrir hjálpina.
Þ.Ú.
Jú, það sem þú ert að tala um
er „Silent Night/The 7 o'elock
news" með bandarísku félögun-
um Simon & Garfunkel á plöt-
unni „Parsley, Sage, Rosemary
& Thyme", en hún kom út hjá
1967. Þessi plata hefur fengizt
hér í hljómplötuverzlunum og
ætti að vera tiltölulega auðvelt
fyrir þig að ná í hana, þar sem
þeir Simon og Garfunkel hafa
verið mjög vinsælir hér á landi
sem annars staðar, en eftir því
sem við bezt vitum eru þeir
hættir að syngja saman. Svo
fuilyrðir allavega sérfræðingur
okkar í þessum málum.
Á þessari plötu syngja þeir ann-
ars „Heims um ból" og er fyrsta
erindinu er lokið heyrir maður
útvarpsþul lesa fréttir dagsins
um morð, stríð, glæpi, eiturlyf,
stjórnmálabrask og fleira. M. a.
hefur hann eftir Nixon, sem þá
var þingmaður, að helzti óvinur
Bandaríkjanna í Indókína-strið-
inu séu námsmenn og andstæð-
ingar stríðsins heima fyrir.
„Kristilegt víxlabetl"
Virðulegi Póstur!
Eins og þér er áreiðanlega kunn-
ugt, þá hefur Bústaðasöfnuður
verið að byggja sér kirkju, mik-
ið musteri sem trónar efst í
Fossvoginum. Mun þetta bákn
hafa kostað einar 30 milljónir
króna til þessa dags og að mestu
— eftir því sem forráðamenn
safnaðarins segja og ekki er
bein ástæða til að rengja þá —
fyrir frjáls fjárframlög sóknar-
barnanna og annarra. Og þetta
er einmitt aðalatriði bréfs míns.
Þeir (forráðamenn safnaðarins)
hafa þrástagazt á því að hofið
sé byggt fyrir „frjáls" framlög,
en hvað er frjálst við það að
vera sífellt með betl og sníkjur
og nú, í því sem þeir kalla
„lokaátak", gekk það meira að
segja svo langt, að þeir sendu
öllum atvinnurekendum í bæn-
um — og fleirum — 2000 króna
víxil til samþykktar. Vissulega
er mönnum í sjálfsvald sett hvort
þeir samþykkja snepilinn, en
hver veit nema að það hefði í
för með sér stefnulaust og for-
dæmt ráf eftir að þessu lífi lýk-
ur?! Hvað finnst þér, Póstur
sæll? Er þetta ekki upplagt, þessi
ósvífna frekja, til að fæla menn
frá kirkjunum?
Spirit.
Pósturinn hafði frétt um þessa
víxla Bústaðasafnaðar og satt að
segja varð hann töluvert hissa,
(því hann hafði alltaf haft mik-
ið álit á forráðamönnum safnað-
arins) og ekki sízt eftir að einn
af kunningjum hans, sem alls
ekki er atvinnurekandi, fékk
sendan víxil með hátíðlegu
bréfi er hófst á þessa leið: „Kæri
atvinnurekandi . . ."
En þeim í Bústaðasókn hlýtur að
vera í sjálfsvald sett á hvaða
hátt þeir safna peningum í
kirkjubyggingu sína — svo fram-
arlega sem það er heiðarlega
gert . . .
Og svo óskum við þeim til ham-
ingju með kirkjuna, sem vígð
var á sunnudaginn.
6 VIKAN 48.TBL