Vikan - 02.12.1971, Blaðsíða 9
ISKUGGA
EIKARINNAR
Framhald, aj bls. 21.
Áður en hún giftist var hún
söngkona, já, og mjög efnileg
söngkona.
— Er það satt? Þá hefur
læknirinn líklega verið hrif-
inn af tónlist sjálfur.
— Ég veit það ekki. Hann
talar ekki um það að minnsta
kosti. Hann talar reyndar held-
ur ekki um bókmenntir og þau
fara ekki í leikhús eða bíó
nema örsjaldan. Það eina sem
hann virðist hafa áhuga á eru
sjúklingar hans og starf með-
al þeirra.
— Ef til vill hefur hún líka
áhuga á starfi hans.
— Húsmóðir með þrjú börn?
spurði hún stríðnislega.
— Það getur verið að hún
sé forvitin. Hugsaðu um öll
leyndarmálin, sem hún fær að
vita . . . Allt sem hún hlýtur
að vita . . . um allt sem sjúkl-
ingar hans gera og segja.
— Heldurðu í raun og veru
að þessir sjúklingar geri eitt-
hvað hræðilegt? Heidi var
hugsandi. — Mér hefur aldrei
dottið það í hug. Hvers vegna
ættu þeir að gera eitthvað
óhugnanlegt?
Þeir hljóta að gera það,
þess vegna eru þeir sjúklingar
hans! Ef þeir gerðu það ekki,
þá væru þeir eins og venjulegt
fólk.
— En þetta er venjulegt
fólk! andmælti Heidi. ■— Hann-
ah læknir hefur oft sagt að
eini mismunurinn á þeim og
venjulegi fólki . . .
■— Sé hvað, skaut Kollok
inn í og rödd hans var áköf.
— . . . er að þjáningar
þeirra leggjast á tilfinningalíf-
ið.
Kollok var vonsvikinn.
— Þetta fólk á bágt, sagði
hún, — hræðilega bágt. En
hann hefur aldrei talað neitt
um hrollvekjandi atburði.
-— En þeir gera það nú samt,
sagði Kollok blátt áfram. — Það
getur þú bókað og þú getur
sagt lækninum þínum það með
kveðju frá mér. Og ef Hannah
læknir talar ekki um það, þá
er það vegna þess að hann vill
ekki hræða konu sína.
— Hræða hana? En hvernig?
Og allt í einu sá hún Tiddli
fyrir sér, furðulega skýra mynd
af dauða íkornanum, sem lá í
sínu eigin blóði og rófan skor-
in af.
Hún varð náföl og saup
hveljur.
— Hvað er að? spurði Kol-
lok.
Hann reis upp og horfði á
hana með áhyggjusvip.
Hún sagði honum hvað henni
hafði komið í hug. Ef það
skyldi nú vera einn af sjúkl-
ingum Hannah læknis, sem
hefði drepið íkornann? Skorið
af honum skottið . . . það var
furðulegt að nokkur skyldi
geta gert það. Svo hafði við-
komandi komið dýrinu burt,
eftir að hún var búin að sjá
það, til að hræða hana, — til
að koma henni burt úr húsinu,
neyða hana til að yfirgefa börn
læknisins — svo að hann gæti
. . . gæti.
— Þú ert allt of taugaveikl-
uð, stúlka mín, sagði Kollok
hlæjandi.
Hann lét sig falla niður á
kodda læknisins, kom sér vel
fyrir og leit á hana með glettni
í augunum.
Framhald í nœsta blaði.
ÍSL. PLÖTUR ...
Framhald aj bls. 28.
á markaðinn fyrir nokkrum
vikum síðan. Tvær litlar plötur
eru og í deiglunni hjá Tónaút-
gáfunni: Tveggja laga plata
með Jónasi R. Jónssyni, annað
lagið þetta gamla, „Lovin*
Things" og hitt nýtt eftir Einar
Vilberg. Það mun reyndar vera
eitt lag sett saman úr tveimur.
Hin litla platan frá fyrirtækinu
er fjögurra laga plata með Guð-
mundi Hauki, söngvara Roof
Tops, en þau lög voru tekin upp
í Lundúnum í sumar, þegar
Trúbrot hljóðrituðu „ . . . lifun“.
Sitthvað fleira mun vera í bí-
gerð hjá Tónaútgáfunni, en eins
og Pálmi Stefánsson, annar for-
stjóra fyrirtækisins, sagði, „þá
er bezt að segja sem minnst, þvi
það er ekki hægt að stóla á
neitt í þessum bransa“.
Síðari tveggja laga platan
með Pétri Kristjánssyni frá
LAUF-útgájunni var sögð
væntanleg á markaðinn
skömmu eftir síðustu áramót,
en ennþá hefur ekkert bólað á
henni. Herma nýjustu fregnir
að hún eigi að koma út fyrir
jólin í ár og skulum við vona
að svo verði, svo hægt sé að
afskrifa það fyrirtæki í eitt
skipti fyrir öll. Það sama má
segja um hljómskífugerðina
SARAH. Frá HSH kemur ekki
neitt.
Já, Magnús minn, það er fátt
um feita drætti þessa dagana.
☆
MÍTT - MTTT
FRÁ BANDARÍKJUNUM
HIÐ EINA ÁHRIFARÍKA
- ORGINAL -
RUSSIAN LEATHER IMPERIAL SAB
Gleðileg
jól!
HERRA SNYRTIVORUR
FALLEGIR GJAFAKASSAR
ALLAR FLÖSKUR MEÐ EKTA
22 KARAT GYLLINGU
ÍSLENZK-
c>&meriólzcL ?
Pósthólf 129 - Reykjavík - SuSurlandsbraut 10 - Sími 85080
ÞEGAR HÚN VELUR -
ER VARAN FRÁ VAL
VALS
VÖRUR f HVERRI BÚÐ
SULTUR
SAFTIR
ÁVAXTASAFAR
TÖMATSÖSA
Efnageríin VALUR
Kársnesbraut 124
48. TBL. VIKAN 9