Vikan


Vikan - 02.12.1971, Síða 14

Vikan - 02.12.1971, Síða 14
JOLAGJOFIN HENNAR Skyndilega lögðu þeir báðir eyrun við og litu inn til eyrarinnar, sem þorpið stóð á. Þar kom vélbátur á fullri ferð, hvítur skafl undan stefni og bógum.... MÖMMU JÓLASAGA EFTIR AAYNDSKREYTING: GUÐMUND GÍSLASON HAGALÍN HALLDÓR PÉTURSSON Tveir drengir læddust hljóð- - lega í tunglskininu niður á milli húsanna yzt í þorpinu, héldu síðan út frosna mela niður í lítinn klettavog. Þeir voru báð- ir klæddir dökkum samfesting- um, voru í hnéháum sjóstígvél- um, höfðu trefla um háls og sjóhatta á höfði, bundna undir kverk. Á höndunum höfðu þeir hvíta belgvettlinga með rönd- óttri fit. Þeir báru á vinstri handlegg olíubornar hlífðar-. svuntur, og annar hafði poka- skjatta á hægri öxlinni, en hinn tvær árar. Þeir námu staðar undir lág- um kletti innst í voginum. Inn í þennan klett gekk hellisskúti, sem var svo langur og breiður, að í honum gat staðið lítill bát- ur. Sjórinn hafði grafið þennan skúta inn í bergið smátt og smátt fyrir ævalöngu. Landið hafði hækkað, síðan sjórinn vann þetta verk, svo að nú var öruggt að geyma bát í skútan- um, jafnvel í foráttu vetrar- brimum. Og í honum stóð bát- ur, sem pabbi drengjanna hafði átt og þeir höfðu fengið að fara á út á fjörðinn, þegar bezt var og blíðast í vor og sumar. Mamma hafði látið hann Jakob gamla velja handa þeim sjó- veðrið, lofað þeim að fara, þeg- ar þessum aldraða formanni bar saman við veðurspá útvarpsins. „Heldurðu, Jakob minn, að mér sé óhætt að sleppa drengj- unum fram fyrir landsteinana í dag?“ sagði hún við gamla manninn og forðaðist eins og heitan eldinn að minnast á út- varpið, því að Jakobi gamla var illa við veðurspárnar. Hann sagði, að gömlum sjóhundi eins og sér fyndist ekki mikið að marka, hvað þeir segðu, þessir lærðu fyrir sunnan. Þá væri þó barómetiS að skömminni til skárra, þó að því væri varla treystandi — eins og öllum þessum apparötum, — mundi reynast bezt, að menn stóluðu á augun og reynsluna, ajamm, hræið mitt! Áður en Jakob svaraði mömmu, leit hann til lofts, beit á kampinn, skaut augunum á ská í allar veðuráttir, nusaði og dró djúpt andann og klóraði sér í skegginu með fingrunum. Svo sagði hann þá oftast — og var ofurlítið þvoglumæltur, því að hann var orðinn næstum tann- laus: „Tja, tjú, jú, — ætli það ekki, rýjan mín? Ég held það eigi að vera óhætt, Gunnu-skinn.“ En stundum sagði hann líka: „U-humm, — ekki þori ég að fullyrða neitt um það, hræið mitt, — nei, ég tek klárlega enga ábyrgð á því, að bliku- Framhald. á bls. 46. 14 VIKAN 48. TBL
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.