Vikan


Vikan - 02.12.1971, Page 16

Vikan - 02.12.1971, Page 16
Friður á jörðu f þúsundir ára hefur mann- kynið vænzt friSar - en lík- lega ekki af nógu mikilli ein- lægni. Allavega mun erfitt að finna í sögu þess ár, þar sem fullkominn friður hefur ríkt á jörðu. 1. Nokkrar svipmyndir frá stríðum aldar- innar. Bandarískir hermenn vaða í land í Normandí 1944. 2. Þýskar konur taka til í rústum Berlínar 1945. 3. Heimsstyrföldin fyrri fór fyrst og fremst fram í skotgröfum. Myndin er af frönskum hermönnum við Verdun, þar sem ein mesta og sóðalegasta fjöldaslátr- unin fór fram. 4. í upphafi fyrra stríðs var riddarálið talsvert notað. Hér eru breskir riddara- liðsmenn úr Norðimbralands-húsaraher- deildinni í belgískum bœ. 5. Arabískur skæruliði einhversstaðar við ísraelsku landamœrin. í skærustríðum nú- tímans er landslagið notað til hins ýtrasta. Ennþá hafa ekki á þessari öld upprunnið þau jól, að friður hafi ríkt á allri jörð. Árekstrar, stríð og kreppur hafa herjað mannkynið lát- laust i tið núlifandi manna. Segja má að styrj- aldir liggi eins og rauður þráður gegnum nú- tímasöguna. Stríð hefur í för með sér eyðileggingu. Ekki einungis á mannvirkjum, heldur og á fólki, á börnum sem vaxa upp foreldralaus, á ung- mennum sem lifa í stöðugri nálægð við dauð- ann, á öllum sem verða fyrir hörmungum af völdum þess. Mörg þeirra sára, sem strið snemma á öldinni veittu, eru enn ógróin. Strið varpa skugga sínum á heilar kynslóðir og leiða af sér ný stríð. Eftirfarandi listi sýnir Ijóslega, hve takmarkað hefur verið um frið í heiminum það sem af er öldinni: 1899—1902 Gull fannst í suður-afríska fríríkinu Transvaal, og dró það að sér straum enskra innflytjenda. Hinir hollenzk- ættuðu Búar, sem fyrir voru í landinu, neituðu þeim um borgararéttindi, og árekstrar urðu afleiðingin. England flutti hersveitir suður, og stríð brauzt út á milli Breta annars vegar og Transvaals og Oraníu hins vegar. Um jólin 1900 unnu Bretar loks úrslitasigra. Beiskjan sem stríðið lét eftir sig meðal Búa efldi mjög með þeim þá hörku, sem þeir nú sýna í afstöðu til Evrópu og blökku- manna í Suður-Afríku. í Kína var uppreisn Boxaranna gegn áhrifum Evrópu- og Ame- ríkumanna barin niður af mikilli hörku. Um jólin áttu enskar, franskar, ítalskar, þýzkar, austurrískar, rúss- neskar, bandarískar og jap- anskar hersveitir í bardögum við Kínverja, og hlutar af Kína voru hernumdir. 1902 Þýzkaland, Bretland og Ítalía gerðu innrás í Venesúelu „til að tryggja hagsmuni sína". 1903— 1906 Uppreisn í Suðvestur-Afríku, sem þá var þýzk nýlenda. Miklar ofsóknir á hendur Gyðingum ( Rússlandi, fjöldi drepinn. 1904— 1905 Rússland og Japan höfðu þrætt um Mansjúríu og Kór- eu. 1904 brauzt út stríð á milli þeirra, og þá um jólin var loft mjög lævi blandið í Rússlandi, verkföll og óeirð- ir. Fólk svalt, og tuttugasta og annan janúar 1905, „blóð- sunnudaginn", hófst fyrri rússneska byltingin. 1906—1911 Óeirðasamt ( Marokkó, árekstrar milli stórveldanna, sem þar kepptu um ítök, Frakklands, Spánar og Þýzka- lands. 1908 Ungtyrkjabyltingin f Tyrk- landi. 1909—1910 Spánverjar berjast við Kabýla í Marokkó. 1910- 1911 Uppreisn í Mexíkó. 1910: Bylting í Portúgal. Óeirða- samt á Indlandi og Filipps- eyjum. 1911— 1912 Ófriður með ítölum og Tyrkj- um. 1912—1913 Fyrra Balkanstríðið. Bylting f Kína, stofnað lýðveldi. 16 VIKAN 48. TBL
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.