Vikan


Vikan - 02.12.1971, Page 21

Vikan - 02.12.1971, Page 21
sér, og það minnti Heidi á eitthvað, sem henni var ekki vel ijóst hvað var í augnablik- inu. Hann ræskti sig hátíðlega °g sagði, með rödd, sem minnti ótrúlega mikið á Hannah lækni: — Hefur þig dreymt eitthvað fallegt í nótt? Svo fóru þau bæði að hlæja. — Stórkostlegt! hrópaði Hei- di. — Þú ert ótrúlega líkur honum! — Hverjum? — Hannah lækni, sagði hún og var nú aftur orðin létt í skapi. — Það var eins og hann hefði sagt þetta sjálfur. Hvern- ig ferðu að þessu? Hún vissi að Kollok var mik- il eftirherma. Það var næstum óhugnanlegt. Kvöldið, sem hún hitti hann í fyrsta sinn, hafði hún sagt að hún væri mjög hrifin af Louis Jouvet í kvik- myndinni Le Bas-Fonds, og þá hafði hún allt í einu heyrt hann tala með sama málrómi. Hún hafði litið í kringum sig, eins og hún ætti von á að sjá Louis Jouvet við hlið sér, þótt hún vissi mætavel að leikarinn var látinn. Kollok skemmti sér konunglega yfir þessu. En þá hafði hann líka hlustað á leik- arann í tvær klukkustundir. Nú hermdi hann eftir Hannah lækni, þótt hann hefði aldrei hitt hann. fá jafnvel martröð og þá hneggja þeir í svefni. É'g hef oft séð það. Já, kýrnar dreym- ir líka, ég veit það, ég hef séð það sjálf. — Ég er búinn að segja þér , að mig dreymir aldrei, sagði hann hljóðlátlega, en samt mjög ákveðinn. Þá þagnaði hún. Augu hans urðu daufari og hún fann að hún hafði eitthvað styggt hann. — Viltu meira kaffi? spurði hún og hún fann að hún var einkennilega þurr í kverkun- um. — Já, takk. Hún hellti í bollann og hann drakk kaffið. — Sjáðu til, sagði hún, óköf í að skýra fyrir honum hvers vegna hún hafði farið að tala um þetta. — Hannah læknir talar heilmikið um drauma og hve mikla þýðingu þeir hafi. Þegar hann er í góðu skapi, spyr hann mig oft á morgnana hvort mig hafi dreymt eitthvað fallegt. Hann gerir þetta að gamni sínu. — Jæja? — Já, honum finnst það skemmtilegt, því hann brosir alltaf, þegar hann spyr þann- ig. En mér finnst það ekkert fyndið, finnst þér það? — Nei, sagði Kollok alvar- lega. Hann setti bollann frá sér á bakkann, svo hallaði hann sér aftur á kodda læknisins og krosslagði handleggina á brjósti — Hvernig heldur þú að það sé að vera sálsjúkdómalæknir? spurði hann allt í einu. — Eflaust alveg hræðilegt. Hannah læknir lifir og hrær- ist alla daga innan um mann- eskjur sem þjást af alls kon- ar sálsjúkdómum, sinnisveikt fólk. Það hlýtur að vera hræði- legt, enda er hann dauðþreytt- ur, þegar hann kemur heim á kvöldin og það er sannarlgea ekki skemmtilegt. Jæja, er hann þreyttur á kvöldin? — Já. Hann hnígur oftast niður í fyrsta stól sem hann kemur í námunda við. Mér finnst oft sem braki í beina- grindinni, þótt hann sé alls ekki gamall maður. En hann situr auðvitað allan daginn í akarinnar — Hvernig ferðu að þessu? spurði hún aftur. — Þú hefur aldrei heyrt rödd læknisins. Hann svaraði brosandi: — Ég reyndi aðeins að gera mér í hugarlund hvernig það er að vera sálfræðingur, og þegar ég var búinn að hugsa mér það, þá kemur þetta af sjálfu sér. — Þetta er stórkostlegt, ég skil ekki hvernig þú ferð að þessu. Hún virti hann fyrir sér með aðdáun. sömu stellingum. Ég er oft að hugsa hvernig hann geti staðið upp að dagsverki loknu. En konan hans dekrar við hann, þegar hann kemur heim; hefur tilbúinn einhvern drykk handa honum, spyr hann hvernig hon- um líði og hvort hann sé ekki svangur. Hún segir honum hvað hún sé búin að búa til góðan mat handa honum og reynir að auka matarlyst hans og láta hann slaka á spenn- unni fyrir mat. En það tekur oft langan tíma. Hann er eins og hert stálfjöður, þegar hann kemur heim úr vinnunni. — Já, ég get skilið að það sé mikið álag að hafa þetta starf. Hefur þú nokkurn tíma farið til sálfræðings? — Nei, sagði hún brosandi. — Við höfum ekki mikið af sálfræðingum í Sviss. — En Jung var svissneskur. — Já, en það er sama. Freud kom frá Austurríki, en nú finnst mér eins og London sé orðin miðstöð sálfræðinga.. — Heldurðu það? Miðstöð fyrir allan heiminn? — Já, Hannah læknir segir það. Sjúklingar hans koma frá öllum heimshornum. — Jæja. Kollok var hugs- andi á svipinn. — Hefur þú nokkurn tíma heyrt Hannah lækni tala um sjúklingana sína? — Stundum. — Ég hélt þeir hefðu ekki leyfi til þess. Eru þeir ekki bundnir þagnarheiti? — Jú, auðvitað. En beir eru vísindamenn og verða auðvitað oft að tala um sjúklinga sín á milli. En að sjálfsögðu segir hann aldrei nafn sjúklinganna, þótt hann tali um þá heima. Það hvílir sannarlega leynd yf- ir starfi hans. — En hann talar um sjúkl- inga sína? — Á ópersónulegan hátt, já, og þá eingöngu við konuna sína. Það hlýtur að vera mjög leiðinlegt fyrir hana, heldurðu það ekki? — Leiðinlegt? Hún leit undrandi á hann. — Það gæti nú verið að hana langaði til að tala um eitthvað allt annað. Eitthvað sem hún hefur sjálf gaman að. Mér finnst eigingirni af honum að tala sí og æ um starf sitt. — En hvað veizt þú um áhugamál hennar? sagði hann. — Hún er húsmóðir og á þrjú börn. — Ég veit, til dæmis, að hún hefur mikið yndi af hljómlist. Framhald á bls. 9. 48. TBL. VIKAN 21
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.