Vikan


Vikan - 02.12.1971, Side 23

Vikan - 02.12.1971, Side 23
mikið manntjón og eigna. í Vín- arborg, hinni fornfrægu höfuð- borg Austurríkis Ungverjalands og aðsetri Habsborgarættarinn- ar, ríkti hungursneyð. En svo var víðar í Evrópu. Afleiðingar hernaðarstefnu og landvinninga komu nú hart við allan al- menning, sem mátti líða fyrir afglöp misviturra stjórnenda. Það var líka mikið talað um afvopnun þessa mánuði og frið- arþingið svonefnda vakti vonir þjóðanna um að kannski yrði aldrei framar styrjöld. En þrátt fyrir slíkt tal var eins og framá- menn tryðu ekki þeim boðskap, sem þeir þó gjarnan í ræðu og riti fluttu almenningi. Endur- vígbúnaður var hafinn þótt hægt færi i fyrstu. Smáfréttir hér og þar gáfu vísbendingu um hvað í vændum væri. Tæp- lega tveim árum eftir striðslok barst sú frétt, að Bretar hefðu lokið smíði stærra herskips en áður hafði sézt. Það var 41.500 smálestir að stærð og gat farið með 31 mílna hraða. Þetta mikla herskip, sem átti að sam- eina kosti þungbrynjaðra orr- ustuskipa og léttra og hrað- skreiðra tundurspilla hlaut nafnið H.M.S. Hood. í fréttinni sagði einnig, að þrjú eða fjögur systurskip væru í smíðum. Á Norðurlöndum hugsuðu menn minna um vopnaskak, en þ.ióðir sunnar í álfunni, enda höfðu þessi lönd ekki dregizt inn í ófriðinn, þótt hann geisaði á næsta leiti. Árið 1919 fréttist, að útgerðarfyrirtæki í Bergen hafi látið smiða flugvél til fiski- leitar og muni láta smíða fleiri, ef sú fyrsta reynist vel. íslenzkt b’að benti á í þessu sambandi, að slik flugvél gæti komið sér vel við síldveiði hér við land. Á íslandi sátu menn ekki iðju- lausir þessi misseri. Þótt full- ve’di landsins hefði verið fagn- að í skugga mikillar drepsótt- ar, „spönsku veikinnar“ svo- kölluðu, varð þessi stóráfangi i baráttu landsmanna til full- komins sjálfstæðis mikill hvati hverskyns framkvæmda. ís- lendingar deildu um alla mögu- lega og ómögulega hluti þá eins og nú. Blöðin voru stundum full af skömmum, stundum talsvert persónulegum, en þetta var nú háttur mörlandans. Meðal athafnamanna • þessa timabils var einn, sem um hart- nær 20 ára skeið hafði staðið í stórframkvæmdum og rutt ýmiskonar nýjungum braut. Þessi maður var Jóhannes J. Reykdal. Hann var Þingeying- ur að ætt og uppruna, yngstur fimmtán systkina frá Vallakoti í Þingeyjarsýslu. Foreldrar hans voru Ásdís Ólafsdóttir, viðfræg norður þar sem úrvals ljósmóð- ir, og Jóhannes Magnússon. Jó- hannes yngri fæddist 18. janúar 1874. Sex árum síðar brugðu foreldrar hans búi og dvöldu næstu árin með þrjú yngstu börnin á ýmsum stöðum á Norður og Austurlandi. Jóhann- es hinn ungi var snemma ákveð- inn í að sjá fyrir sér sjálfur og þegar hann kom til Akureyrar rúmlega tvítugur og hóf smíða- nám, hafði hann safnað sér 600 krónum, sem þá var mikið fé. Árið 1898 sigldi Jóhannes til Kaupmannahafnar til þess að leita sér framhaldsnáms í iðn sinni og þar dvaldi hann næstu árin. Hann kom aftur til íslands 1901, dvaldi eitt ár í Reykjavík, en settist svo að í Hafnarfirði, þar sem hann byggði nýjan barnaskóla fyrir kaupstaðinn. Þá voru svotil engar trésmíða- vélar til hér á landi, sem létt gætu mönnum störfin við smíði hurða og glugga, svo nokkuð sé nefnt. Jóhannes Reykdal sá, að við svo búið mátti ekki standa, og árið 1903 virkjaði hann Læk- inn í Hafnarfirði og reisti fyrstu trésmiðju á íslandi búna full- komnum vinnuvélum. Vatns- 48. TBL. VIKAN 23
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.