Vikan


Vikan - 02.12.1971, Side 26

Vikan - 02.12.1971, Side 26
Jakobína Þorvarðardóttir: — Mér verður starsýnt á þetta; sé aS það er fullorðins manns líkkista, Ijós með gullinni, upprennandi sól á gaflinum, sem út vissi . . . ÞEGAR LOFTUR FÓRST. Var mikið útræði vestur þar, þegar þú varst í bernsku? — Það var útræði frá Sandi, en ekki teljandi frá Arnarstapa, enda fátt fólk þar þá. Á Sandi var fleira fólk og margt sjó- manna á vertíðum. Til dæmis voru einir 14 á bænum, þar sem ég var, en þar var líka tvíbýli. Það var róið, bæði á stórum bátum og smáum. En flestir voru bátarnir þó frekar smáir. — Voru sjóslys tíð? — Kannski ekki eins tíð og búast hefði mátt við, því að oft var langt sótt. Jú, það fórust bátar, og ekki alltaf langt frá landi. Loftur, miðaldra og reyndur formaður utan úr Breiðafjarðareyjum, fórst þarna uppi í vör að kalla um yor í blíðskaparveðri, og með honum níu menn. Ég var þá á milli fermingar og tvítugs svo að síð- an eru meira en sextíu ár. — Og hvað bar til? — í Keflavíkinni, þar sem þetta gerðist, er klettarimi í sjó úti, varla tuttugu faðma undán landi og kallaður Þröskuldur. Er djúpt fyrir utan hann og innan, en brýtur á honum ef eitthvað er í sjó, og svo var í þetta skiptið þó að logn væri. Yfir Þröskuldinn urðu bátarnir að fara upp í vörina, sæta sjóar- föllum og lagi svo að ekki tæki niðri, og væri lágsjávað, urðu þeir áð bíða fyrir utan. Að þessu sinni komust þeir allir inn fyrir heilu og höldnu, nema þessi eini bátur. Honum hvolfdi á Þrösk- uldinum og var sagt að Loftur hefði tekið lagið of snemma. Þeir fórust allir, en tvær eða þrjár skipshafnir stóðu skinn- klæddar í fjörunni og máttu ekki hafast að vegna brimbrots- ins á Þröskuldinum. Og enginn syndur, hvorki af áhöfninni sem fórst né þeim, sem stóðu í landi. Það þekktist ekki þá. Það var hörmulegt. — Horfðir þú kannski sjálf á slysið? — Nei, ég var inni í bænum, sem stóð þarna uppi á bakkan- um, rétt ofan við vörina. En vitanlega heyrði ég strax sagt frá atburðum. Þrír komust á kjöl, þegar bátnum hvolfdi og var formaðurinn einn þeirra, og kallaði hann til þeirra, sem í fjörunni stóðu. Velktist svo bát- urinn í brimbrotinu og háset- „Ekki get ég neitaS því, að mig hefur dreymt fyrir ýmsu. En ég hef ekki kunnað að ráða drauma mína fyrr en eftir á, þegar þeirvoru komnirfram. £g hef því ekki orðið margs vísari um óorðna hluti af þeim. Aftur á móti hefur það komið fyrir, að ég hef séð atburði fyrir í vöku; sýnir, sem bent hafa mér á ýmislegt....“ arnir tveir hurfu af kjölnum, en formaðurinn hélt takinu enn um hríð. Töldu þeir, sem horfðu á slysið úr landi, að hann hefði að lokum rennt sér í sjóinn, þegar hann sá að allir hásetar hans voru farnir. En — um leið og hann sleppti takinu og hvarf, þá rétti báturinn sig við og skreið inn fyrir og á réttum kili upp í lendinguna eins og róið væri. Þarna fórust bræður þrír, synir ekkju, tvígiftrar, sem misst hafði menn sína báða, og átti nú tvo sonu eftir af seinna hjónabandi. Aldraður maður, sem lá blindur í kör, missti einkason sinn og fyrirvinnu. Og þarna sýndist það koma fram sem oftar, að skilur milli feigs og ófeigs. Daginn áður hafði einn af hásetum Lofts veikzt, og 26 VIKAN 48. TBL
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.