Vikan - 02.12.1971, Page 29
ELDUR
ARNAR SIGUR-
BJÖRNSSON
Það sem mér finnst bezt
við jólin eru frídagarnir,
sem ég fæ aldrei nóg af,
góði maturinn sem ég elska
og eins finnst mér þessi
jólastemmning alltaf nota-
leg og hátíðleg. Þetta er
svo mikil samstaða — alla-
vega á þessu heimili. Jesús
Kristur kemur hvergi inn í
mín jól — þótt ég geri mér
náttúrlega grein fyrir því,
að ef ekki væri fyrir hann
væru engin jól.
GUÐMUNDUR
HAUKUR
JÖNSSON
Fyrir ungan mann með
tiltölulega lítt mótaða lífs-
stefnu er þetta stór spurn-
ing og henni vandsvarað.
Ég veit það strax áður en
ég reyni að svara henni, að
svar mitt verður jafnvel
frá mínum bæjardyrum
séð, engan veginn fullnægj-
andi, þar sem ástæðurnar
eru svo ótölulega margar.
Sannast að segja hefur
skoðun mín á gildi kristni-
dóms gerbreytzt á undan-
förnum árum samfara
þroska mínum, eins og
reyndar er ofur eðlilegt.
Fyrir mér eru jólin hug-
vekjuhátíð, til að minna
okkur á að enn í dag eru
hugsjónir Jesú Krists feg-
ursta leiðarljós hvers og
eins. Að elska lífið, feg-
urðina og ljósið. Jólin
veita lífi, ljósi og fegurð
inn í tilveru okkar í svart-
asta skemmdeginu og ég
finn aldrei eins sterklega
til góðra kennda eins og
einmitt á hinu friðsæla að-
fangadagskvöldi. Sá friður
sem maður finnur með
sjálfum sér á jólunum er
raunar nægilegt tilefni til
jólahalds.
ÞU IOL?
SIGURÐUR
ÁRNASON
Ég er náttúrlega ekkert
öðruvísi en aðrir og held
jól á sama hátt og annað
fólk. Þetta er fyrst og
fremst gamall vani, en vani
sem ég kann vel við. Ég
held að það sem ég sjái
aðallega í þessu sé hátíða-
svipurinn og rólegheitin og
ég verð að viðurkenna að
þessi hátíð er mér meira
frí en nokkuð annað. Trú-
arástæður koma auðvitað
líka þar inn í, en ekki eins
mikið. Ég fer til dæmis
ekki í kirkju á jólunum en
ég hlusta þó yfirleitt á út-
varpsmessurnar.
Mér líður vel á jólunum
og ég held að verzlunar-
vesenið skipti ekki nokkru
máli, það er stemningin.
BJARKI
TRYGGVASON
Ég hlakka alltaf til jól-
alla og finnst þau heilmik-
ið sérstakt. Þá líður öllum
vel og maður er haldinn
einhverskonar innri frið
sem skapar góða heildar-
stemmningu. Svo er nátt-
úrlega það, að strax á milli
jóla og nýárs er allt komið
á fleygiferð og jólaskapið
er eiginlega búið.
Annars finnst mér jólin
dálítið skrítin. Trúarlega
eru þau ekki nógu góð, því
þetta er komið svo mikið
út í glingur og gjafir. Áður
dugði mönnum að fá kerti
og spil, en eftir 20 ár
dugar varla minna en að
gefa hús og bíl í jólagjöf
og það held ég að sé hættu-
leg þróun, en aftur á móti
sé ég ekkert athugavert
við það að verzlanir séu
farnar að stilla út í glugga
I nóvember, það er allt f
lagi að minna fólk á jólin
í tíma En ég verð líka að
viðurkenna, að þrátt fyrh
að mér finnist jólin dásam-
leg og fyrst og fremst há-
tfð barnanna, þá virðist
allt stefna þannig, að inn-
an skamms verði þau al-
veg jafnmikið kaupsýslu-
hátfð og heilög jól sem er
svo gott að fá í hjartað.
48. TBL. VIKAN 29