Vikan - 02.12.1971, Síða 30
•srzx
FYRSTA
BAKARÍIÐ
OG
SOGULEGASTI UTBURÐUR
I REYKJAVIK
Um þessar mundir er einmitt tímabært
að rifja upp sögu hinna frægu og
umdeildu húsa í Bernhöftstorfunni. Hér segir
ÁRNI ÚLA, rithöfundur, frá fyrsta full-
komna bakaríinu og sögulegasta
útburði í Reykjavík.
Ekki er ósennilegt að margir,
sem leið eiga um miðbæinn í
jólaönninni, en koma þangað
annars sjaldan, staldri við neðst
i Bankastræti eða á Lækjar-
götu og virði fyrir sér Bern-
höftstorfuna, svo fræg og um-
deild, sem þessi húsasamstæða
er orðin. Allir vita, að hér er
um gömul og söguleg hús að
ræða, og langflestir vilja, að
þau verði varðveitt í einhverri
mynd, hvort sem stjórnvöldum
þóknast að verða við þeirri ósk
eða ekki. En hver er saga
þeirra?
Árni Óla, rithöfundur, hefur
skrifað meiri en nokkur annar
um fortíð Reykjavíkur. Hann
hefur unnið ómetanlegt starf
við söfnun heimilda um sögu
höfuðstaðarins og átt sinn þátt
í að vekja okkur til vitundar
um þau verðmæti, sem óðum
eru að glatast. í bókum hans er
ýmsan fróðleik að finna um
húsin í Bernhöftstorfunni, sem
einmitt er tímabært að rifja
upp nú. Hann hefur veitt Vik-
unni góðfúslega leyfi til að
birta eftirfarandi tvo kafla um
Bernhöftsbakarí og landfógeta-
húsið:
FYRSTA FULLKOMNA
BAKARÍIÐ HÉR Á LANDI
„Árið 1834 fékk Knudtzon
kaupmaður útmælda lóð, beint
suður af „Konungsgarði". Var
lóð þessi upphaflega 90 álnir
frá austri til vesturs (niður að
læk) og 56 álnir frá norðri til
suðurs. Meginhluti þessarar
lóðar var þrætuland, sem
Reykjavik og Arnarhóll höfðu
deilt um, en var með dómi yf-
irréttar 1780 dæmt Reykjavík.
Ekki þótti þó eftir miklu að
slægjast, því að í skoðunargerð
1776 segir sýslumaður og 6
skoðunarmenn, að þeir „hafi
fyrirfundið það (landið) mest-
megnis bestanda að ofanverðu
og upp við túngarðinn af ó-
hræranlegu stórgrýti, en víða,
sérdeilis um miðstykkið, sjáist
smærri og stærri holur, hvar
grjót eftir vitnanna udsigende,
hefur verið upp tekið, svo þetta
stykki auðsjáanlega er farið að
forbetrast. Það neðsta á þrætu-
plássinu, sem liggur við lækinn,
er bezt, sem oss virðist megi
með rækt og áburði mega ger-
ast að temmilega góðu tún-
stykki."
Það er annars einkennilegt,
að í útmælingunni handa
Knudtzon er tekið fram, að land
Litla húsiS neSst i Bankastræti, þar sem áður var fyrsta fulikomna
bakaríiS hér á iandi, Bernhöftsbakarí, en nú er verzlun, hefur staSiS
óbreytt sfSan það var byggt árið 1885. Eina breytingin er sú, að stórt
Pepsi-Cola merki trónar nú fyrir ofan dyrnar sem tákn um auglýsinga-
veldi nútímans. íbúSarhúsið þar fyrir aftan er elzt, byggt 1834, en
árið 1871 var það lengt suður á bóginn. -
30 VIKAN 48. TBL