Vikan


Vikan - 02.12.1971, Síða 31

Vikan - 02.12.1971, Síða 31
Þannig lítur Bernhöftstorfan út frá lækjargötu. Yzt til vinstri er Barnhöfts bakariið, en yzt til hægri iandfógetahúsið, sem byggt var árið 1838 (sjá teikningu). Árið 1859 var það stækkað mikið norður á bóginn og settur á það kvistur. Árið 1905 lét þáverandi eigandi, Guðmundur Björnsson landlæknir, lengja gamla húsið með turnlaga viðbót, og íékk húsið þá þann svip, er það hefur hatdið síðan. í miðjunni er húsið Gimli, þar sem nú er Ferðaskrifstofa ríkisins. Það hús lét Knud Zimsen, síðar borgarstjóri, reisa árið 1904. þetta sé í Ingólfsbrekku. Þar kemur það nafn fyrst fyrir svo menn viti, en var lögfest 1848 ; sem nafn á allri brekkunni milli Bankastrætis og Bókhlöðustígs. Þarna reisti svo Knudtzon brauðgerðarhús, „hið fyrsta á íslandi" eftir sjálfs hans sögn. En það var nú ekki alveg rétt, því að skömmu eftir aldamótin hafði O. P. Chr. Möller (gamli Möller) byggt ofurlítið „bökun- arhús“, þar sem nú er vestur- endinn á Hressingarskálanum, og stóð Friðrik Hansen, einn af Básendabræðrum, fyrir bakstr- inum. En þetta fyrirtæki stóð ekki lengi, og óvíst er hvers konar brauð þar hafa verið bök- uð. En brauðgerðarhús Knudt- zons var fyrsta fullkomna „bak- aríið“ hér á landi og það bakaði „jafn gott brauð og kex eins og hægt er að fá í Danmörk" Knudtzon hélt því á loft, að hann hefði orðið að flytja allt efni í brauðgerðarhúsið frá Kaupmannahöfn, við, kalk og stein, því að á íslandi væri ekki nokkur steinn hæfur í bökunarofn, enda þótt allt land- ið sé þakið grjóti. Og svo lét Knudtzon reisa þarna í grjóturðinni þau hús, sem staðið hafa mjög lítið breytt fram á þennan dag.- Hann réði sem bakara Daniel T. Bern- höft, sem hafði verið um tíma í Vestmannaeyjum áður. Varð brátt mikill menningarbragur á öllu þarna. Lóðin var ræktuð, gerður þar skrautgarður og grafinn brunnur, sem, síðan varð aðal vatnsból Austurbæj- armanna þangað til vatnsveitan kom. Var dæla í brunninum og var hann því kallaður Bern- höftspóstur eða Bakaríispóstur. Göngubrú var gerð á lækinn, svo að þeir sem áttu heima í Miðbænum gætu átt auðvelt með að sækja sér brauð í bök- unarhúsið. Árið 1845 keypti Bernhöft eignina af Knudtzon fyrir 8000 rdl. Rak hann svo iðn sína þarna fram til 1870, en þá var talið að sonur hans, W. Bern- höft tæki við. En það stóð ekki lengi, því að hann andaðist 1871. Þá tók Johanne ekkja hans við. Að henni látinni 1898 eignaðist sonur hennar, Daniel Bernhöft yngri, fyrirtækið og rak það til 1925. Þá seldi hann alla eignina og kaupendur voru KFUM og KFUK. Á þeim 80 árum, sem Bern- höftsættin réði þarna ríkjum, voru ekki gerðar aðrar breyt- ingar á íbúðarhúsinu en þær, að 1871 var það lengt suður á bóg- inn, og 1885 var reist sölubúð við norðurenda þess, og var það sú útbygging er enn stendur. Árið 1931 sóttu KFUM og KFUK um leyfi til þess að reisa þarna samkomuhús, sem væri 756 fermetrar að stærð. Mun þá hafa verið ætlunin að rífa íbúð- arhúsið. Fengu félögin nauð- synleg leyfi hjá bygginganefnd og bæjarstjórn. En nú komu upp raddir um, að ríkið þyrfti nauðsynlega að eignast þessa Framhald á bls. 86. Þannig leit hús Stefáns Gunnlaugssonar bæjar- og landfógeta upp- runalega út. Úr þessu húsi vildi Jórunn, slSari kona Stefáns, ekki vfkja, þótt þaS hetfði verið selt. Varð ioks að bera hana út úr þvl ( böndum. Grindin í húsinu var alveg látin halda sér, svo a3 sá hluti hússins, sem Stefán Gunnlaugsson byggði, stendur enn óhreyfður. Á sinum tfma þótti þetta fegursta húsiS I bænum. I I 48. TBL. VIKAN 31
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.